Barnablaðið - 01.06.1981, Blaðsíða 17

Barnablaðið - 01.06.1981, Blaðsíða 17
Barnablabiö Faldi fjársjóburmn Gerum ráð fyrir að þú ættir mikið af peningum — seöla, gullpeninga, silfurpeninga, dýrgripi, gimsteina og demanta sem væru afar mikils viröi, og ættir heima í landi þar sem engir bankar væru, eða öryggishólf. Þú vildir geyma fjársjóó- inn þinn á tryggum staö. Hvað mundir þú gera við hann? Eða þá aö þú byggir í landi, þar sem stríð hefði geisað og óvinurinn hefði hertekið alla banka, rændi verslanir og heimili og þú ættir dýrmæta hluti sem þér væri annt um. Hvar mundir þú láta þá? Hvar mundir þú fela þá? Ég ímynda mér aó vió mundum öll hugsa hið sama og fara eins að. Við mundum finna blett í garöinum eða úti á túni, kannski undir tré eða kletti svo að auðveldara væri aö finna staðinn. Síðan græfum við djúpa holu og mokuðum mold yfir fjársjóöinn. Þetta er það sem menn hafa gert alla tíö og gera enn í dag. Þegar ég var á Indlandi, sagði vinur minn Frank Lewellyn mér sögu af hópi kristinnalndverja.ervoruaðgrafafyrirhúsgrunni og rákust þá á fulla fötu af gullpeningum. Ekki er mér kunnugt um, hve mikla peninga þeir fundu en þeir voru að verðmæti nokkrar þúsundir dala. Þetta voru miklir fjármunir fyrir fátæka þorpsbúa á Indlandi. Þeir földu fjársjóöinn og skömmu síðar skiptu þeir honum á milli sín. Allt fór þetta mjög leynt. Svo fóru þeirað eyöa honum, en ekki leið á löngu þar til samviskan fór að ásaka þá. Þeir voru allir kristnir og vildu gera það sem rétt var. Þeir stóöu frammi fyrir vanda. Að lokum skýrðu þeir vini sínum, kristniboðanum frá mál- inu og kristniboðinn kom því á framfæri við stjórnvöldin. Embættismenn stjórnarinnar komu og tóku peningana. Þeir voru rausnarlegir og gáfu þessu fátæka heiðarlega fólki, stóra fjár- upphæð fyrir að finna fjársjóðinn. Hve lengi hann var falinn eða hver faldi hann, veit enginn. Máski hafði eigandi hans látist, áður en hann gat sagt nokkrum frá leyndarmáli sínu. Og fjársjóö- urinn legið falinn um áraraðir uns fátæku Ind- verjarnir fundu hann. Jesús sagöi eitt sinn sögu, í líkingu viö þessa indversku sögu. Hann sagði frá manni sem var aó plægja akur. Hann var ekki eigandi akursins. Kannski var hann einungis leiguliói er vann sér inn fáeinar krónur yfir daginn. Hann reif upp jarðveginn meó grófa plógnum sínum, til að undirbúa hann undir vorsáninguna. Allt í einu rakst hvass plógsoddurinn í eitthvaó hart, stein eöa járn. Maðurinn beygði sig niöur og fór aó róta með hendinni í moldinni. Og viti menn: hann fann brún á járnkeri. Hann fjarlægði jarðveginn frá kerinu og gat tæplega lyft því upp úr holunni. Honum til undrunar fann hann aö kerið var fullt af peningum. Hann haföi uppgötvað það sem Jesús kallaði „falinn fjársjóó“, og honum fórst nærri því eins og kristnu Indverjunum. Hann hélt fundi sínum leyndum. Hann hætti að plægja, gróf fjársjóöinn aftur í jöróu og hrað- aði sér á braut. Hann seldi allt sem hann átti, húsið sitt, húsgögn, féð og geiturnar — allt sem til var. Og með þessum peningum keypti hann akurinn. Og þegar hann nú átti akurinn var fjársjóðurinn í honum eign hans um leiö. Það var allt hans eign. Okkur finnst kannski að hann hefói átt aö greina frá fundi sínum, eins og kristnu Indverjarnir, en landslög voru öðruvísi í þá daga og fjársjóðurinn var hans lögmæta eign í alla staði. Vellauðugur maður á einum degi. Og á sama hátt er það sem fjársjóðurinn dýr- asti, fagnaðarerindið, stundum finnst. Þeir eru margir sem finna fagnaóarerindið, án þess að þeir séu að leita þess. Satt að segja getum viö sagt, að fagnaðarboðskapurinn hafi fundið þá. Þeir rekast á fjársjóð fagnaöarerindisins, án þess aö leita hans. Hann kemur þeim á óvart. Páll var ekki í leit að fagnaðarboðskapnum er hann var á leió til Damaskus, í því skyni aö of- Framhald á bls. 22

x

Barnablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.