Fréttablaðið - 21.02.2011, Blaðsíða 46
30 21. febrúar 2011 MÁNUDAGUR
Gunnar Hilmarsson, annar eigenda
Andersen & Lauth, segir fyrirtæk-
ið hafa blásið til sóknar á erlendri
grundu undanfarna mánuði. Hann
hefur sótt fjölda erlendra sölusýn-
inga það sem af er árinu og segir
viðtökurnar hafa verið góðar.
Frá því í janúar hefur Andersen
& Lauth tekið þátt í sölusýningum
og tískuvikum í Berlín, París, Kaup-
mannahöfn, Stokkhólmi, Madríd,
Amsterdam og London og að sögn
Gunnars er stefnan tekin á tískuvik-
una í Mílanó síðar í febrúar. Hann
segir fyrirtækið hafa verið í hröð-
um vexti undanfarna mánuði og sér
fram á bjarta tíma. „Við erum búin
að vera á fullu upp á síðkastið við
að sýna á hinum ýmsu tískuvikum
og þetta er búið að ganga mjög vel,“
segir Gunnar sem var staddur á
tískuvikunni í London þegar blaða-
maður náði af honum tali.
Að hans sögn varð minna um
tækifæri innan tískubransans eftir
að heimskreppan skall á en að nú
sé líf farið að glæðast í hann að
nýju. „Við ákváðum að keyra svo-
lítið á þetta núna þar sem kreppan
er aðeins farin að hjaðna. Ég reikna
með að nýja línan verði seld í um
500 verslunum um allan heim, allt
frá Rússlandi til Sádi-Arabíu og allt
þar á milli. Merkið hefur dafnað
vel og við erum auðvitað hrikalega
ánægð með það,“ segir hann.
Aðspurður segir Gunnar að síð-
ustu sölusýningunni ljúki um miðj-
an mars og að þá muni hann hefjast
handa við að hanna næstu vorlínu.
„Sýningunum lýkur um miðjan
mars og þá hefjumst við handa við
að teikna vorlínu fyrir árið 2012.
Við þurfum helst að klára það fyrir
lok marsmánaðar þannig það er
aldrei frí í þessum bransa,“ segir
Gunnar að lokum og hlær. - sm
BESTI BITINN Í BÆNUM
„Besti bitinn sem ég fæ er allt
sem Rósa Birgitta í Feldberg
eldar. Hún býr líka til alveg
snilldar salat-dressingu.“
Ásgrímur Már Friðriksson, hönnuður og
leikstjóri.
„Þetta er auðvitað draumur fyrir
mig, strák frá Tromsö, að vera kom-
inn á þennan stað. Tónlistin er hins
vegar þannig að hún fjarlægir öll
landamæri og það spyr mig enginn
hvaðan ég sé. En auðvitað finnst
mér ég vera mjög heppinn og raun-
ar ofdekraður að vera að vinna með
slíku hæfileikafólki,“ segir Ámundi
Björklund, annar helmingur höf-
undarteymisins Espionage. Tvíeyk-
ið hlaut Grammy-verðlaunin fyrir
lagið Hey, Soul Sister ásamt Patrick
Monahan, söngvara Train, en lagið
sló algjörlega í gegn vestanhafs,
smáskífan seldist í fimm milljón-
um eintaka og var mest selda lagið
á I-tunes árið 2010.
Íslendingar geta gert töluvert til-
kall til Ámunda því móðir hans er
Nanna Hauksdóttir og sjálfur talar
hann ágætis íslensku. „Ég reyni að
koma mjög reglulega til Íslands,
að minnsta kosti annað hvert ár.
Ég á mjög stóra móðurfjölskyldu
á Íslandi sem mér þykir mjög
vænt um og reyni að hitta. Ég kom
reyndar í tvígang í fyrra og það er
í plönunum hjá mér að koma núna
í sumar.“
Ámundi byrjaði að semja lög
fyrir einum þrettán árum og kynnt-
ist þá Espen Lind, hinum helmingi
Espionage. Þeir tveir fóru að semja
fyrir aðra listamenn í Noregi og
færðu síðan út kvíarnar til Bret-
lands. Stóra tækifærið kom hins
vegar árið 2006 þegar þeir sömdu
slagarann Irreplaceable sem Bey-
oncé Knowles gerði hrikalega vin-
sælt. Lagið sat í efsta sæti Billboard
Hot 100 í tíu vikur samfleytt og var
best selda smáskífan í Bandaríkjun-
um árið 2007. „Það lag gerði okkur
kleift að flytjast út til New York þar
sem við höfum verið síðustu fjög-
ur ár,“ segir Ámundi en Espionage
hefur hlotið fjölmörg BMI-verðlaun
sem eru verðlaun lagahöfunda í
Bandaríkjunum.
