Barnablaðið - 01.04.1951, Page 8

Barnablaðið - 01.04.1951, Page 8
I ff BARNABLAÐIÐ til Jónasar og sagði honum að fara til mikillar borgar, sem hét Nínive. Hitn var langt í burtu og höfuðborg í landi sem hét Assyría. Nínive er nú ekki lengur til, hún var lögð í eyði árið GOG eða 7 fyrir Krists burð og landið heitir víst heldur ekki sama nafni núna. En það, sem Jónas átti að gjöra í Nínive, var að prédika þar, því að mennirnir í Nínive voru mjög vondir. Það var því ekki vanþörf á því að prédika á móti vórtzku þeirra. En Jónasi gekk víst ekki vel að skilja það, að hann þyrfti að fara til þessarar fjarlægu ltorgar. Jónas hafði spáð lieima í sínu landi, en þegar Guð sagði hon- um að fara til Nínive og prédika þar, þá skildi hann það ekki. Assyr- íumenn voru líka meðal hættuleg- ustu óvina þjóðar hans. Það getum við séð á öðrum stað í BibMumri. Les. 2. Konungabók 17. 3-ri. Og þar að auki litu Gyðingar þannig á, að það væri réttmætt, að ógæfa kæmi yfir heiðnu þjóðirnar. Og þetta hefur kannske átt sinn þátt í því, að Jónas ætlaði að óhlýðnast boði Guðs um að fara til Nínive. Og í því skyni lagði hann af stað til borgar, sem heitir Jaffa. En þaðan ætlaði hann að fara ennþá lengra til annars staðar, sem hét Tarsis. Og þetta gjörði hann til þess að korna sér hjá því að gjöra það, sem Guð sagði honum, nefnilega að fara til Nínive. Bærinn Jaffa stendur á ströndinni fyrir botni Miðjarðar- hafsins. Þaðan sigldu skipin um Miðjarðarhafið og þangað komu þau og koma líklega enn, því að þessi borg er enn til. En þarna í Jaffa hitti Jónas skip, sem einmitt ætlaði til Tarsis, staðarins sem hánn ætlaði að flýja til, burt frá augliti Guðs. Og svo borgaði hann far- gjaldið og fór af stað með skipinu. En það gekk ekki vel fyrir Jónasi fremur en öðrum, að flýja burt frá augliti Guðs. Guð vildi miskunna fólkinu í Níriive, og hann var ekki orðinn afhuga því, að senda Jónas þangað til að prédika og vara fólkið við hættunni, sem vofði yfir því, ef það breytti svona illa. (Meira). Um stúlku á sjúkrahúsi við Reykjavík Nú er ég ein og allt er hljótt mig vmhverjis er dimma nótt. Mér lysa náðar láttu sól minn Ijúji Guð um pessi jól. „i 4 Mitt hjarta gleðst við hugsun þá þú Herra Kristur ert mér hjá, þó yfirgefi allir mig , , , , , ég óhviðinn má treysta á þigt | ■ i í : II 1 ; ■ Já, þú ert heimsins sanna.sól, þig sendi Guð til vor urn jpl.. O, lýs þú, Drottinn, mildi m,ér þó myrht sé, vil ég fylgja þér. , , H.t

x

Barnablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.