Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1887, Blaðsíða 9

Sameiningin - 01.05.1887, Blaðsíða 9
41— starfseminni. Hinir innlendu læknar höfðu nærri því gjört út af við hinn sjúka frænda konungs, sem þegar var á minnzt, með því að fylla sár hans (því hann hafði særðr verið og var af því sjúkr) með vaxi, þá er Allen var til hans söttr. það er ekki langt síðan að allir útlendir menn, og jafnvel sendiherrar allra útlendra stjórna, urðu að íl vja burt úr Korea til að forða lífi sínu undan ofsa landsmanna, en dr. Allen sat kyrr ásamtkonu sinni og barni í fullkomnum friði undir vernd landstjórnar- innar sakir þess hve mikið konungr og hans nánustu þóttust eiga honum upp að unna. Og síðan hafa aðrir kristniboðendr fengið að dvelja og starfa í Korea sem vinir dr. Allens. —I Rússlandi eru rúmar 4 milíónir lúterskra manna eða fólks, sem til heyrir hinni lútersku kirkju vorri. það eru oinkum þjóð- verjar, fyrir utan Finnlendinga í Finnlandi, enda eru þeir ekki í þossari tölu, og fólk af sœnskum uppruna í fylkjunum við Eystrasalt, sem lengi vel heyrðu til Svíþjóð. þá er Pétr mikli var að brjótast í því að mennta Rússa studdi hann mjög að innflutningi fólks rir hinum menntuðu vestrlöndum Evrópu til Rússlands. Og síðan hefir hinn mikli grúi af þjóðverjum, lang-flestum lúterskrar trúar, átt heima í Rússlandi, og eru nú fyrir þessa sök lúterskar kirkjur í nálega hverju héraði Rúss- lands. Svo kallað „Oonsistorium“ stendr fyrir kirkjustjórnar- málum hins lúterska lýðs í Rússlandi. (I Finnlandi er lúterska kirkjan viðrkennd sem þjóðkirkja). Að undanförnu hafa Lúters- trúarmenn notið viðunanlegs trúarfrelsis. En nú er keisara- stjórnin rússneska búin að fá þá illu flugu í höfuðið, að koma þessum lútersku þjóðverjum nauðugum viljugum til að hverfa frá kirkju sinni og hníga í skaut hinnar svo kölluðu „rétttrú- uðu“ grisk-kaþólsku kirkju Rússa. Og er í þessurn tilgangi ýmist beitt ofríki eða vélum. Lúterskum mönnum er af stjórn- inni lofað svo og svo miklu landi að gjöf, ef þeir sleppi sinni trú og taki hina rússnesku kaþólsku. Og hefir þetta agn unn- ið svig á ýmsum. En það verðr lítið af því að efnd sé loforðin. Og er menn þá sjá svikin og vilja aftr hverfa í hina lútersku kirkju sína, setr stjórnin slagbrand í dyrnar og hindr hina frá- föllnu menn fasta þaðan í frá í hinni rússnesku kirkju. það er harðlega bannað nú, að nokkur, sem einu sinni er orðinn „rétttrú- aðr“, taki aðra trú eða sameini sig annarri kirkjudeild. Og það eru nú lög í Rússlandi, að hin rússnesku svo kölluðu „brœðra-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.