Fréttablaðið - 21.02.2011, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 21. febrúar 2011
Í Reykjavík eru 34 frístunda-heimili fyrir börn 6-9 ára. Þau
starfa víðast hvar í skólunum og
starf þeirra hefst þegar stundar-
skrá barnanna lýkur. Í starfsemi
þeirra er gert ráð fyrir 2.600 heils-
dagsplássum. Sérmenntuðu starfs-
fólki á frístundaheimilum fer fjölg-
andi og með aukinni samþættingu
frístunda- og skólastarfs mun
heilsdagsstörfum fjölga.
Langflestir leikskólar í Reykja-
vík eru fjögurra deilda eða minni
og með færri en 80 börn, nokkrir
eru með fleiri en 100 börn og einn
með fleiri en 130 börn. Stjórnendur
í leikskólum eru allir vel menntaðir
og margir með leik- og grunnskóla-
kennaramenntun. Sex leikskólar
hafa þegar verið sameinaðir í tvo
fimm deilda og einn sex deilda.
Vegna barnasprengju vantar á
næsta skólaári 450 leikskólapláss
og um 100 nýja leikskólakennara.
Langflestir grunnskólar í Reykja-
vík (2/3) eru með fjögurhundruð
börn eða færri. Aðeins þrettán
skólar eru með fleiri en fjögur-
hundruð börn og aðeins einn með
fleiri en sjöhundruð börn. Hlutfall
starfsfólks með kennaramenntun
hefur aukist á síðustu árum. Sím-
innkandi skólar ógna aftur á móti
markmiðum um jafnrétti barna til
náms. Engir grunnskólar hafa verið
sameinaðir en Dalskóli er leik- og
grunnskóli þar sem frístundastarf
er samþætt leik og fræðslu með
góðum árangri.
Grunnskólanemendum fækkar.
Síðan 2004 hefur nemendum fækk-
að úr 15.500 í 13.900 (-11%). Á sama
tíma hefur húsnæði grunnskóla
stækkað úr 175 þús. fm í 200 þús.
fm (+14%). Í stað þess að minnka
um 20 þús. fm stækkaði það um 25
þús. fm. Í stað þess að húsnæðis-
kostnaður lækkaði um -8% hækkaði
hann um +30%.
Fækkun nemenda og framúr-
keyrsla vegna harkalegs niður-
skurðar síðustu tvö ár gerir grunn-
skólum nær ómögulegt að mæta
sparnaðaráformum næsta skóla-
árs.
Samantekt:
1. Hægt er að samþætta frí-
stundastarf, leik og fræðslu sbr.
Dalskóla.
2. Skólastjóri getur stjórnað
grunnskóla með meira en 700 börn-
um, án þess að faglegum metnaði
eða farsæld barna sé fórnað.
3. Leikskólastjóri getur stjórnað
leikskóla með meira en 130 börn-
um, án þess að faglegum metnaði
eða farsæld barna sé fórnað.
4. Það vantar pláss fyrir 450 börn
og 100 leikskólakennara næsta
skólaár.
5. Það þarf að losna við rekstur á
um 45 þús. fm af húsnæði í grunn-
skólum.
Það væri mikill ábyrgðarhlutur
gagnvart börnum og útsvarsgreið-
endum að skoða þessi mál ekki sem
heild og kanna að hve miklu leyti
sameiningar skóla eða leikskóla
geta leyst þann vanda sem hér er
lýst.
Enginn efast um fjárhagslegan
ávinning af því að losna við rekst-
ur á 45 þús.fm húsnæði og/eða að
spara sér byggingu á fjórum leik-
skólum með því að nýta þetta hús-
næði fyrir leikskólabörn. Eins sjá
allir að fjárhagslegur ávinning-
ur er af fjölgun nemenda í rekstr-
areiningu, þar sem fjárveitingar
stjórnast af nemendafjölda.
Faglegur ávinningur af stækkun
leikskóla úr 60 nemenda skóla í 100-
120 nemenda skóla eða 300 nem-
enda grunnskóla í 600-700 nemenda
skóla og samþættingu frístunda og
fræðslustarfs, ætti líka að vera aug-
ljós. Fjölgun nemenda þýðir meiri
peninga til skólastarfs, þar með
fleiri starfsmenn með fjölbreyttan
bakgrunn, sem þýðir aukinn fagleg-
an mannauð og aukna möguleika á
fjölbreyttu fræðsluframboði.
Skólar í Reykjavík væru ekki
það sem þeir eru í dag ef skólayfir-
völd borgarinnar hefðu ekki ávallt
haft faglegan metnað að leiðarljósi.
Hversvegna ætti það allt í einu að
breytast?
Staðan í Reykjavík
Skólamál
Stefán
Benediktsson
menntaráðsfulltrúi fyrir
Samfylkinguna
Vegna barna-
sprengju vantar á
næsta skólaári 450 leik-
skólapláss og um 100 nýja
leikskólakennara.
Íslandsbanki | Kirkjusandi | 155 Reykjavík | Sími 440 4900 | vib@vib.is | www.vib.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
1
-0
4
0
2
Skráning í síma 440 4900 og á www.vib.is.
Opinn fræðslufundur VÍB
um helstu breytingar á skattkerfinu
23. febrúar kl. 16.30
hentar öllum sem leita
að bættri heilsu í liðum en kjósa náttúrulegar
lausnir fram yfir lyf m.a. vegna mögulegra
aukaverkana þeirra.
„Ég hef alltaf verið mikið í íþróttum og stundað fjallgöngur undanfarin
ár. Um mitt síðasta sumar fór ég að finna fyrir miklum verkjum í hnjám
og gat ekki stundað göngur eða íþróttir eftir það. Eftir nokkra mánuði
þegar ég hafði náð litlum bata var mér bent á að prófa Regenovex
vörurnar. Eftir einungis u.þ.b. mánaðar notkun fór ég strax að finna mun
á mér og gat farið að stunda hlaup og fjallgöngur á ný. Ég mæli með
að allir þeir sem finna fyrir eymslum í hnjám eða öðrum liðum prófi
Regenovex, það er vel þess virði ef maður getur byrjað að hreyfa sig
á ný.“
Einar Már Aðalsteinsson, 44 ára
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
STÝRÐU UMRÆÐUNNI Í ÁTT TIL ÞÍN
Meiri Vísir.