Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1886, Blaðsíða 1

Sameiningin - 01.09.1886, Blaðsíða 1
Mánað'arrit til stuðnings kirlcju og lcristindómi íslendinga, gefið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi ísl. í Vestrheimi. RITSTJÓRI /ÓN B/ARNASON. 1. árg. WINNIPEG, SEPTEMBER 1886. Nr. 7. Um þá öld, sem vér lifum á, er venjulega talað sem frels- isöld, og sérstaklega er talað um þaS land, sem vér nii eig- um heima í, sem hiS fremsta frelsisland í heimi. Og þaS, sem ekki sízt hefir komiS mönnum til aS taka sig upp úr sín- um fornu átthögum og fiytja yfir þúsundir ' mílna á sjó og landi til þessarar heimsálfu, er vonin um aS hér stœSi til boSa rneira frelsi, meiri mannréttindi, heldr en heima. þaS er, ef til vill fremr öllu öSru þessi frelsislöngun og frelsisvon, sem drégr á hverju ári fólk úr nálega öllum löndum heimsins, af nálega öllum þjóSum og tungumálum og trúarbrögSum, svo aS hundr- uSurn þúsunda skiftir, til Ameríku, og fyrir þessa sömu löngun og von einkanlega er þessi geysimikli landgeimr, er fyrir fám mannsöldrum mátti heita auS, mannlaus, óhyggS eySimörk, orS- inn aS fjölbyggSum, framkvæmdarsömum auSugum menntaheimi. Löngun eftir meira frelsi en heima var aS fá, og von um aS fá þessari löngun fljótar og betr fullnœgt hér en á íslandi kom því til leiSar, aS fólk af vorri fámennu þjóS lét einnig berast meS straumnum hingaS yfir um. Og þaS er von vor og hjartanieg ósk, aS allr þorri Islendinga hér í Vestrheimi finni til þess meS þakk- læti til forsjónarinnar, aS þeir hafa aS því er frelsi snertir alls eigi gripiS hér í tómt. Og þar sem út frá því ætti aS mega ganga, aS allir þrái frelsi, hvort sem rnenn þykjast hafa fundiS þaS hér ellegar ekki, af því aS hjarta mannsins elskar frelsiS ó- sjálfrátt, þá ætti og aS mega telja víst, aS hin postullega áminn- ing: „VeriS ekki manna þrælar“ (1. Kor. 7,23) snerti þýSa og viSkvæma strengi í brjósti allra, bæSi kvenna og karla.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.