Fréttablaðið - 21.02.2011, Page 16
21. febrúar 2011 MÁNUDAGUR16
Salvör Gissurardóttir,
lektor við Menntavísinda-
svið Háskóla Íslands, flytur
erindi í málstofu aðalbygg-
ingar Kennaraháskólans
við Háteigsveg í hádeginu á
morgun, á vegum Rannsókn-
arstofu í upplýsingatækni og
miðlun.
Erindið er um þekkingar-
sköpun og samvinnuskrif í
alfræðiritinu Wikipedia í
myndefni, textum og tengl-
um. Fjallað verður um þróun
Wikipedia á þeim áratug
sem liðinn er frá því að vef-
urinn var stofnaður 15. jan-
úar 2001. Wikipedia verður
skoðuð út frá menningar-
og sögulegri starfsemis-
kenningu. Skoðuð verður
þróun og samspil Wikipedia
og samfélags þeirra sem
leggja inn efni, verkfæra og
reglna.
Fyrirlesturinn hefst
klukkan 12 á hádegi og
stendur í klukkustund.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja
í síma
512 5000.
timamot@frettabladid.is
Siglingafélagið Brokey hefur verið
starfrækt í 40 ár. Kristján S. Sigur-
geirsson formaður segir starfið hafa
sótt í sig veðrið.
„Við erum á fljúgandi siglingu.
Bæði félögum og keppendum hefur
fjölgað hjá okkur og við þökkum það
fyrst og fremst þjálfurunum okkar,“
segir Kristján en Brokey er eina sigl-
ingafélag landsins með sérmenntaða
siglingaþjálfara. „Brokey er íþrótta-
félag og fyrir þremur árum send-
um við tvo félagsmenn til Bretlands
í United Kingdom Sailing Academy.
Árangurinn lét ekki á sér standa en
á þessu ári voru meðal annars strák-
ur og stelpa úr kænudeild Brokeyjar
valin siglingamaður og siglingakona
ársins af Siglingasambandinu. Þau
eru einnig íslandsmeistarar í tveim-
ur flokkum og við erum mjög stolt af
því. Foreldrar hafa einnig tekið virk-
an þátt í starfi félagsins og hér vinn-
ur fjöldi manns óeigingjarnt starf í
sjálfboðavinnu.“
Starf félagsins skiptist í tvær deild-
ir, kænudeild og kjölbátadeild. Kænu-
deildin er til húsa við Nauthólsvík og
þar fara fram siglinganámskeið og
æfingar fyrir krakka og unglinga á
aldrinum 10 til 16 ára. Kjölbátadeild-
in hefur aðstöðu á Ingólfsgarði og þar
fara fram æfingakeppnir á þriðju-
dögum yfir sumarmánuðina. Félagið
stendur einnig fyrir fjölda móta.
„Í kjölbátadeildinni eru eldri félag-
arnir. Þriðjudagskeppnin er elsta og
lengsta siglingakeppni á landinu en
við keppum á hverjum þriðjudegi allt
sumarið og verðlaun veitt í lok sum-
ars. Þriðjudagskeppnin er líming-
in í starfi félagsins en alls eru þetta
20 keppnir, 7 til 8 skútur sem keppa í
hvert sinn og hátt í 30 til 45 manns,“
útskýrir Kristján og segir oft glatt
á hjalla eftir keppnir. „Menn metast
um árangurinn þegar komið er í land
og oft munar bara nokkrum sekúnd-
um milli skúta. Þetta geta verið mjög
spennandi keppnir.“
Brokey hefur aðstöðu á þremur
stöðum í bænum. Við Nauthólsvík, á
Ingólfsgarði við Reykjavíkurhöfn og
í Gufunesi. Kristján segir aðstöðuna
þurfa að bæta í takt við aukna ásókn
í félagið.
„Byggingaframkvæmdirnar við
Hörpu hafa þrengt að okkur en Ing-
ólfsgarðurinn er þó besti staðurinn til
að vera á. Við erum að vona að á 40
ára afmælinu fáum við að byggja betri
aðstöðu en tillagan bíður afgreiðslu
hjá borgarskipulagi. Húsnæðið í Naut-
hólsvík hefur verið lagfært og við
erum þokkalega ánægð þar.“ Spurður
um hátíðahöld í tilefni 40 ára afmælis-
ins segir Kristján að haldið verði upp
á það í sumar. heida@frettabladid.is
SIGLINGAFÉLAGIÐ BROKEY: FAGNAR FJÖRUTÍU ÁRUM
Starfið á fljúgandi siglingu
LÍFLEGT OG SKEMMTILEGT STARF Kristján S. Sigurgeirsson er formaður Siglingafélagsins Brokey
en félagið var stofnað þennan dag árið 1971. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi
Sigurður Sverrir
Einarsson
Vatnsnesvegi 29, Keflavík,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn
11. febrúar, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju
þriðjudaginn 22. febrúar kl. 13.00.
