Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.09.1886, Page 5

Sameiningin - 01.09.1886, Page 5
—101— sálu Páls postula hafði fyrir augum, þá er hann korn með þessa áminning. það er auðsætt á því, sem stendr í þessu bréíi post- ulans rétt á undan. þar stendr svo : „Hafir þú veriö þræll, þá er er þú varst kallaör, láttu þig eina gilda; en ef þú getr orðið frjáls, þá vel það heldr ; því sá, sem var þræll, þá er hann var kallaðr, er drottins frelsingi; sá, sem þá var frjáls, er Krists þræll. þér eruð dýru verði keyptir; veriB ekki manna þræl- a r “ (1. Kor. 7, 21-23). Hversu ófúsir menn eru til að vera andlega frjálsir má sjá á ísraelsmönnum til forna, þá er Móses var að hrífa þá rit úr ánauðinni á Egyptalandi. þeir höfðu lengi, lengi verið sárlega kúgaðir af hinum heiðnu harðstjórum landsins. þeir höfðu eðlilega kveinað sárt undan því líkamlega ánauðaroki, er þeir lágu undir. þá langaði náttúrlega hjartan- lega til að fá lausn úr þrældómnum. En er guð fyrir hönd Mósesar heldr að þeim hinu andlega frelsi, og þeir sjá, að af þeim er heimtað upp á líf og dauða að þjóna guði af öllurn lífs og sálar kröftum, og honum einum, þá vilja þeir heldr sniia aftr á miðri leið, og hverfa á ný ofan í sína fyrri líkamlegu ánauð,. undir harðstjórasvipur og böðulshendr Egypta, heldr en að gjörast andlegir frelsingjar drottins. Svo megn er mótspyrna hins synduga manneðlis gegn hinu andlega frelsi sínu! Svo megn var þessi hörmulega mótspyrna til forna, og svo megn er hún enn ! Ekki svo að skilja, að ísraelsmenn ímyuduðu sér, að þeir væri að spyrna á móti hinu andlega frelsi sínu þá er þeir voru að berjast gegn Mósesi og guði í eyðimörkinni á leið þeirra til hins fyrirheitna lands. Og ekki svo að skilja heldr, að menn þeir innan saínaðar drottins eða fyrir utan hann, sem nú á tímum rísa öndverðir gegn endrlausnarnáð kristindómsins og fótum troða lífsreglur og kærleiksáminningar frelsarans, ímyndi sér, að þeir sé að spyrna móti andlegu og eilífu frelsi sínu. Eng- an veginn. þeir ímynda sér þvert á móti, eða reyna í lengstu lög að telja sjálfum sér trú um, að þá fyrst sé þeir andlega frjálsir, þegar þeir rnega gefa öllum sínum fýsnum og ástríð- um alveg lausan tauminn. þeir telja sór trú um, að það, sem á tungumáli kristindómsins heitir andlegr þrældónir, sé einmitt andlegt frelsi. Og svo hugsa þeir: „Yér viljum lifa og deyja sem frjálsir menn“.—„þeir hafa um snúið sannleika guðs í lygi“, segir Páll postuli (Róm. 1, 25) um heiðingjana í menntalönd- um fornaldarinnar, sem lifðu eftir hinum syndum spilltu girndum úguðlegs hjarta síns, „göfgað og dýrkað skepnuna í stað skap-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.