Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.05.1887, Page 4

Sameiningin - 01.05.1887, Page 4
36— lega sáluhjálparsannleik. Annars getr hann ekki talað af fullu hjarta út af sínu kennsluefni. En samt skyldi enginn ætla að kristilega hugsandi sunnudagsskúiakennari geti ekki í andlegu tilliti grœtt á því, sem lærisveinarnir við hann segja út af krist- indóminum. I sunnudagsskólanum myndast þannig andleg sam- vinna milli kennanda og lærisveina, eins og líka milli lærisvein- anna innhyrðis. ])að er þessi samvinna, sem ætti að eiga sér stað milli fólks, ungs og fullorðins, í hverjum kristnum söfnuði, til þess þar verði í sannleika nokkurt kristilegt safnaðarlíf. Og vér Islendingar eigum ekki lcost á að koma slíkri andlegri sam- vinnu milli manna í söfnuðum vorum á nema gegn um sunnu- dagsskólann. það er því auðsætt, að sunnudagsskólar vorir missa meira cn helminginn af þeirri þýðing, sem þeir ætti að hafa og geta haft, ef œskulýðr vor hættir að ganga á þá eftir ferminguna. Með fermingunni ætti ungmennin einmitt fyrir fullt og fast að innritast á sunnudagsskóla síns safnaðar, til þess þá er tímar líða fram að almenningr hvers safnaðar gangi á sunnudagsskóla, fullorðnir og gamlir með börnum og ung- lingum. það er auðvitað, að því lengr sem einstakir menn ganga á sunnudagsskóla, því þroskaðri sem þeir verða í andlegu tilliti og því meir sem þeir fjarlægjast barnsaldrinn og unglingsskeið æfinnar, því meir nálægist kennslan á skólanum það að verða reglulegt samtal. Kennendr setja ekki fullorðnu fólki fyrir lexíur til að „læra“, eins og börn væri, heldr velja þeir ásamt með lærisveinunum, eða öllu heldr samverkamönnunum, efni til samtals út af og sameiginlegrar íhugunar einn sunnudag eftir annan. Með þessu móti kemst hin andlega samvinna manna á milli, sem er alveg nauðsynleg fyrir kristindómslífið, inn í söfn- uðinn. Og þetta þarf að verða hjá oss. Svo vinni menn þá að því að þetta geti smásaman orðið hvervetna í söfnuðum vorum. Ungmenni liætti í öllum bcenum ekki, né heldr sé af foreldrum sínum eða öðrum fullorðnum vandamönnum látin hætta, að ganga á sunnudagsskóla vora, þar sem þeir eru nokkrir til, þegar eftir að fermingunni er lok- ið. Menn eiga að læra að verða lifandi safnaðarlimir í sunnu- dagsskólanum. Menn gjöri sunnudagsskóla safnaðanna svo, að það verði augsýnilegt öllum að komanda lýð frá Islandi, að það er ómetanlegr hagr að geta sent börn sín og unglinga þangað sunnudag eftir sunnudag, að þau geta fengið þar þá festu fyrir

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.