Kylfingur - 01.05.1999, Blaðsíða 3

Kylfingur - 01.05.1999, Blaðsíða 3
Gestur Jónsson, formaður GR: Góð þjónusta við félagsmenn í fyrírrúmi Það hafa orðið miklar breytingar hjá Golfklúbbi Reykjavíkur á síðustu mánuð- um. Garðar Eyland, sem setið hefur í stjóm undanfarin 14 ár, þar af síðustu 6 árin sem formaður, hefur staðið upp úr stól sínum eftir ómælt og farsælt starf í þágu klúbbsins. Hildur Kristmundsdóttir hefur látið af starfi framkvæmdastjóra og Sig- urður Pétursson, aðalkennari klúbbsins, lét af störfum um áramót. Ég vil fyrir hönd klúbbfélaganna þakka þessu góða fólki störf þeirra fyrir GR og óska þeim velfam- aðar í nýjum verkefnum. Stjómin réði Margeir Vilhjálmsson, sem verið hefur vallarstjóri GR undanfai- in ár, í stöðu framkvæmdastjóra. Margeir hefur þegar sýnt að þar fer kraftmikill maður sem ástæða er til að binda miklar vonir við. Krafturinn er slíkur að að stjóm- in nær vart að taka ákvarðanir áður en framkvæmdum er lokið. I Grafarholti er búið að byggja upp fjór- ar nýjar flatir á 2., 6., 10. og 16. braut. Þá hafa verið gerðir nýir teigar á 17. braut. Ekki er ætlunin að spila inn á nýju flatim- ar fyrr en sumarið 2000, þótt hugsanlegt sé að þær verði leikhæfar síðsumars eða snemma í haust. Þrátt fyrir þessar miklu breytingar standa vonir til að framkvæmd- imar hafi lítil sem engin áhrif á golfið í sumar þar sem flatimar em í öllum tilvik- um á nýjum stöðum og hægt verður að leika inn á gömlu flatimar í sumar eins og verið hefur. Það er að sjálfsögðu afar mik- ilvægt að reyna að haga framkvæmdum þannig að sem minnst truflun verði á notk- un vallarins. Félagamir geti spilað golf við bestu hugsanlegu aðstæður þrátt fyrir framkvæmdimar. Það er trú mín að nýju flatimar eigi eftir að gera Grafarholtsvöll- inn enn fallegri, skemmtilegri og meira krefjandi en hingað til. Breytingar standa einnig yfir á Korp- úlfsstaðavellinum. Legu 10. brautar hefur verið breytt þannig að leikið verður frá Korpúlfsstaðahúsinu í átt að ánni, samsíða 18. brautinni og þaðan til hægri inn á flöt- ina. Ætlunin er að nota landið þar sem 10. brautin lá áður undir nýjan 9 holu byij- enda- og æfingavöll ásamt svæðinu vest- ur að Víkurvegi. Borgaryfirvöld hafa heimilað GR að taka undir æfingavöllinn svæðið milli gamla malarvegarins sem lá meðfram gömlu fyrstu brautinni á Korpu- vellinum að Víkurveginum. Hefur Hann- es Þorsteinsson, golfvallahönnuður, þegar skilað teikningu af 9 holu velli á svæðinu. Par hans verður 31 eða 32. Borgaryfirvöld hafa jafnframt fallist á beiðni GR um að fá að leggja nýja braut sem komi í framhaldi af ní- undu braut og spilist upp að Korpúlfsstaða- vegi. Brautin verður par 3 og verður ca 170 mera löng frá klúbb- teigum. Fyrirhugað er að þessi braut verði í framtíðinni 9. braut vallarins, en núverandi 7. braut verður felld út á móti. Með þessu móti styttist mjög það leið- inlega labb sem verið hefur frá 9. flöt að 10. teig. Eins og menn vita finnst kylfing- um fátt leiðinlegra en að labba langar leið- ir, þ.e. þegar ekki er verið að elta hvíta kúlu. Loks hefur fengist samþykki borgaryf- irvalda við því að gengið verði frá bíla- stæðum við klúbbhúsið að Korpúlfsstöð- um í sumar. Hönnunarvinnu er að ljúka og standa vonir til þess að framkvæmdir geti hafist nú í vor eða snemmsumars. Þegar gengið hefur verið frá bflastæðunum og aðkomunni að klúbbhúsinu er óhætt að fullyrða að Korpúlfsstaðavöllurinn verði kominn í hóp glæsilegustu golfvalla á landinu. Eins og áður hefur komið fram í frétta- bréfi GR tók Joe McKie til starfa sem að- alkennari klúbbsins um síðustu áramót. Joe hefur verið með kennslu inni í aðstöðu klúbbsins að Korpúlfsstöðum í vetur og hefur aðsókn verið feikileg. Þá hefur Joe verið með vikulega kennslu fyrir böm og unglinga á vegum klúbbsins. Auk þess að vera góður kennari er Joe kurteis og þægi- legur maður. Eini gallinn við hann er sá að hann á annað móðurmál en íslensku. Hann vinnur þó stöðugt í að bæta sig í íslensk- unni og er þegar kominn með þokkalega forgjöf. Ástæða er til þess að hvetja klúbb- félaga til þess að launa Joe kennsluna með því að tala við hann ís- lensku eins og hægt er. Með því móti verður hann kominn með keppnisforgjöf í ís- lensku innan skamms. Vegna þess hve að- sóknin í kennsluna hefur verið mikil hef- ur Joe þegar ráðið sér aðstoðarkennara sem tók til starfa um miðj- an aprfl. Sá er einnig Skoti og heitir Derrick Moore. Það er rík ástæða til þess að mæla með þeim félög- um. Sennilega er þetta besti tími ársins til þess að fara í kennslu, svona um það bil þegar vertíðin er að heíjast. Joe McKie mun í sumar annast rekstur tveggja golfverslana fyrir klúbbinn. Önn- ur verður á kunnum slóðum í Grafarholt- inu. Hina er verið að opna í öðrum tum- inum á Korpúlfsstöðum. Það er ásetningur stjómar GR að þjóna félagsmönnum sem best. Stærsta atriðið er að sjálfsögðu að halda völlunum í eins góðu ástandi og hugsanlegt er. Lögð er áhersla á það við starfsmenn GR að þeir vandi verk sín og sýni félagsmönnum kurteisi og lipurð. Á sama hátt eiga starfs- mennimir rétt á því að við félagsmennim- ir sýnum þeim og klúbbnum virðingu í verki. Látum verkin tala í sumar og göng- um þannig um vellina og klúbbhúsin að til sóma sé. Með ósk um gott golfsumar, Gestur Jónsson, fonnaður GR. KYLFINGUR 3

x

Kylfingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.