Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1886, Blaðsíða 15

Sameiningin - 01.08.1886, Blaðsíða 15
—95— lenzku er jjess getið, að hún sé algjörlega hákirkjuleg, og það svo mjög, að prestar sé einatt settir í embætti þvert á móti vilja safnaðanna. I sambancli við það er dá- litið talað um baráttu flokksins í Reyðarfirði fyrir tilveru sinni og frelsi utan þjóðkirkjunnar. Af því það er ekki fullyrt, þar sem minnzt er á passíusálmana, að þeim hafi verið snúið á latínska tungu, skal hér tekið fram, að það eru til á prenti tvær lat- ínskar þýðingar af þeim, önnur eftir prestinn Kolbein J>orsteinsson, út komin í Kaup- mannahöfn 1778, orkt með steíjamáli frumritsins og undir lögum þess, hin eftir prest- inn Hjörleif J>órðarson í rímformi því, sem hexapieter er kallað og sem latínskri tungu er miklu eðlilegra, enda þykir sú þýðing miklu betri. í norsku synódunni, stœrsta lúterska kirkjufélagi Norðmanna hér í Ameríku, lítr nú mjög ófriðvænlega út. J>ar hefir um nokkur ár verið uppi áköf deila út af náðarútvalningunni og fleiri náskyldum trúarlærdómum, og hafa tveir andvígir flokk- ar myndazt í félaginu út af deilu þessari, annar, sem nefndr er Missouri-flokkr, af því hann heldr fram þeirri skoðan, sem ráðandi er í hinni þýzku Missouri-synódu, þar sem dr. Walther í St. Louis er höfuðmaðrinn, en hinn, sem kallast Anti-Missourí- flokkr. |>eir, sem hinum síðar nefnda flokki til heyra, eru í minni hluta, og bera þeir hinum á brýn, að þeir á líkan hátt og Calvin, hinn alþekkti siðbœtir reform- eruðu kirkjunnar á 16. öld, gjöri ekkert úr frjálsræði mannsins, en eru sjálfir af mótstöðumönnum sínum víttir fyrir skynsemistrú og kaþólsku í sinni skoðan á aftr- hvarfinu. Synódan hefir um nokkurra ára bil átt prestaskóla í Madison, Wisconsin, en hann hefir verið mjög laklega sóttr, mest sökum þessara trúardeilna. Stúdent- ar frá undirbúningsskóla synódunnar í Decorah, Iowa, hafa dreifzt á ýmsa presta skóla og lokið þar guðfrœðisnámi. Anti-Missouri-menn vilja nú ekki styðja presta- skóla synódunnar lengr, þar sem hann sé alveg í höndum mótflokksins. petta aug- lýsir einn þeirra forvígismanna, Muus prestr, í ,,Norden“ rétt nýlega, og það með, að þeir sé að koma á nýjum prestaskóla í Northfield, Minnesota, sem eigi að byrja í haust. Prófessor Schmidt^ höfuðmaðrinn í mótspyrnunni gegn Missouri-stefnunni, á að verða yfirkennari við þennan prestaskóla. Með þessu sýnist minni von til þess að eining geti aftr komizt á í norsku synódunni en nokkru sinni áðr. Á ársfundi Konferenzunnar, eins af hinum lútersku kirkjufélögum Norðmanna í Bandaríkjum, var með sterkum orðum tekið fram, að brýn þörf væri á meiri leik- manna-starfsemi kirkjunni til stuðnings heldr en að undan förnu hefði átt sér stað. Og var ályktað, að prestar og söfnuðir skyldi styðja að því, að hœfir leikmenn boðuðu guðs orð í söfnuðunum 1 fjarveru presta, hvervetna þar sem slíka leikmenn væri að fá. Svona löguð ályktan þykir hákirkjulega hugsandi mönnum ekki vel lútersk, þar sem í Ágsborgarjátning standi, að enginn skuli opinberlega kenna í kirkjunni nema hann sé á réttan hátt kallaðr til þess. En í þetta orðatiltœki játningariitsins : ,, á réttan hátt kallaðr“ má auðvitað leggja mjög mis- munanda skilning. Ef söfnuðr og prestr kemr sér saman um að fela einhverjum fœr- um leikmanni á hendr að boða guðs orð, hví skyldi þá ekki þessi sami leikmaðr mega skoðast á réttan hátt til þess starfa kallaðr ? —Fólkstala í söfnuðum kirkjufélags vors var rétt fyrir ársfund 2,300, þar af fermt fólk 1420.-Ef 5 til 6 þúsundir Islendinga eru hér í landinu (Bandaríkjum og Canada), eins og telja má nokkurn veginn víst, þá vantar eftir þessu allmikið á, að helm- ingr J>eirra heyri kirkjunni til. J>etta þarf eitthvað að breytast, ef vel á að fara.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.