Barnablaðið - 01.04.1951, Side 15

Barnablaðið - 01.04.1951, Side 15
BARNABLAÐIÐ 13 En hún missti aldrei kjarkinn, liún bað Jesú að frelsa foreldra sína og afa. Hún var viss um, að Jesú þekkti leiðina að hjörtum þeirra. Dag einn kom ræningjaflokkur í bæinn sem litla stúlkan átti heima í. Ræningjarnir fóru í húsin og stálu og gerðu margt ljótt af sér. Afi litlu stúlkunnar vissi að það gátu orðið voðalegir tímar fyrir alla bæjarbúa. Hann vissi, að ræningjarnir myndu koma líka í hans hús. Hann vissi ekki hvað hann ætti að gera, því hann hafði ekkert til að verja húsið og heimilið með. Hræðslan gagntók hann allan, því hann mundi eftir atviki frá æskuár- um sínum, þegar ræningjaflokkur kom í heimabæ hans og eyðilagði heimili hans og mörg önnur. Allt í einu var eins og von kvikn- aði í brjósti hans, von um hjálp, hugur hans staðnæmdist hjá litlu sonardótturinni. Hann flýtti sér heim og fann hana þar, sem hún var að biðja til Jesú! Hann hristi hana svo að hún skyldi hve alvarlegt það var, sem hann ætlaði að segja við hana, svo hrópaði liann: „Þó að þú hafir aldrei í öllu þínu lífi beðið alvarlega, þá gjör það nú! Ræningjarnir eru hérna fyrir utan. Þú segir, að Jesú heyri bænir, biddu hann nú um að þeir korni ekki inn í húsið okkar!“ Svo fór hann út frá henni og læsti dyrunum. Strax kraup lnin á kné 11 ■ ■■ ■ .1 f og bað til Jesú. Var hún kvíðin eða hrædd? Nei. Móðir hennar, sem var í næsta herbergi heyrði hvernig hún úthellti hjarta sínu í bæn til síns himneska Föðurs. — „Kæri Jesú,“ bað hún, „ég er svo glöð yfir að afi hefur sagt mér að biðja. Hingað til hefur hann alltaf slegið mig, þegar ég hef beðið til þín. En nú vill liann að ég biðji til þín. Ó, himneski Faðir, þetta er svo stórt tækifæri til að sýna honum að þú heyrir bænir, kæri Jesú minn, komdu í veg fyrir að ræningjarnir komi inn í húsið.“ — Ræningjarnir fóru um götur bæjarins og svo komu þeir að húsinu, sem gamli maðurinn bjó í. Garðliliðið var op- ið, því að hann vissi, að það þýddi ekkert að loka því. Foringinn, sem fyrstur koin að hliðinu, stýrði hest- inum inn í garðinn, því að það var ætlun hans að fara þangað inn. En inni í húsinu bað litla stúlkan og sagði: „Hindraðu þá frá að koma inn! Himneski Faðir, gerðu kraftaverk, svo að afi sjái að þú heyrir bænir!“ Var þessi bæn heyrð í himninum? Já, áreiðanlega. Það skeði undur. Hesturinn vildi ekki fara inn í garðinn, hann gekk til liægri og vinstri og engin leið var að fá hann til að fara inn í garðinn. For- inginn sló hann, en allt reyndist árangurslaust. Svo varð foringinn gripinn af hræðslu, svo að hann sneri við og hrópaði til hinna:

x

Barnablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.