Fréttablaðið - 21.02.2011, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 21.02.2011, Blaðsíða 34
18 21. febrúar 2011 MÁNUDAGUR BAKÞANKAR Júlíu Margrétar Alexanders- dóttur 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. fjötur, 6. klafi, 8. púka, 9. ar, 11. org, 12. mokuðu, 14. dá, 16. ekki, 17. op, 18. angan, 20. guð, 21. klúryrði. LÓÐRÉTT 1. plan, 3. í röð, 4. svölunar, 5. ósigur, 7. flík, 10. sönghús, 13. starfsgrein, 15. eining, 16. trjátegund, 19. hef leyfi. LAUSN LÁRÉTT: 2. haft, 6. ok, 8. ára, 9. ryk, 11. óp, 12. grófu, 14. trans, 16. ei, 17. gat, 18. ilm, 20. ra, 21. klám. LÓÐRÉTT: 1. torg, 3. aá, 4. fróunar, 5. tap, 7. kyrtill, 10. kór, 13. fag, 15. stak, 16. eik, 19. má. Ég kenndi van Gogh að mála, það virtist fara inn um annað eyrað og ... hmmm... Vertu svolítið vakandi í kvöld Jói! Ha? Takk fyrir ábending- una! Ekki málið! Sæl vertu frú mín góð. Nei komdu sæll Pierce. Hvernig hefur sum- arið þitt verið? Frábært! Engin handtaka eða dómur enn sem komið er! Ég elska þetta augnablik óákveðni þegar þau geta ekki ákveðið hvort þau eigi að hlæja eða öskra. Af hverju kveikirðu ekki bara ljósið einu sinni? Það er allt í lagi með Lóu en mig vantar íspoka, plástur og ökklahlíf.Ég skal ná í hana. Til greina koma allir sem hafa lagt umtalsvert af mörkum til að bæta íslenskt samfélag. Skorað er á lesendur Fréttablaðsins að senda inn tilnefningar um fólk og félagasamtök sem eiga skilið virðingarvott fyrir verk sín. Allir koma til greina, jafnt óþekktir einstaklingar sem vinna störf sín í hljóði, félagasamtök og þjóðþekktir karlar og konur sem hafa með gjörðum sínum og framgöngu verið öðrum fyrirmynd. Hvunndagshetjan Einstaklingur sem sýnt hefur sérstaka óeigingirni eða hugrekki, hvort sem er í tengslum við einn atburð eða með vinnu að ákveðnum málaflokki í lengri tíma. Frá kynslóð til kynslóðar Hér koma til greina kennarar, leiðbeinendur, þjálfarar eða aðrir uppfræðarar sem skarað hafa fram úr á einhvern hátt. Einnig koma til greina félagasamtök sem sinna börnum af sérstökum metnaði og alúð. Til atlögu gegn fordómum Einstaklingur eða félagasamtök sem hafa unnið ötullega að því að eyða fordómum í samfélaginu. Heiðursverðlaun Einstaklingur sem með ævistarfi sínu hefur stuðlað að betra samfélagi. Samfélagsverðlaunin Félagasamtök sem hafa unnið framúrskarandi mannúðar- eða náttúruverndarstarf og lagt sitt af mörkum til að gera íslenskt samfélag betra fyrir okkur öll. HEFUR ÞÚ ORÐIÐ VITNI AÐ ÓSKAÐ ER EFTIR TILNEFNINGUM TIL SAMFÉLAGS- VERÐLAUNA FRÉTTABLAÐSINS 2011 GÓÐVERKI? SAMFÉLAGSVERÐLAUN FRÉTTABLAÐSINS ERU VEITT Í FIMM FLOKKUM. 1 2 3 4 5 SAMFÉLAGSVERÐLAUN Sendið tilnefningar á hlekknum Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins á visir.is/samfelagsverdlaun, með tölvupósti á netfangið samfelags- verdlaun@frettabladid.is, eða bréfleiðis merkt: Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins, Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík. Dómnefnd tekur allar innsendar tillögur til skoðunar. Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins verða veitt í apríl. að senda t ilnefninga r er til miðn ættis þann Frestur til 21. febrúa r SUMARIÐ 1986 var blöðungi dreift í húsin á Fáskrúðsfirði og við vinkonurnar á Hlíðargötu vorum eflaust þær fyrstu af rúmlega sjö hundruð íbúum til að kippa honum úr lúgunni. Við vorum tvær saman alla daga og á morgnana gegndum við léttum skylduverkum meðan mamma hennar vann á leikskólanum. Gáfum litl- um dreng kókómjólk að drekka, bjuggum um rúmin og vöskuðum upp. Eftir hádegi hentumst upp á fjall eða niður í fjöru, skutumst út á vídeóleigu fyrir Valda í Sandbrekku og dóluðum okkur í Sigga- sjoppu. Það var ekki fyrr en nokkrum sumrum síðar sem maður gekk um með hálsklút og smurði tannkremi á hálsinn til að afmá sogbletti. Auð- vitað var einhver í þorpinu fljótlega búinn að spotta blettinn og hringja niður í Kaupfélag til að láta foreldrið vita að dóttirin og vinkonan væru með „klútana í dag“. ÉG HAFÐI búið nokkur ár á Fáskrúðs- firði. En eftir að ég flutti til Reykja- víkur fékk ég að fara þangað á sumrin og dvelja þar hjá góðu fólki. Ég naut þess í botn og leið stundum eins og stjörnu sem kom allra náðarsamlegast heim í gamla þorpið á sumr- in. Íbúarnir stoppuðu mig úti á götu, spurðu frétta af for- eldrum mínum. Veiga í Ástúni og Odda á Holti buðu mér í fína kvöldverði og kaffi- boð með silfurbúnað og postulín á borð- um og töluðu við mig eins og fullorðna meðan þær báru í mig höfðinglegar steik- ur, kakó og kleinur. Ég sá að það kom sér miklu betur að vera laus við foreldrana á svona stað; en auðvitað eru Austfirðingar einstakir; ég fyllist alltaf trú á mannkyn- ið þegar ég heyri einhvern segja gæskan. EN AFTUR að blöðungnum. Brátt yrði dvalar- og elliheimili á Fáskrúðsfirði til- búið, í ofanverðum bænum yrði það form- lega opnað árið eftir. Ákveðið hafði verið að efna til samkeppni þar sem íbúum gafst kostur á að nefna heimilið og mátti hver íbúi senda inn eins margar hug- myndir og hann lysti. Við vinkonurnar lögðum nótt við dag og krotuðum niður elliheimilanöfn í kílóavís. Því fleiri smelli sem við ættum í pottinum – því meiri líkur hlytu að vera á vinningssætinu. EÐA EKKI. Elliheimilið fékk ekki nafn- ið Regnbogaland, Endastöð, Ellilaunin, Fáskrúðsfjör né Forneskjuhöllin. Upp- salir skyldi það heita – ágætis kennslu- stund í að stundum eru það gæðin en ekki magnið sem skiptir máli. Ef einhvers staðar vantar hins vegar nafn á dvalar- heimili fyrir aldraða um þessar mundir er Gleym-mér-ei kannski pæling. Elliheimilið á Fáskrúðsfirði

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.