Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1887, Síða 4

Sameiningin - 01.12.1887, Síða 4
148— láfcum nœgja, að benda hér a<5 eins á það, sem Páll postuli seg- ir þessu viðvíkjandi í Kol. 3, 16 : „Aminnið hver annan með sálmum, söngvum og andlegum lofkvæðum, sætlega syngjandi drottni lof í yðrum hjörtum“. Hvernig getr nú sálma- söngrinn verið hjarfcnanna söngr, ef allr þorri safnaðarins, eins og venjulega er í íslenzkum söfnuðum, veit ekkerfc, hvað verið er að syngja, hefir enga sálmabók með sér, og hvorki sá, er guðsþjónustunni stýrir, né neinn annar les upp í heyranda hljóði sálmana áðr en þeir eru sungnir ? Hlýtr ekki slíkr sálmasöngr að vera eins og hver önnur dauð bókstafsþjónusta fyrir allan þennan þorra fólksins, sem enga hugmynd hefir um það, með hvað verið er að fara í söngnum ? Getr verið, að sumir af áhevr- endunum skemmti sér við sönginn (auðvitað ekki við ef'nið í orði því, sein sungið er), en kristilega uppbygging fá þeir enga. Allt við kristilega guðsþjónustu á þó eftir kröfum heilbrigðrar skynsemi og fyrirmælum guðs orðs að vera sfcýlað upp á það, að það geti verið til slikrar uppbyggingar. (Saman her 1. Kor. 14, 26, þar sem meðal annars er gengið út frá því, að menn hafi s á 1 m fram að fœra á guðsþjónustu-samkomu safnaðarins. Nú, hinir fáu, sem samkvæmt venjunni taka þátt í sálmasöngn- um og halda honum uppi, þeir g e t a fengið kristilega upp- bygging af því, er þeir syngja, en þá verðr hjarta þeirra, og ekki að eins raddfœrin, að syngja. Og í sambandi við þetta er ó- missanda að taka fram, að enginn nema trúaðr krisfcinn maðr, hversu vel söngfróðrsem hann kann að vera og velað sér í hljóð- fœraslætfci, er hœfr til þess að vera organleikari við guðsþjón- ustur kristins safnaðar. Lífsskoðan organleikarans hlýtr nefni- lega að koma fram í tónum þeim, er hann fram leiðir með hlj öfœrinu; hún gefcr aldrei til lengdar leynzt. það er hœgra að finna til þessa heldr en að lýsa því. En algjörlega áþreifan- legfc verðr þetta, ef tekið er eftir öllu því, sem á organið er leikið, þá er engin sálmsorð eru sungin með. þegar maðr heyrir við lok guðsþjónustugjörðarinnar eða í henni miðri, milli þess, sem sungið er, eða að því húnu, verið að leika á organið mjög veraldleg lög, eins og þau, er vanalegum dönsum eða hergöngum til heyra, þá er vitanlegt, að það er annað en kristileg trúar- fcilfinning, sem ræðr hjá þeim, er organinu stýrir. Slíkr organ- sláttr flytr hugann langt burtu frá því, sem á að vera eina umhugsunarefni manna við kristilega guðsþjónustu; hann drepr

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.