Sameiningin - 01.06.1887, Page 14
hrifiS hann undan gaddahjólum maskinunnar. Hvernig getr
hann þá endað þessa rœðu sína meS því aS óska mönnum þess.
aS „guS megi standa laðandi fyrir hugskotssjónum þeirra sem
hiS máttugasta af máttugu, viðkvæmasta af
v i S k v æ m u“ o. s. frv. Getr hann eSa nokkur, sem hefir þessa
skoðan á guSi, búizt viS, aS sú óslc nái aS rœtast?
Lexíur fyrir sunnudagsskólann : JfriOji ársíjórðungr 1887.
1. lexía, sd. 3. Júlí: BarniS Jesús.... (Matt. 2, l-12j.
2. lexía, sd. 10. Júlí: Flóttinn til Egyptalands (Matt.
2, 13-23).
3. lexía, sd. 17. Júlí: Jóhannes skírari (Matt. 3, 1-12).
4. lexía, sd. 24. Jiilí: Skírn Jesú....(Matt 3, 13-17).
5. lexía, sd. 31. Júlí: Freisting Jcsú.. . .(Matt. 4, 1-11).
Prófessor C. F . W. Walther í St. Louis er látinn hinn 7. Maí
75 ára gamall. þaS er hinn alkunni leiðtogi og lærifaðir Mis-
souri-sýnódunnar þýzku, sem er aðal-deildin í því lúterska
sýnódnafélagi, er Sýnódal-Konf erenza heitir og sem er
íjölmennast allra stórílokka lútersku kirkjunnar hér í Vestr-
heimi. Hann var fœddr og upp alinn í Sachsen, á þýzkalandi,
stundaSi guSfrœSi viS háskólann í Leipzig og þjónaSi prests-
embætti eitt ár þar heima í átthögum sínutn, áSr en hann, ár-
ið 1838, ásamt flokki af löndutn sínutn leitaSi vestr um haf.
Fjöldi hinna út fluttu þjóðverja safnaðist saman í St. Louis, en
margir tóku sér þó bólfestu lengra inn í Missouri-ríkinu og þar
varS Walt.her fyrsfc prestr. Hann varS brátt forustumaSr landa
sinna í andlegum efnum, því sá, sem fyrst var fyrir þeim í
kirkjulegu tilliti, féll frá kristindóminum. Sá ’nét Stephan, og
var flokkr þessara lútersku þjóðverja um hríS viS hann kenndr.
ViS fráfall hans komust öll kirkjumál þeirra í ólag hiS mesta,
en Walther tókst tneS mesta dugnaði að sameina það, er sundr-
aS var, og eitt fyrirtœkið rak nú annað til eflingar og út-
breiðslu hinnar einlcennilegu lútersku kirkju Walthers. þegar
um haustið 1839 varS til vísirinn að prestaskóla þessa flokks,
sem síSan hefir stöðugt verið í gangi og frá 1849 í St. Louis.
Hann heitir Concordia Seminar, og hefir Walther allt af veriS
þar aSalkennari síðan hann var þangað fluttr. 2 árum áðr var
Missouri-sýnódan stofnuð og var Walther formaSr hennar, og