Ámundi er nú staddur í Texas
þar sem hann er að semja nýtt efni
ásamt kántrí-stjörnunum í Dixie
Chicks. Það fari hins vegar eftir
listamanninum í hversu miklu
návígi lögin séu samin. „Eins og
með laginu hennar Beyoncé þá skil-
uðum við því bara af okkur til henn-
ar og hún síðan söng það. Hey Soul
Sister er hins vegar samið í nánu
samstarfi með Pat Monahan enda
er hann frábær lagahöfundur.“
ÁMUNDI BJÖRKLUND: MÉR FINNST ÉG VERA MJÖG HEPPINN
Íslendingur fékk Grammy
fyrir metsölulag með Train
BÚSETTIR Í NEW YORK Ámundi (t.v) og
Espen Lind í London árið 2008 þegar þeir
fengu verðlaun fyrir besta lag ársins á
BMI-verðlaunahátíðinni. Ámundi segist
koma reglulega til Íslands enda eigi
hann móðurfjölskyldu sem honum
þyki mjög vænt um. Ámundi er
búsettur í New York og hefur unnið
með stórstjörnum á borð við
Beyoncé og er nú að semja nýtt
efni með Dixie Chicks.
NORDIC PHOTOS/GETTY
SLÆR Í GEGN Gunnar Hilmarsson hjá
Andersen & Lauth hefur sótt fjöldann
allan af sölusýningum það sem af er
árinu. Hönnun fyrirtækisins verður að
öllum líkindum seld í um 500 verslun-
um um heim allan.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR BIRKISSON
Selja föt sín í 500 verslunum um allan heim
Ámundi er hálfur Íslendingur og er
sonur Nönnu Hauksdóttur sem er
aðstoðardeildarstjóri heilbrigðisdeildar
háskólans í Tromsö. Nanna hefur verið
búsett í Tromsö síðustu fjörutíu árin en
heldur góðu sambandi við Ísland. „Ég
er auðvitað alveg ótrúlega montin af
honum og stolt,“ segir Nanna í samtali
við Fréttablaðið. Hún segir Ámunda
skilja íslensku mjög vel en hann tali
hana lítið. „Ég talaði alltaf við hann á
íslensku þegar hann var lítill.“
HVAÐ SEGIR MAMMA?
auglýsir eftir tilnefningu félagsmanna vegna kjörs í
trúnaðarstöður félagsins fyrir starfsárin 2011 til 2014.
Félagsmenn geta gert tillögu um stjórnarmenn og
verða að minnsta kosti 25 félagsmenn að standa að
tillögu um hvern stjórnarmann.
Allar tillögur skulu vera skriflegar og berast kjörstjórn
félagsins a.m.k. þremur vikum fyrir aðalfund þ.e.
fyrir 3. mars nk.
Stjórn félagsins skal skipuð sjö félagsmönnum,
formanni og sex meðstjórnendum, auk tveggja til vara.
Stjórnarmenn skulu kosnir til þriggja ára í senn. For-
mann skal kjósa sérstaklega. Stjórnin kýs úr sínum
hópi varaformann, ritara og gjaldkera.
Aðalfundur félagsins verður 24. mars nk. á Akureyri og
hefst kl. 17:30.
KJÖLUR
stéttarfélag
starfsmanna í
almannaþjónustu
Auglýsingasími
„Maður er bara mjög ánægður, ekkert annað hægt,“
segir Þórir Snær Sigurjónsson, framleiðandi hjá
ZikZak. Fyrirtækið var tilnefnt til 31 Eddu í ár og fór
heim með ellefu á laugardagskvöldið, sex fyrir Brim
en fimm fyrir The Good Heart.
Það stefndi strax í mikla baráttu milli myndanna
tveggja og flestir í salnum hafa eflaust verið reiðu-
búnir að veðja einhverjum krónum á það að nafn The
Good Heart myndi koma upp úr umslaginu hjá iðnað-
arráðherra þegar tilkynna átti um kvikmynd ársins.
Enda var Dagur Kári búinn að hirða verðlaun fyrir
bæði besta handrit og leikstjórn og hafði þar að auki
hlotið Edduna fyrir tónlistina í Brim. En það var nafn
Brim sem kom upp úr hattinum.
„Ég held að allir hafi bara verið mjög sáttir við
skiptinguna, allavega voru þeir Dagur og Árni sáttir.
Þetta var bara gott kvöld, við áttum þarna notalega
kvöldstund og þetta hús íslensku óperunnar var
klæðskerasniðið fyrir athöfn eins og þessa.“ - fgg
Getum vel við unað
STOLTIR AF SÍNUM Þórir Snær og Skúli Malmquist frá ZikZak
tóku við Eddunni fyrir kvikmynd ársins ásamt leikstjóranum
Árna Ólafi Ásgeirssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Það var fast skotið á RÚV á Edd-
unni en ríkisapparatið getur
gengið nokkuð sátt frá borði
þegar verðlaunin eru skoð-
uð. Þannig
var Landinn
valinn besti
frétta- eða
viðtalsþáttur
ársins og
Gísli Einars-
son sjón-
varpsmaður
ársins. Fagur
fiskur í sjó
var lífsstíls-
þáttur ársins
og Þóra
Arnórsdóttir
var kjörin
vinsælasti
sjónvarps-
maðurinn í
netkosningu.
Ekki má
heldur gleyma sigri Björg-
vins Franz Gíslasonar og
Stundarinnar okkar sem
sló sjálfum Sveppa við.
Og það var
kannski fleira
sem kom á
óvart því það
voru gamlir
Rúvarar sem
fóru með sigur af
hólmi í flokknum
skemmtiþáttur
ársins. Spaug-
stofan kom, sá
og sigraði fyrir
þættina á Stöð 2
og hafði þannig
betur gegn bæði
Ameríska draumn-
um og Loga í beinni.
- fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI