Fréttablaðið - 21.02.2011, Blaðsíða 2
2 21. febrúar 2011 MÁNUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL „Ég gekk inn á
Borgarspítalann, alveg grandalaus,
og útskrifaðist þaðan tæpu ári síðar
í hjólastól.“
Þetta segir Inga Ósk Guðmunds-
dóttir, rúmlega sextug kona sem
kveðst vera „fangi læknamistak-
anna“.
Inga Ósk var á biðlista eftir svo-
kallaðri svuntuaðgerð og var kölluð
inn á Landspítala 8. október 2008.
Aðgerðin átti að minnka umfang
kviðar og tog hans á bakið.
„Mér var sagt að til væri önnur
tegund aðgerðar, svokallað fitusog,
sem væri minna inngrip, með öllu
hættulaus og miklu betri til árang-
urs,“ rifjar Inga Ósk upp.
Hún fór því í fitusogsaðgerð og
var send heim daginn eftir. Tveim-
ur dögum síðar kom hún á bráða-
móttöku vegna kviðverkja, þá
komin með háan hita.
Við rannsókn sást gat á görn,
sem rakið var til fitusogsins, og
var hún skorin upp til að sauma
fyrir það. Þrem dögum síðar þurfi
að skera hana aftur og í kjölfarið
þurfti að gera á henni „fjöldamarg-
ar aðgerðir og skiptingar á kviðar-
holsskurði,“ eins og því er lýst í
skýrslu Sjúkratrygginga Íslands.
Hægðir láku stöðugt í umbúðir á
kvið.
Inga Ósk var fárveik á þessum
tíma, lá á gjörgæslu með sýking-
ar, fór í öndunarbilun, gerður var
barkaskurður, hún var í öndunar-
vél vikum saman og fékk blóðtappa
í fótinn. Um tíma var ástand henn-
ar tvísýnt og bað spítalinn um fund
með fjölskyldu hennar.
Smátt og smátt fór hún þó að
ná sér og var þá flutt á endurhæf-
ingardeild Landspítalans. Þjálfun
þar reyndist erfið, meðal annars
SPURNING DAGSINS
Föst í hjólastól eftir
mislukkað fitusog
Ég er fangi læknamistakanna, segir Inga Ósk Guðmundsdóttir sem ók á eigin
bíl á Landspítalann í október 2008 en er nú bundin í hjólastól eftir mistök í fitu-
sogi. Hún telur 1,3 milljóna bætur smánarlegar og hyggst leita réttar síns.
„Við mat á varanlegri örorku er litið til afleiðinga sjúkratryggingaatburða og
aðstæðna en um er að ræða 62 ára gamla konu sem hefur verið 75% öryrki
frá árinu 1983. Engar fjárhagslegar breytingar hafa því orðið á högum tjón-
þola og telja matsmenn að sjúkratryggingaatburður hafi ekki áhrif á aflahæfi
tjónþola í framtíðinni. Varanleg örorka er því engin.“
Niðurstaða sjúkratrygginga
SVEITARSTJÓRNIR Land sem Hafnar-
fjarðarbær tók eignarnámi í Kap-
elluhrauni í apríl 2008 var 400
milljóna króna virði á þeim tíma,
segja tveir fasteignasalar sem
voru dómkvaddir sem matsmenn
af Héraðsdómi Reykjaness.
Um er að ræða sextán hektara
land sem Skógrækt ríkisins átti
en Hafnarfjarðarbær tók undir
atvinnulóðir. Matsnefnd eignar-
námsbóta taldi landið 600 millj-
óna króna virði. Við það mat
undi Hafnarfjarðarbær ekki og
fékk dómskvadda matsmenn að
málinu. Þeir segja að án skipu-
lagsins, sem bærinn lét vinna
fyrir landið, hefði það verið 340
milljóna króna virði. - gar
Eignarnámsland í Hafnarfirði:
Nýtt mat 50 pró-
sentum lægra
ÞJÓÐKIRKJAN Ríkisstjórnin sam-
þykkti í gær frumvarp Ögmund-
ar Jónassonar innanríkis-
ráðherra til
breytinga á
lögum um
þjóðkirkjuna.