Sigurður Júlíus Sigurðsson Marta V. Svavarsdóttir
Helga Ellen Sigurðardóttir Benjamín Guðmundsson
Ólafía Þórey Sigurðardóttir Hallgrímur I. Guðmundsson
Ásta Rut Sigurðardóttir Þórhallur Sveinsson
Pálína Hildur Sigurðardóttir Rafnkell Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Dettifossi, skipi Eimskipafélags Íslands, var
grandað af þýskum kafbáti norður af Írlandi
21. febrúar 1945. Þrjátíu manns var bjargað en
fimmtán fórust.
Þó að styrjöldinni hafi verið að ljúka um
þetta leyti voru enn einhverjir kafbátar á sveimi
um Atlantshafið. Því var varinn hafður á þegar
Dettifoss lagði úr höfn í Belfast á Írlandi til
Íslands. Skipið slóst í för með skipalest sem var
í fylgd herskipa.
Kafbátur skaut tundurskeyti að Dettifossi 21.
febrúar klukkan 8.29 skaut og tók skipið þegar
að sökkva. Um borð voru 45 manns, þar af 15
farþegar og flestir í koju. Lítið ráðrúm gafst til
að athafna sig en skipið sökk hratt, á fimm til
sjö mínútum. Einn björgunarbátur komst á flot
og tveir flekar. Illt var í sjóinn og ekki náðist til
allra sem sáust á sundi. Klukkustund leið áður
en björgunarskipið Fusilier kom á staðinn og
bjargaði þeim sem komust í björgunarbátinn.
Skipstjóri á Dettifossi var Jónas Böðvarsson.
Heimild: Ísland í aldanna rás.
ÞETTA GERÐIST: 21. FEBRÚAR 1945
Dettifossi sökkt af þýskum kafbáti
SKOÐAR WIKIPEDIU Salvör
Gissurardóttir verður með
hádegisfyrirlestur í Kennara-
háskólanum á morgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Wikipedia skoðuð
eftir áratug
Niðurstöður rannsóknar á
viðhorfum og reynslu flótta-
barna hérlendis verða kynnt-
ar í húsnæði Odda á morgun.
Guðbjörg Ottósdóttir,
félagsráðgjafi og Phd. nemi
í Human Geography í Uni-
versity of Reading, og Hel-
ena N. Wolimbwa, félags-
ráðgjafi í Þjónustumiðstöð
Vesturgarðs, gerðu rann-
sóknina. Markmið hennar var
að kanna félagslega stöðu og
líðan flóttabarna frá þeirra
eigin sjónarhorni.
Fyrirlesturinn hefst klukk-
an 12.10 í stofu 201 í Odda.
Það er Málstofa Félags-
ráðgjafardeildar og Rann-
sóknasetur í barna- og fjöl-
skylduvernd sem stendur að
fyrirlestrinum. - jma
Aðlögun flóttabarna á Íslandi
AÐLÖGUN FLÓTTABARNA Margir þættir skipta máli við aðlögun flóttabarna að íslensku samfélagi, þar á
meðal færni í tungumálinu og viðhorf samfélagsins.
Tónlistarskóli Árnesinga
verður með Valtónleika
vegna Nótunnar, uppskeru-
hátíðar tónlistarskólanna,
í dag klukkan 18 í sal skól-
ans að Eyravegi 9 á Sel-
fossi. Á þessum tónleikum
verða valin atriði til þátt-
töku á svæðisbundnum hluta
hátíðarinnar.
Aðgangur er ókeypis og
öllum opinn.
Uppskeruhátíð tónlistar-
skólanna fer fram í þrem
hlutum, það er innan hvers
skóla, á svæðisbundnum
tónleikum 12. mars og
loks á lokatónleikum
Nótunnar laugardaginn 26.
mars í Langholtskirkju í
Reykjavík.
Uppskeruhátíð
tónlistarskóla
NÓTAN UPPSKERUHÁTÍÐ
Valtónleikar í Tónlistarskóla
Árnesinga klukkan 18 í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
JÓN BALDVIN HANNIBALSSON , fyrrverandi sendiherra, er 72 ára í dag
„Frelsið er æðsta gildið því að án þess glata önnur gildi merkingu sinni.“
72