Kylfingur - 01.05.1999, Page 14
janúar með því að nefndin kallaði saman
þær konur sem nýgengnar voru í klúbb-
inn og kynnti þeim starfsemina.
Kennari klúbbsins var fenginn til að
segja þeim frá hvemig kennslu væri hátt-
að og sýndi þeim æfingaaðstöðuna.
Tilgangur þessa fundar var að bjóða
konurnar velkomnar í klúbbinn, hvetja
þær til að nota kvennatímana og einnig sá
að þær kynntust, þannig að auðveldara
væri fyrir þær að finna sér golffélaga.
Þessi fundur mæltist mjög vel fyrir.
Sjaldan hefur verið jafn mikil þátttaka
nýliða í starfi kvennanefndar eins og á
síðastliðnu ári. Púttkvöld hófust í lok jan-
úar að venju og hefur þátttakan aldrei ver-
ið meiri. Vetrarstarfinu lauk með hátíð í
golfskála GR í Grafarholli, 27.mars, þar
mættu 70 konur.
Púttmeistarar vetrarins voru krýndir og
ýmis skemmtiatriði flutt með söng og
dansi. Var þessi skemmtun vel heppnuð í
alla staði.
Sumarið hófst með vorferð á Hellu
þann lö.maí.
Ákveðið var að breyta rástímanum, sem
konur hafa haft undanfarin ár, á miðviku-
dögum milli kl. 17:00 og 18:00, þannig að
konur gætu skráð sig í kvennatímann þeg-
ar þær kysu á miðvikudögum og spilað til
forgjafalækkunar eins og verið hefur.
Þetta var gert til þess að koma til móts
við þær konur sem vilja spila fyrr að deg-
inum. Þetta fyrirkomulag gafst ekki vel.
Sennilegt þykir að kvennatímanum
verði breytt aftur í fyrra horf.
Mót sem kvennanefndin stóð fyrir eru:
Baráttumót kvenna, þann 19 júní og
Hatta- og pilsamótið, þann 26.júní.
Á hverju sumri hittast konur úr GR og
konur úr Golfklúbbi Suðumesja og keppa
til skiptis heima og að heiman.
Síðastliðið sumar heimsóttu GR konur
Suðumesjakonur og sigmðu GR konur í
jafnri og æsi spennandi keppni. Síðasta
kvennamótið var opið mót, ÍBR bikarinn
sem fór fram þann 29. ágúst á golfvelli
GR í Grafarholti. Sumarstarfinu lauk svo
með haustferð sem farin var á golfvöllinn
á Akranesi þann 19.september
Formaður kvennanefndar var Stefanía
M. Jónsdóttir. Með henni í nefndinni
voru: Guðrún Magnúsdóttir, Aðalheiður
Guðmundsdóttir, Fanney Júlíusdóttir og
Margrét Geirsdóttir.
Kappleikir
Þátttaka í flestum mótum var mun
minni en áður hefur þekkst sem skýrist
helst af því að stöðugt færist í vöxt að hin
ýmsu fyrirtæki og félög eru farin að leigja
velli og halda mót fyrir sína viðskiptavini.
Opna GR var haldið 4.-5. júlí og var
það að venju fjölmennt.
Safnmót var í gangi í sumar og tóku alls
85 félagar þátt í mótinu en 15 keppendur
tóku þátt í úrslitakeppninni sem fór fram
í september. Þar var keppt með og án for-
gjafar og voru verðlaun veitt fyrir besta
samanlagðan árangur sumai'sins.
Ég vil geta þess undir þessum lið að
1997 barst beiðni frá Royal Spanish Golf
Federation, Travel og Sponsoring, um að
halda hér eitt mót á tímabilinu apríl / júní.
TITANIUM
CHRONOGRAPH
Gull- og Silfursmiðjan
ERNA
Skipholti 3
FANNAR
KJARNA
Mosfellsbæ
Tilboðsverð: kr. 18.900
Mót þetta er nokkursskonar raðmót sem
halda átt í áhugaverðum borgum í Evr-
ópu.
Verðlaun í þessu móti átti að vera ferð
fyrir tvo, til að taka þátt í úrslitamóti, sem
halda átti þegar úrslit lægju fyrir úr hverju
landi.
Þessu móti var frestað en samkvæmt
bréfi frá Royal Spanish Golf Federation
mun það verða tekið upp að nýju.
Formaður kappleikjanefndar var Gest-
ur Jónsson.
Unglinganefnd
Unglingastarf GR var með hefðbundn-
um hætti á liðnu starfsári. Inniæfingar
hófust fljótlega eftir áramót og voru einu
sinni í viku. Sökum þess hvað hópurinn
er orðin stór þurfti að skipta honum nið-
ur, einnig innan aldurshópa. Æfingar
gengu vel og óhætt að segja að sú aðstaða
sem GR skapar unglingum innan klúbbs-
ins skili sér í góðum árangri og framför.
Árangur unglinga GR þetta árið var nokk-
uð góður, við unnum sveitakeppni ung-
linga 16-18 ára annað árið í röð, vorum í
3. sæti stúlkna 18 ára og yngri, eignuð-
umst unglingameistara íslands í flokki
drengja 16-18 ára einnig annað árið í röð
og áttum 2. sætið í þessum flokki líka, 2.
sæti stúlkna 16-18 ára og 2. og 3. sæti
telpna 13-15 ára.
Nú í haust fóru tveir unglingar á vegum
GR til Frakklands og kepptu fyrir íslands
hönd í stóru unglingamóti þar. Af fjórtán
liðum sem kepptu lentu þeir í 6. sæti.
Unglinganefnd GR var þamiig skipuð
árið 1998:
Hinrik Gunnar Hilmarsson. formaður,
Þorsteinn Þorsteinsson, Christian Þor-
kelsson, Ægir Kópsson, Steinar Ágústs-
son og Stefanía M. Jónsdóttir.
Skemmtanir
Að venju var staðið var fyrir Vorfagn-
aði, Jónsmessufagnaði og Bændaglímu.
Forgjafamál
Formaður forgjafanefndar var Eyþór
Fannberg. Forgjafarkerfið er tengt félaga-
keifinu og hefur skrifstofan haldið sam-
viskusamlega utan um forgjöf kylfinga.
Nýliða og aganefnd
Þorsteinn Sv. Stefánsson var formaður
aganefndar og eins og undanfarin ár voru
haldnir nýliða- og fræðslufundi á vegum
nefndarinnar. Einnig hefur Þorsteinn ver-
ið okkar aðal dómari og leiðbeint okkur
með merkingar og úttektir á völlunum.
Það er ómetanlegt að geta sótt þekkingu
14 KYLFINGUR