Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1886, Síða 17

Sameiningin - 01.03.1886, Síða 17
sumt er gott, sumt er illt, en allt er þaft' girnilegt. Hann gat tekið á móti hinni babylonsku menntan og þó veriö guöi feðra sinnatrúr, en hann gat ekki tekið þátt í liinu babylonska mun- aðarlífi án þess aö falla frá hinum lifanda guöi. þetta er það, sem ungir menn og aörir af fólki voru innan um hinn innlenda lands- lýð hér þurfa endilega að muna. Menn mega eklci aðhyllast ullt, sem innlendum mönnum hér þykir sjálfsagt, og menn mega ekki neinu því sleppa, sem er gott og guði þóknanlegt í sínum föðurarti. “Auðlærð er ill danska ” er sannr málsháttr á Islandi. En líka—“auðlærð er ill ameríkanska ” þjóð vorri í þessu landi. 6. lexían segir frá því, er hinum þrem vinum og löndum Daníels er varpað í hinn brennanda eldofn fyrir það að þeir feng- ust eigi til að veita gull-líkneski Nebúkadnesars konungs tilbeiðslu og hvernig drottinn varðveitti þá í þessum ógrlega voða. Esajas hafði boðað hinum trúuðu í ísrael í drottins nafni meira en heilli öld áðr : “þó þú gangir í gegn um eldinn, þá skaltu ekki brenna og loginn skal eigi granda þér ” (Esaj. 43, 2). A hinn bóginn er í spádómsbók Jeremíasar (29, 22) getið tveggja óguðlegra ísraels- manna, sem lconungrinn í Babýlon hafi látið steikja á eldi.—Eld- raunir eru enn búnar guðsbörnum hvar sem vera skal, þó að hinn brennanda ofn Nebúkadnesars sé ekki að óttast. Og eldraun trúarinnar er ekki minnst, þegar gull-Mkneski heimsins er í aug- sýn og heimtar tilbeiðslu. Hvað er ekki gjört fyrir peninga ? “þeir, sem ríkir vilja verða, falla í freistni og snöru o. s. frv., því ágirndin er rót alls ills ” (1. Tím. G, 9). Eldraun mótlætisins er til, en það er líka til eldraun meðlætisins. Hvað er það, sem hjálpar manni til að komast ósködduðum út úr hvorri tveggja þess- ara eldrauna ? Hvað annað en trú á hinn lifanda cmð, trú á hinn almáttka frelsara ?—“Hiæðizt ekki þá, sem líkamann deyða, en geta ekki líflátið sálina ”, segir Jesiis ; “hræðizt heldr þann, sem vald hefir til að tortýna bæði sálu og líkama í helvíti ” (Matt. 10, 28).—“Fremr ber að hlýða guði en mönnum ” (Pg. 5, 29).—“þó eg ætti að ganga um dauðans skuggadal, skyldi eg samt enga ógæfu hræðast, því þú ert með mér ”, segir guðsbarnið með Ilavíð (Sálm. 23, 4) á hinni hörðu og dimmu tíð. “Eg veit minn ljúfr lifir lausnarinn himnum á ” o. s. frv. syngr öll hin íslenzka kristni við gröfina. Hin 7. lexía leiðir oss inn í höll Babylonar-konungs kvöld-

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.