Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1886, Side 16

Sameiningin - 01.03.1886, Side 16
herflokkum sínum (Kaldeumönnum) varð hirtingarvöndr á hinn þverbrotna lýð. A það er ekkert vikið í þessari lexíu, hverja ]?ýðing eyðilegging hinnar helgu borgar hafði frá guðlegu sjón- armiði. Á yfirborðinu sést að eins það, að tvær þjóðir eru að berjast, og hin sterkari ber eðlilega hærra hluta. En þeim, sem kunnug er öll sagan á undan, er auðsætt, að ósýnileg réttlæt- ishönd er á bak við hinn œgilega atburð. “það, sem maðrinn sáir, það mun hann og upp skera” (Gal. 6, 7). Spámenn drottins í Israel liiifðu í rneira en tvö hundruð ár boðað lýðnum, hvað hann inyndi yfir sig leiða með syndum sínum, og það rœtist nú. Gleymdu því ekki, maðr, að réttlátr og heilagr guð ræðr. Gættu að teiknum tímanna; gættu að guðs orði, og láttu ekki straum óguðlegs aldarháttar fara með þig út í eyðilegg- ing og opinn dauða. Nálægt 20 árum áðr en Jerúsalem var brotin niðr on' að- o o al-herleiðingin til Babylonar fór fram brauzt Nebúkadnesar eftir unninn sigr á konungi Egyptalands inn í Júdaríki,’sem þá var Egyptakonungi háð, settist um Jerúsalem og náði henni á vald sitt. þó lét hann konunginn þar, Jójakim, halda ríki sínu að nafninu, en hins vegar flutti hann all-mörg ung göfugmenni Israelsmanna austr til hinnar heiðnu heimsborgar Babylonar í því skyni að gjöra þá að hirðmönnum sínum. I tölu þessara ungu tignu manna var Daníel. ]»eir voru settir til mennta. þeim var sýndr mesti sómi. En tilgangrinn var að drepa þjóðernis-tilfinninguna og þá um leið þjóðtrú ísraels í hjörtum þeirra, þetta var hið mesta stjórnkœnskubragð af Nebúkadnesar. það á að gjöra þá Daníel að ekta Kaldeum. I því skyni er nöfnum þeirra breytt og skipað, að veita þeiin daglega af hinum konunglegu kræsingum. En bragðið bar ekki hinn tilætlaða ávöxt. Frá þe.ssu er sagt í hinni 5. lexíu. Daníel sá freistinguna og hélt sér frá kræsingunum og vínnautninni. Samvizka lians sagði nei, og svo spyr hann ekki að því, livað holdi og blóði þykir bezt. Hann minnir mann í þessum sporum lífs síns á Jósef í húsi Potífars forðum. það var augsýnilegt, að hef'ði Jósef þá hlýtt rödd freistarans, þá hefði hann syndg- að. En það, sem Daníel var freistaðr til, gat álitizt að vera eng- in synd, hefði ekki verið nein synd, ef öðru vísi hefði staðið á. Daníel var nærri barn að aldri. Hann er kominn til annar- legrar þjóðar, fjarri ættjörðu sinni. Allt er nýtt umhvertis hann ;

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.