Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1887, Blaðsíða 4

Sameiningin - 01.06.1887, Blaðsíða 4
—52— svo er kristindómsnámi þess þar meö lokið, því heitorð foreldranna um að lialdið skuli áfram með kristindómsfrœðslu þess eins eftir sem áðr er yfir höfuð að tala alls ekki efnt eða þá að eins til inálamyndar. En þegar svo prestrinn eftir reynslu margra ára er búinn að sjá, að fjöldi ungmenna þeirra, er hann hefir fermt, hverfr, þá er út í lífið kemr, gjörsamlega burtu frá kristindómin- um, snýr alveg bakinu að kirkju sinni, setr sig beint upp á móti trú og siðareglum hennar, getr hann þá lengr með góðri samvizku lialdið áfram að ferma ungmenni hópum saman á hverju ári óðar en þau hvert uni sig hafa náð svo kölluðum lögaldri, án þess að vita neitt um það, hvað þeim líðr í kristilegu tilliti annað en að þau að nafninu „kunna“ hinn álcveðna barnalærdóm kirkjunnar? Yér vonum, að margir verði til að svara nei upp á þessa spurning. Vér ætlumst til, að allir, sein alvarlega um þaðhugsa, sjái, að oss dugar eigi í frjálsri kirkju vorri hér í landinu að fara með ferm- inguna eins og almennt við gengst í ríkiskirkjunni heima á Islandi. Eitt hið átakanlegasta dauðamerki á kirkjunrii íslenzku er ein- mitt liin ríkjandi skoðan á fermingunni meðal almennings, sem heldrþví fram, að ungmenni eigi endilega að ferma, þá er þau hafa náð vissum aldri, án tilliti til þess hvort þau liafa fengið persónu- iega sannfœring fyrir kristindóminum eða ekki, að eins að þau geti í aðalatriðunum haft það eftir, er kirkjan kennir, bergmálað með munninum meira eða minna af því, er stendr í „kverinu“. Og bera nú ekki söfnuðir vorir, þeir er hér í landi eru grundvall- aðir, á sér þetta sama dauðamerki ? því miðr hljótum vér enn að svara þeirri spurning játandi. En hins vegar þarf engan að furða að svo er í þessu efni sem er. Hví skyldi eigi enn mörg sömu dauðamerkin vera á kristindómslífinu í nýmynduðum söfnuðum vorurn hér eins og eru á kirkjunni heima, þar sem nálega allt fullorðið fólk þessara barnungu safnaða er upp alið heima á íslandi og hefir að miklu loyti gengið inn í þessa söfnuði með öllum þeim andlegu einkennum, sem það hafði á sér þar beima ? Satt er það reyndar, að augu eigi svo fárra í kirkju vorri hér eru orðin opin fyrirþví, sem öfugt er við rnargar kirkjulegar venjur ogseremon- íur í hinni íslenzku kirkju, og menn trúa engan veginn eins al- mennt hér eins og heima á helgisiði þá, er tíðkazt hafa í kirlcju vorri, svo semjvæt'i þeir hjartað í kristindóminum, er ávallt yrði óbreytt að standa, enda hefir með almennings samþykki mörgum seremoníum við guðsþjónustur safnaðarins verið breytt eða alveg

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.