Barnablaðið - 01.04.1951, Side 20
Eiríkur talar við pabba sinn
Eiríkur heilir lítill strákur, fiögurra og hálfs árs gamall, hann kom eitt
sinn á trésmíðaverkstæði föður síns til að rabba við hann og horfa á
hann vinna. Eiríkur hafði mikinn áhuga fyrir trésmíði, og hann hefði
ábyggilega þegið að fá að höggva eitthvað til með smiðaöxinni, en hann
veit að hún er hættuleg og ekki barna meðfæri. En í dag þarf Eiríkur
margs að spyrja föður sinn. „Pabbi, heldurðu að timbrið cndist þangað
til Jesú kemur að sækja okkur?“
Ja, það er nú erfitt að segja mn það, en pabbi Eiríks segir honum að
Jesú geti komið að sækja okkur hvenær sem er.
Kvöld nokkru seinna, voru Eiríkur og systur hans tvær, að enda við að
biðja kvöldbænimar sínar, þá byrjar Eiríkur með sínum spurula rómi:
„Verður bjart á himnum?“ Og það gat pabbi hans sagt honum með
vissu, en Eiríkur var samt ekki með öllu ánægður, hann vildi fá að vita,
hvort ljósið á himnum væri slökkt og kveikt, eins og rafmagnsljósið hjá
okkur. Pabbi hans sagði honum bá, að hjá Jesú á himnum væri alltaf
Ijós, því að myrkur væri þar ekki til. Það leizt Eiríki litla vel á. „En
heyrðu, pabbi, hvernig eigum við að fara að því að komast upp til himna?
Hefur Jesú Iangar hendur, er hann svo stór, að hann nái niður til okkar,
pabbi?“ — „Já, Eiki minn, Jesú hefur langar hendur.“
„Hefur hann margar hendur, pabbi?“
„Nei, góði minn, Jesú hefur aðeins tvær hendur.“
„Já, en nabbi, þá getur hann bara tekið einn í einu upp til sín.“
„Sjáðu til, Eiríkur minn, pabbi þinn hefur aðeins tvær hendur, og samt
getur hann tekið ykkur öll þrjú systkinin, upp í einu.“ Þá varð Eiríki
ljóst, að gæti pabbi tekið upp svo marga í einu, hversu miklu fleiri gæti
þá tkki Jesú tekið í einu. Eiríkur hafði heyrt í sunnudagaskólanum að
eingöngu þeir, frelsuðu, kæmust í himnaríki, og þess vegna biður hann
góðan Guð, um að öll böm megi frelsast. Vilt þú, sem þetta lest, gera hið
sama og hann? E. S.
(Ur Barnens Hárold).