Barnablaðið - 01.06.1981, Blaðsíða 9
Barrvablabið
drengirnir íeinu hljóði. ,,Nú eru það aðeins hérar
og íkornar. Hvar er hægt aö veiða villidýr?"
„Það er nú til dæmis hættulegur villiköttur,
sem heitir eigingirni," sagði afi meö hægð.
„Hvað við þurfum, hvers vió óskum og hvað
okkur vantar. En ef við rekum þessar hugsanir
burtu og reynum aö finna út, hvað við getum gert
fyrir aðra og hjálpað öðrum, þá veiöum við kött-
inn eigingirni."
„Er líka til ótta-köttur?“ spuröi Fred. „Það er
víst hann sem ónáðar mig æói oft. Ég er
hræddur vð svo margt, en þó mest við að aórir
sjái það og kalli mig ótta-kött eða hugleysingja."
„Já, það er til sú tegund af köttum og þeir eru
undirförulirog meira líkir refum. Þeir gera marga
hrædda við að segja nei við því, sem ekki er rétt.
Þeir eru hættulegir. Hvert skipti þegar vió erum
hrædd við að gera rétt, eða segja satt, ættum við
að senda þeim kröftugt skot.
Svo er það óvingjarnleiki, sem við getum kall-
að vísund. Sumir stórir drengir skemmta sér við
að hrekkja og hræða börn og gamalt fólk. Þessi
vísundur er illur viðureignar. Það er þegar vió
hjálpum öörum og gefum öörum sem minna
hafa, að við skjótum hann milli augnanna.
Og svo er það gamla geitin, öfund. Þegar
okkur finnst kennarinn ósanngjarn, foreldrar
okkar eöa systkini gera það sem léttast er. Vinir
okkar hafa það miklu skemmtilegra en vió sjálf.
Viðbjóðslegt dýr. Allir eru leiðir á þessu fólki.“
„Þetta er einmitt dýrið sem ég þarf aö veiða,“
sagði Andy.
„Ég öfundaði Jim og Fred af því að þeir áttu
afa og ömmu, sem þeir gátu heimsótt. Og þegar
ég læröi ekki nógu vel lexíurnar, svo Dick fékk
hærri einkunn, uppnefndi ég hann. En í einlægni
spurt. Hvernig vissir þú þetta herra Rhodes?“
„Ég veit, að við eigum þetta öll sameigin-
legt. Ég mætti þessari gömlu geit þegar ég
var í skólanum, og ég hef mætt henni síðan
ég varð fullorðinn.
Og svo er þaö leti og óheiöarleiki, óþolinmæði
og uppreisn gegn foreldrum og kennurum og
jafnvel Guði. Við gætum haldið þannig áfram
lengi, en nú skulum við lesa Guós Oró og biðja
og ganga svo til hvílu.Bænin er besta byssan til
að skjóta með öll þessi villidýr, og við getum
notað hana hvenær sem er.“
„Nú,“ sagöi afi. „Finnst ykkur nú að öll villidýr
séu liðin undir lok?“
„Nei, nei, alls ekki,“ sögðu drengirnir.
„Viö höfum víst nóg að veiða fyrst um sinn.“
FYRIR ÞÍNA (GUÐS) HJÁLP REKUM VIÐ
FJANDMENN VORA UNDIR. Sálmur44.6.
—Gimsteinar I.