Í því felst að
biskup verði
heimilað að
fela presti að
gegna tíma-
bundið emb-
ætti prests
sem hefur losn-
að af tiltekn-
um ástæðum. Er einkum litið til
þess að um sé að ræða presta-
kall sem kunni að verða samein-
að grannprestakalli á grundvelli
stefnumörkunar kirkjuþings um
framtíðarskipan sókna, presta-
kalla og prófastdæma.
- bþs
Frumvarp um þjóðkirkjulög:
Biskup geti sett
presta í tíma-
bundin störf
NÁTTÚRA Máfar, fýll, súla og aðrir
sjófuglar hafa safnast saman í
þúsunda tali í Grundarfirði og
Kolgrafarfirði. Eins eru háhyrn-
ingar áberandi sem sjómenn telja
að hafi verið hundruðum saman
þegar mest hefur verið undan-
farna daga. Einnig hefur sést til
höfrunga, hrefnu og hnísu.
Þetta mikla dýralíf er að öllum
líkindum vegna þess að bróður-
parturinn af íslensku vorgotssíld-
inni heldur til í Breiðafirði eins og
undanfarin ár.
Starfsfólk Náttúrustofu Vest-
urlands hefur fylgst grannt með
þeim áhrifum sem síldin hefur
á aðrar tegundir og lífshætti
þeirra. Á miðvikudaginn var litið
til hvala stutt frá landi og skammt
frá höfninni í Grundarfirði. Var
fylgst með hópi sjö háhyrninga
sem synti meðfram ströndinni í
kyrru en þungbúnu veðri.
Háhyrningar eru stundum kall-
aðir úlfar hafsins, enda eru þeir
öflug rándýr sem fara víða og
veiða gjarnan í fjölskylduhópum.
Kýrnar geta orðið meira en átta-
tíu ára gamlar og allt að sjö metra
langar en tarfar allt að fimmtíu
ára og tíu metra langir. - shá
Þúsundir fugla og hvala sitja að veisluborði við norðanvert Snæfellsnes:
Síldin glæðir Breiðafjörð lífi
Í GRUNDARFIRÐI Sjófuglar og háhyrningar hafa verið mjög áberandi í Grundar- og
Kolgrafarfirði undanfarið vegna íslensku vorgotssíldarinnar.
MYND/NÁTTÚRUSTOFA VESTURLANDS
LÖGREGLUMÁL Fjórir menn réðust
með exi á mann skammt frá N1
á Selfossi síðdegis á laugardag.
Fórnarlambið slapp með minni
háttar áverka en árásarmenn-
irnir yfirgáfu vettvanginn þegar
fórnarlambið féll í götuna.
Ástæða árásarinnar er talin
hafa verið uppgjör fíkniefna-
skuldar.
Óskað var eftir aðstoð sér-
sveitar Ríkislögreglustjóra við
að leita að mönnunum og hand-
taka. Mennirnir voru hand-
teknir skömmu eftir árásina en
hafa nú verið látnir lausir. Málið
telst upplýst en gögn verða send
ákæruvaldi til að taka afstöðu
um framgang málsins.
- bþh
Sérsveitin leitaði axarmanna:
Fjórir réðust
með exi á mann
MIÐAUSTURLÖND, BBC Óttast er að
yfir 200 manns hafi verið drepnir í
Benghazi í Líbíu þar sem fólk mót-
mælir alræði Muammar Gaddafí
til síðustu 40 ára. Herinn skaut á
líkfylgdir mótmælenda, en 20 voru
drepnir í mótmælunum á laugar-
dag. 900 manns til viðbótar eru
særðir.
Vilja mótmælendur í Líbíu að
Gaddafí fari frá og með honum
öll yfirstjórn landsins. Hann
hefur hins vegar margra ára
reynslu af því að vera útlagi í
alþjóðasamfélaginu og þolir enga
gagnrýni.
Algert fjölmiðlabann hefur verið
sett á í landinu og því hefur reynst
erfitt að staðfesta fréttir þaðan.
Í Barein hörfaði herinn á Perlu-
torgi í höfuðborginni Manama við
mikinn fögnuð mótmælenda. Kon-
ungsfjölskyldan hefur hafið við-
ræður við mótmælendur.
