Fréttablaðið - 21.02.2011, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 21. febrúar 2011 11
Borgun er eina fyrirtækið á landinu sem býður
heildarlausn í færsluhirðingu. Fyrirtæki sem
eru með öll kortaviðskipti hjá Borgun njóta
betri kjara og fá betri yfi rsýn yfi r tekjur með
einu uppgjöri fyrir öll kortaviðskipti.
Hjá Borgun ertu með allt á einum stað.
FRÉTTASKÝRING
Hafa ráðherrar sagt af sér eftir að
dómar hafa gengið gegn ákvörðunum
þeirra?
Spjót hafa staðið á Svandísi Svavars-
dóttur umhverfisráðherra eftir
hæstaréttardóm sem gekk henni í
mót á dögunum. Þar var ákvörðun
hennar um að samþykkja ekki þann
hluta aðalskipulags Flóahrepps er
varðar væntanlega Urriðafossvirkj-
un, ógilt. Ýmsir hafa kallað eftir
afsögn Svandísar, en hún hefur sjálf
neitað því að um sé að ræða áfellis-
dóm yfir henni og hyggst sitja sem
fastast á stóli. Sömuleiðis hefur for-
sætisráðherra lýst yfir stuðningi við
Svandísi og telur málið ekki kalla á
afsögn.
Nokkur dæmi eru um að dómar
hafi gengið gegn ákvörðun ráð-
herra án þess að hafa orðið til þess
að viðkomandi hafi þurft að segja af
sér embætti.
Til dæmis féll dómur í Hæsta-
rétti árið 2005, gegn embættisfærsl-
um Árna Magnússonar, þáverandi
félagsmálaráðherra, eftir að hann
vék Valgerði Bjarnadóttur úr emb-
ætti framkvæmdarstýru Jafnréttis-
stofu.Dómurinn taldi ráðherra hafa
vanvirt meðalhófsreglu auk þess
sem hann hafi með framferði sínu
miðað að því að „komast hjá [því] að
fylgja lögboðinni málsmeðferð“.
Ríkið var dæmt til greiðslu skaða-
bóta að upphæð sex milljónir króna,
en Árni sat í ráðherrastóli fram á
næsta ár þegar hann hætti í stjórn-
málum af eigin hvötum.
Lögfræðingurinn Arnar Þór
Stefáns son hefur kynnt sér þess
konar mál og ritaði meðal annars
grein í Úlfljót um ógildingu stjórn-
valdsákvarðana. Hann segir enga
hefð fyrir afsögn ráðherra í þessum
efnum.
Spurningin um ábyrgð ráðherra
snýst fyrst og fremst um að greina
á milli pólitískrar ábyrgðar og laga-
legrar. Engu að síður er það líka
matsatriði hvenær ráðherra hefur í
raun farið svo á skjön við
lög að hann beri skýra
lagalega ábyrgð.
Trausti Fannar
Valsson, lektor í
stjórnsýslurétti við
lagadeild Háskóla
Íslands, segir í sam-
tali við Frétta-
blaðið að ekki
sé óeðlilegt að
ráðherrar reki
mál fyrir dóm-
stólum til að leysa úr vafa á laga-
túlkun.
„Stjórnvöldum er falið að fram-
fylgja lögum, en í sumum málum
getur komið upp vafi um túlkun.
Að láta reyna á slíkt fyrir dómstól-
um er á engan hátt ómálefnalegt af
hendi stjórnvalda. Í flestum tilfell-
um er hins vegar mjög fjar-
lægt að ráðherra beri
lagalega ábyrgð á slíku,
nema ef talið sé að ráð-
herra hafi ef til vill mis-
beitt valdi sínu með því
að knýja á um
einhverja með-
ferð máls fyrir
dómstólum.“
thorgils@
frettabladid.is
Enginn ráðherra sagt af sér
eftir að hafa tapað dómsmáli
Ekki er hefð fyrir því að ráðherrar segi af sér þrátt fyrir að dómstólar hafi úrskurðað ákvarðanir þeirra
ógildar. Ábyrgð ráðherra snýst fyrst og fremst um hvort um pólitíska eða lagalega ábyrgð sé að ræða.
ÁRNI
MAGNÚSSON
SVANDÍS
SVAVARSDÓTTIR
FORSTJÓRI ÖSSURAR Danski sjóðurinn
William Demant mátti auka við hlut sinn
í stoðtækjafyrirtækinu Össuri.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VIÐSKIPTI Danski sjóðurinn William
Demant er ekki skyldur til að
leggja fram yfirtökutilboð í stoð-
tækjafyrirtækið Össur, samkvæmt
upplýsingum úr Fjármálaeftirlit-
inu. Sjóðurinn jók við hlut sinn í
Össuri í síðustu viku og nam eign
hans eftir kaupin 39,6 prósentum.
Yfirtökuskyldu var nýlega breytt.
Hún miðast við 30 prósenta hluta-
fjáreign í skráðu félagi og má sá
sem á yfir eignamörkum ekki bæta
við eign sína. Í athugasemdum við
breytinguna er miðað við hluta-
fjáreign 1. apríl í hittifyrra. Willi-
am Demant Holding átti þá 39,88
prósent í Össuri og voru viðskiptin
því innan marka. - jab
Hlutabréfakaupin í góðu lagi:
Eigandinn var
innan marka