Fréttablaðið - 21.02.2011, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 21.02.2011, Blaðsíða 12
12 21. febrúar 2011 MÁNUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 HALLDÓR Nýverið var birt skýrsla um Starfsum-hverfiskönnun Landspítala og hefur Landspítalinn lagt sig allan fram við að halda á lofti því litla sem jákvætt er í nið- urstöðunum. Algjörlega hefur hinsveg- ar verið horft framhjá óánægju almennra lækna á Landspítala, sem þó er líkt og rauður þráður í gegnum alla skýrsluna. Í umræddri könnun er vissulega jákvætt að almennir læknar sýna umhyggju og fag- mennsku í starfi. En framþróun og fram- gangur í starfi okkar er hverfandi og við áhrifalítil um ákvarðanir er snerta starfs- svið okkar. Ógnvekjandi er hversu mörg- um almennum læknum þykir Landspítali ekki aðlaðandi vinnustaður sem sést best á því að allt að 85% almennra lækna telja ólíklegt að þeir verði í vinnu þar að tveim- ur árum liðnum. Er þetta til viðbótar við þá 20% fækkun almennra lækna á LSH sem þegar hefur orðið á skömmum tíma. Þegar litið er nánar á líðan í starfi þá telja almennir læknar sig leggja metnað í starf sitt en vinnudagurinn dugi ekki til þess að skila fullnægjandi starfi. Vinnu- álag er allt of mikið og almennir læknar eiga erfitt með að skilja að vinnu og frítíma og njóta þess síðarnefnda. Birtist þetta m.a. í því að allt að 75% almennra lækna sýna streitueinkenni, 90% þreytueinkenni, 50% þjást af andlegri vanlíðan og 60% með líkamleg álagseinkenni. Einnig hafa 20- 35% almennra lækna orðið fyrir niðurlægj- andi framkomu, hótunum eða ofbeldi af hálfu yfirmanns eða starfsmanns á síðustu 12 mánuðum. Nú þegar sjá allir sem sjá vilja að lækna- flótti er brostinn á á Íslandi, sérstaklega meðal almennra lækna og yngri sérfræð- inga. Nú þegar gengur skelfilega að ráða nýja sérfræðilækna á Landspítala. Held- ur einhver að það muni ganga betur þegar 85% almennra lækna hefja sitt sérnám brenndir af vinnuálagi og skilningsleysi á Landspítala? Einkunnarorð og stefna Landspítala eru umhyggja, fagmennska, öryggi og fram- þróun og þetta sýna almennir læknar í sínu starfi og gagnvart sjúklingum þeim er við sinnum. Er til of mikils mælst að vinnuveitandi okkar sýni okkur hið sama? Hvernig líður þér í vinnunni? Nú þegar sjá allir sem sjá vilja að læknaflótti er brostinn á á Íslandi Frummælandi Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra Hádegisfundur Evrópuvaktar Samfylkingarinnar á Kaffi Sólon þriðjudaginn 22. febrúar kl. 12–13. xs.isAllir velkomnir Ó lafur Ragnar Grímsson hefur nú þriðja sinni gengið gegn vilja lýðræðislega kjörins Alþingis og synjað lögum stað- festingar. Icesave-lögunum, sem meira en tveir þriðju- hlutar þingmanna studdu, taldi forseti nauðsynlegt að vísa í þjóðaratkvæðagreiðslu, með rökum sem eru heimasmíðuð á Bessastöðum. Áður en núverandi forseti tók við embætti töldu margir fræði- menn, þar á meðal Ólafur Ragnar Grímsson stjórnmálafræðipróf- essor, að 26. grein stjórnarskrárinnar væri dauður bókstafur; forseti myndi ekki ganga gegn vilja Alþingis. Sumir töldu þó að 26. greinin gæti verið „öryggisventill“, þannig að forsetinn gæti gripið inn í ef þingræðið væri beinlínis hætt að virka og lýðræðið í hættu. Þannig umgengst Ólafur Ragnar hins vegar ekki stjórnarskrárákvæð- ið, heldur virðist hann líta svo á að með því sé einum manni falið að leggja á það sitt persónulega mat, hvort mál eigi að fara í þjóð- aratkvæðagreiðslu eða ekki. Þetta er hæpin túlkun þótt hún kunni að standast bókstaf stjórnarskrárinnar. Og það er hæpið að halda því fram, eins og forsetinn gerði í gær, að það hafi verið einhver þjóðarvilji er lýðveldi var stofnað 1944, að einn maður gæti ákveðið hvort þjóðin ætti að fá að taka beinan þátt í ákvörðunum um löggjöf. Þjóðinni var efst í huga að slíta sambandinu við Dani. Stjórnarskrána, sem