Barnablaðið - 01.06.1981, Side 2
2
Lofum
Guð í öllum
hlutum
Nú er tekið að síga á seinni hluta sumars og
farfuglarnir farnir að huga að hópferð til suð-
lægra landa. Framundan er haustið, kalt og
napurt.
í margra augum er veturinn erfiðasti tími árs-
ins. Fólk kvíðir kuldanum sem honum fylgir og
einnig kvíðir það síauknu myrkri.
Við getum litið á veturinn sem tákn erfiðleika
og rauna sem við mætum svo oft í þessum
heimi, tákn erfiðleika sem okkur finnst svo oft
ómögulegt að sigrast á. Við fyllumst örvæntingu
og finnst allt svo ómögulegt. En þessar raunir
eru ekki eitthvað sem ekki er hægt að sigrast á.
Um síðir mun lægja og vorið koma og síðan
sumarið með birtu og yl.
í Biblíunni er talað um mann sem hét Job.
Hann var maður guðhræddur, sem þýðir að
hann trúði á Guð og óttaðist hann. Sagan
greinir frá því að Satan hafi eitt sinn komið að
máli við Guð og sagt að ef hann leyfði sér að
leggja plágur á Job, myndi Job áreiðanlega
hallmæla Guði og hætta að trúa á hann. Guð
leyfði þá Satani að freista Jobs og leggja plágur
á hann, til að reyna trú hans. Satan fékk þó ekki
að leggja hendur á Job sjálfan.
Brátt fékk Job hræðilegar fréttir. Vinnumenn
hans komu hlaupandi og tilkynntu honum bæði
mann- og skepnuskaða. Nautin höfðu öll drep-
ist, líka ösnurnar, heilu hjarðirnar, úlfaldarnir,
hirðsveinar höfðu verið drepnir og einnig höfðu
synir Jobs og dætur dáið þegar húsið sem þau
voru í hrundi ofan á þau. Job stóð upp, reif
klæði sín og skar hár sitt, en í þá daga sýndu
menn oft reiði sina á þennan hátt. Því næst féll
Job til jarðar, tilbað Guð og sagði: ,,Drottinn gaf
og Drottinn tók; lofað veri nafn Drottins." í öllu
þessu hallmælti Job ekki Guði.
Satan hafði tapað þessari orustu, en hann
vildi ekki sætta sig við ósigur og kom því aftur
að máli við Guð og vildi nú fá að leggja sjúk-
dóma á Joþ sjálfan. Guð leyfði það en Satan átti
þó að þyrma lífi Jobs. Lagði hann nú mikla
sjúkdóma á Job, þannig að hann eltist um svo
mörg ár í útliti á örskömmum tíma að jafnvel
nánustu vinir hans þekktu hann ekki. Þrátt fyrir
þessi miklu veikindi hallmælti Joþ Guði ekki.
Hann stóðst raunina og ígegnum þessa reynslu
kynntist hann Guði enn betur. Guð blessaði
hann og gaf honum margfalt aftur það sem
hann hafði misst, og Job lifði lengi eftir þetta.
Þannig er það með okkur. Guð leyfir stundum
erfiðleikum að koma í líf okkar, til að gera okkur
enn hæfari til að þjóna honum. Hann elskar
okkur og vill okkur allt hið besta. í Biblíunni
stendur að hann agi þann sem hann elskar.
Megi Guð blessa þig lesandi góður og gera þig
að enn hæfari þjóni.
Ritstjórinn