Sameiningin - 01.06.1887, Blaðsíða 10
T
—58—
um þessi efni sé fullar af mótsögnum og vitleysum, sem óhœfa
sé aS trúa lengr á annarri eins upplýsingaröld eins og þeirri,
er vér lifum á. En mótbárur þær, sem hér eru fram bornar
gegn þessum trúaratriðum kristinna manna, eru ekki, eins og
mörgum kynni þó að koma til liugar, neitt nýtt, sein Kristo-
fer Janson eða nokkur annar á vorri tíð hafi fyrst fundið upp.
þær eru eldgamlar og marg-endrteknar af einutn andstœðingi
lcirkjunnar eftir annan allt frá fyrstu dögum kristninnar. þær
komu upp þegat er tekið var til að prédika kristna trú í heirn-
inuin, svo liöfundr ritlinga þessara siglir hér algjörlega í kjöl-
fari annarra manna, eigi síðr enn þeir, er fylgja kenning
kirkjunnar og hafa tileinkað sér hana eins og sína eigin eign.
Að því er sérstaklega snertir þrenningarlærdóminn, þá er fyrir
kristnum rnönnum ekki spursmálið um það fremr en um nein
önnur trúaratriði, hvort sá lærdómr verði slcilinn eða sannaðr
á satna hátt og reikningsdœtni, heldr hvort hanti sé korninn frá
Jesú Kristi og postuluin hans. Að neita því að hann sé frá
Jesú Kristi og postulum hans kominn er nú eigi unnt nema með
því móti að neita skýlausum orðuin nýja testamentisins og segja
að meira eða minna af því, er þar er fram sett í nafni Krists
sjálfs og postulanna, sé ranglega þeim eignað. Að því er Matte-
usar guðspjallskýrir frá, leggr Jesús lærisveinum sínum að skilnaði
þassa áminning á hjarta : „Farið ogkennið öllum þjóðum og skír-
að þær í nafni föður, sonar og heilags anda“ (Matt. 28, 19). Með
þessuin orðum er sannarlega þrenningarlærdómr kenndr; það
getr engutn dulizt; svo úrræðin fyrir þrehningarféndr geta engin
önnur orðið en annaðhvort neita því, að Kristr hafi nokkurn
tíma sagt þetta, ellegar segja, að hafi hann sagt það, þá hafi hann
hér farið með þvætting. Alveg sama verðr ofan á, þá er at-
huguð eru þessi Krists orð í guðspjalli Jóhannesar (14, 16): „Eg
mun biðja föðurinn, og hann mun gefa yðr annan huggara, svo
að hann sé hjá yðr eilíflega, sannleiksins anda, sem“ o. s. frv., og
rétt á eftir (14, 26): „En huggarinn, sá heilagi andi, sem faðir-
inn mun senda í mínu nafui, mun kenna yðr allt, og minna yðr
á allt, sem eg hefi talað við yðr“. Og þessi sami þrenningar-
iærdómr bergmálar í sálu Páls postula, þá er hann.ritar þessi
lcveðjuorð í niðrlagi 2. bréfs hans til Korinþumanna: „Náð
drottins Jesú Krists, kærleiki guðs og sameining heilags anda
sé með yðr öllum", og eigi síðr í sálu Pétrs postula, þá er hann