Barnablaðið - 01.04.1951, Page 7

Barnablaðið - 01.04.1951, Page 7
BARNABLAÐIÐ 5 með alldrengilegu móti, en þegar bardagamóðurinn kom á lierina, og drengirnir fóru að reiðast, þá var hætt að hugsa um vægð eða hvar liöggin hittu andstæðinginn, nú var það stríð. í óvinaherbúðunum var það meiningin, að reyna að ná Axel til fanga, því að liann var foringinn fyrir andstæðingunum. Axel lenti því nokkru seinna í bai'daga einn móti þremur öðrum drengjum, og hann bar brátt lægri hlut fyrir ofur- eflinu, og nú langaði óvinina að taka hann til fanga, en borið hann gátu þeir ekki, til þess var Axel alltof sterkur, það vissu þeir, hann mundi verja sig, þeir reyna nú samt að ráðast á hann, en hann verst af mesta dugnaði, og bardag- inn færist fram og til baka, en smátt og smátt minnkar stríðsæsingurinn, og þegar allt er orðið með kyrrum kjörum aftur, sér Axel að hann er allur marinn og skrámaður, hann reynir að berjast gegn grátinum, sem á hann sækir, en honum tekst það ekki, tárin renna í stríðum straumum niður kinnar hans, hann giætur alveg án þess að gefa því gaum, að ■ í kringum hann standa bæði ,vinir og „óvinir", og horfa á iliann, drengirnir sem höfðu barizt . á móti honum, sjá nú að þeir hafa veyið alltof harðhentir við hann, og biðja hann auðmjúklega fyrirgcfn- • ingar, fþað var fallega gert af þeim, ekki satt?), nú vilja drengirnir að allt verði gott á ný, og vissulega fyr- irgefur Axel þeim, hann hafði jú líka átt sök á þessu. En um kveldið, þegar Axel háttar, er hann allur skrámaður á skrokknum, jæja, hugs- aði liann, það var gott að mamma og pabbi vissu ekki af þessu, það hefði valdið þeim leiðindum. ('Framhald). Sagan af Jónasi . spámanni Mest af þeim sögum og ævintýr- um, sem við lesum eða heyrum, ger- ast á yfirborðinu, annað hvort á sjó eða landi. En gaman' væri fyrir börnin að lesa um eitthvað af því, sem gjörist eða hefur gerzt undir yfirborðinu, til dæmis niður í sjónum. í Biblíunni er sagt frá manni, sem komst í undraverða reynslu, einmitt niðri í sjónum. Það er líka svo gott, að við getum treyst því að það, sem við lesum í Biblíunni, er alveg satt, og það hefur í raun og ‘veru gerzt. Biblían er nefnilega Bókin, sem Guð sjálfur hefur látið skrifa. Maðurinn, sem er söguhetjan í þessari sögu, hét Jónas Amittaíson, og var spámaður, hann var Gyðing- ur og átti því heima í Gyðingalandi. En sagan byrjar á því að Guð kom

x

Barnablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.