smíðuð var með hraði, átti að endurskoða bráðlega. Það hefur enn ekki orðið. Ef það á að verða reglan að forseti geti, samkvæmt sínu persónulega mati, ákveðið að ganga gegn vilja þingsins og vísa málum í þjóðaratkvæðagreiðslu, verða ríkisstjórn og Alþingi að vera undir það búin að fara í samningaviðræður við forsetann, áður en reynt verður að koma umdeildum málum í gegnum þingið. Þar með er hann orðinn pólitískur gerandi, en ekki það sameiningartákn sem fólki fannst einu sinni að forsetinn ætti að vera. Ákvörðun forsetans gerir enn brýnna en áður að setja í stjórnarskrá og lög skýrar reglur um hvenær þjóðaratkvæðagreiðslur skuli fara fram, hverjir geti krafizt þess og hversu margir, hvernig undirskriftasafnanir fara fram og hvers konar mál geta farið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Í flestum ríkjum, þar sem þjóðaratkvæðagreiðslur eru algengar, yrði Icesave-málið til dæmis ekki talið vel til þess fallið að þjóðin greiddi um það atkvæði. Þó er varla við öðru að búast nú en að þjóðin komist að sömu, ábyrgu niðurstöðu og þingið. Áhættan af Icesave-samningnum er einhver. En niðurstaða í dómsmáli getur orðið íslenzkum skattgreiðendum margfalt dýrari en samningurinn. Að þessu sinni eru kostirnir líkast til skýrir, ólíkt því sem var í atkvæðagreiðslunni um Icesave fyrir tæpu ári. Þá lá fyrir að viðsemjendurnir voru reiðubúnir að gera nýjan og hagstæðari samning. Að segja já við gamla samningnum var því í raun ekki valkostur. Nú er afar ósennilegt að nokkur vilji sé til að gera nýjan samning. Valið stendur um samninginn sem fyrir liggur eða dómsmál. Dráttur á niðurstöðu í málinu skaðar íslenzka hagsmuni enn frekar en orðið er. Þjóðaratkvæðagreiðslu á að halda sem fyrst. Í leiðinni má endurtaka kosningu til stjórnlagaþings, sem fær það verkefni að setja skynsamlegar reglur um þjóðaratkvæðagreiðslur. Forsetinn efnir til þjóðaratkvæðagreiðslu. Eins manns mat Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Starfs- umhverfi Ómar Sigurvin meðstjórnandi í Félagi almennra lækna Eyjólfur Þorkelsson formaður Félags almennra lækna Spenna í Sjálfstæðisflokki Forvitnileg staða er komin upp í Sjálf- stæðisflokknum í kjölfar ákvörðunar forseta Íslands um að synja Icesave- lögunum staðfestingar og skjóta þeim þar með í þjóðaratkvæðagreiðslu. Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, studdi Icesave-samninginn á þingi og fékk með þeirri ákvörðun háværan hluta flokksins, sem kenndur er við Davíð Oddsson, upp á móti sér. Þó að Bjarni og forystan í flokknum eigi sér klárlega fjölmarga stuðningsmenn í þessu máli þá er jafn- framt ljóst að hinn hópurinn er stór. Slagur í vændum Vænta má að forysta Sjálfstæðis- flokksins muni eftir sem áður mæla fyrir samþykkt Icesave-samningsins í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðsl- unnar. Jafnframt er viðbúið að andstæðingar samningsins innan flokksins muni beita sér af fullu afli gegn samþykkt. Það verður með öðrum orðum lítill friður innan flokks- ins á næstu vikum. Þá er allsendis óvíst hvort formaðurinn lendir standandi eða skaddaður. Mikið undir hjá Stein- grími Bjarni Benediktsson er þó alls ekki eini stjórnmálamaðurinn sem er í vanda í aðdraganda þjóðaratkvæða- greiðslunnar. Því hefur ítrekað verið lýst yfir að ólíklegt verði að teljast að Bretar og Hollendingar fáist til að setjast aftur við samningaborðið hafni þjóðin fyrirliggjandi samningi. Fari svo blasir því dómsmál við. Þjóðin væri með þeirri ákvörðun því í raun að hafna alfarið þeirri samningaleið sem ríkisstjórnin hefur farið í málinu og Steingrímur J. Sigfússon hefur borið þungann og hitann af. Staða Steingríms og raunar stjórnar- innar allrar yrði því sennilega veikari en nokkru sinni fyrr segi þjóðin einfaldlega nei. magnusl@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.