Ástæður þess að yfirvöld í Bar-
ein hafa ákveðið að hörfa er talin
vera mikill þrýstingur að utan. Bar-
ack Obama Bandaríkjaforseti og
William Hague, utanríkisráðherra
Bretlands, hafa verið í sambandi
við konungsfjölskylduna í Barein
og hvatt til friðsamlegra lausna.
Í Barein beinast mótmælin að
ríkisstjórninni og vilja mótmæl-
endur að hún fari frá. - bþh
Yfirvöld í Líbíu og Barein taka ólíka stefnu gagnvart mótmælendum:
Hundruð myrt í Benghazi
Gunnar, dilla bragðlaukarnir
sér á Dilli?
„Já, ef ekki á Dilli, þá hvergi.“
Gunnar Karl Gíslason er matreiðslumeist-
ari á Dilli í Norræna húsinu. Staðurinn
hlaut nýlega tilnefningu sem besta
veitingahúsið á Norðurlöndunum.
Í LONDON Fólk safnaðist saman utan
heimalandsins og mótmælti alræðinu í
Líbíu. NORDICPHOTOS/AFP
vegna þess að enn tæmdust hægðir
í umbúðirnar á maganum. Á endan-
um fór Inga Ósk í enn eina aðgerð-
ina, þar sem hluti af görnunum var
numinn brott. Hún var einnig mikið
veik eftir þessa aðgerð og þurfti
meðal annars að fara í ástungu
vegna vökvamyndunar í brjóstholi.
það var ekki fyrr en 17. júlí 2009
sem hún útskrifaðist frá endurhæf-
ingardeildinni á Grensási.
„Afleiðingar af þessu urðu meðal
annars þær að ég missti minnið að
mestu leyti,“ segir hún. Inga Ósk
var 75 prósent öryrki vegna gigt-
ar áður en hún fór í fitusogið. Á
spítalann ók hún á eigin bíl en er
nú bundin hjólastól. Sjúkratrygg-
ingar töldu hæfilegar bætur henni
til handa 1,3 milljónir króna með
vöxtum. Þær fóru til kaupa á raf-
magnshjólastól og fleiri nauðsyn-
legum hjálpartækjum.
„Þetta er smánarlegt,“ segir Inga
Ósk um bæturnar og hyggst leita
réttar síns. jss@frettabladid.is
FRETTABLADID/GVA
INGA ÓSK GUÐMUNDSDÓTTIR
„Ég er í eðli mínu bjartsýn,“
segir hún. „En vissulega
varpar það skugga á lífið að
vera snögglega kippt út úr
samfélaginu til frambúðar.“
SAMFÉLAGSMÁL Frestur til til-
nefninga til Samfélagsverðlauna
Fréttablaðsins rennur út í dag. Sá
sem hlýtur verðlaunin fær í sinn
hlut eina milljón króna. Í fyrra
komu verðlaunin í hlut Landsbjarg-
ar, sem þá hafði unnið það afrek
að verða fyrst erlendra björgunar-
sveita til Haítí eftir jarðskjálftann
janúar í fyrra. Hægt er að tilnefna
til verðlaunanna á hlekknum www.
visir.is/samfelagsverdlaun, með
tölvupósti á netfangið samfelags-
verdlaun@frettabladid.is og með
því að senda póst til Fréttablaðs-
ins, Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík,
merkt Samfélagsverðlaun. - sh
Samfélagsverðlaunin:
Enn tækifæri
til að tilnefna
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært karlmann á fertugsaldri
fyrir stórfellt fíkniefnasmygl.
Maðurinn, sem er lettneskur rík-
isborgari, reyndi að smygla inn í
landið nær hálfu kílói af mefe-
drone, sem er amfetamínskylt
efni.
Maðurinn kom með flugi frá
Kaupmannahöfn 4. desember
2010. Efnin ætlaði hann til sölu-
dreifingar hér á landi í ágóða-
skyni. Þau hafði hann falið í far-
angri sínum.
- jss
Stórfellt fíkniefnasmygl:
Með hálft kíló
af eiturlyfjum
VERÐLAUNAHAFAR Landsbjörg hlaut
Samfélagsverðlaunin í fyrra.
ÖGMUNDUR
JÓNASSON