Kylfingur - 01.05.1999, Blaðsíða 37

Kylfingur - 01.05.1999, Blaðsíða 37
svo upp í skálann nístir í hjarta og stað- ráðnir í að „gera bara betur næst“. En kaflinn um hugarþjálfun minnir okkur á að golf er íþrótt andans, og nákvæmlega þar á að slá fyrsta höggið - í hugarheimi róseminnar - og þaðan liggur leiðin til betri sveiflu, betra skors og ríkulegri lífsfyllingar á golfvellinum. Auk kaflans um hugarþjálf- un er vert að nefna annan kafla, þann sem gerir grein fyr- ir svonefndum tækniæfingum. Þar hjálpa höfundar okkur til þess að sigrast á ýmsum al- gengum kvillum golfsveiflunn- ar. Sjálfur hef ég átt í vanda með hægra hnéð, sem á það til að læsast í baksveiflunni, og eins og vænta mátti kunna þeir gott ráð við því - það er tækniæfing nr. 6. Öfugur þungaflutningur hrjáir margan góðan dreng, og ófáa kaffibolla og kleinuhringi hef ég um dagana unnið af mætum golffélaga, sem aldrei hefur sigr- ast á þeim fjanda, en tækniæfing nr. 7 ræður bót á þessu. Margir eiga vanda til að vefja kylf- unni utan um sig í baksveiflunni og lenda svo í vandræðum í framsveiflunni. Afleiðingin er sveifla sem er allt of flöt, og rífur oft illa í neðstu hryggjarliðina - það þekki ég af eigin raun. Til ráðs er þá annað tveggja, að panta tíma hjá hnykki og láta hann rétta úr hryggnum, eða fara að ráðum Arnars Más í tækniæfingu nr. 4, rétta af sveifluna, fá betri og öflugri sveifluferil og minnka um leið álagið á hryggsúluna. Nú er það alþekkt klisja og stórlega ofnotuð, að hin og þessin bókin „marki tímamót“ í einhverjum skilningi, en í þetta skipti á klisjan fyllilega við rök að styðjast - Betra golf markar hressandi tímamót í íslenskum golfbókmenntum. Hún kostar sem svarar tveim tímum hjá golfkennara og er fyllilega peninganna virði. Eg vona innilega að héðan af verði ekki aftur snúið - tökum nú höndum saman, kylfingar, og látum bók þessa marka farsælt upphaf að fræðandi og skemmtilegum golfbókmenntum á ís- landi. Baldur Hennannsson. golfbílar á frábæru verði. Komið og kynnist EZ-GO golfbílunum okkar TEXTROH G.Á. PÉTURSSON eht. SLÁTTUVÉLA- & SNJÓKEÐJUMARKAÐURINN Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • Pósthólf 8176 128 Reykjavík • Sími 568-5580 • Fax 568-9899 KYLFINGUR 37

x

Kylfingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.