Sameiningin - 01.11.1888, Side 12
—148—
er 75 árum eldri en lögboðna enska biblíuþýðingin, eða frá
árinu 1536. Höfundrinn er Richard nokkur Taverner, œðsti
ritari Tómasar Crumwell, ráðgjafa Hinriks áttunda. Hún
minnir á það tímabil, þegar svo leit út, sem trúbótarbyltingin
á Englandi myndi verða á algjörlega lúterskum grundvelli.
Yetrinum áðr en þýðing Tavemers kom út á Englandi, hafði
nefnd af enskum guðfrœðingum setið í Wittenberg á J)ýzka-
landi og rœtt fram og aftr um hvert orð og hverja setning
í Ágsb.játningunni við þá Lúter og Melanchthon. þeir
hurfu aftr til Englands eftir að hafa samið aðra játning
(Repetitio), sem í öllu verulegu var Ágsb.játningunni sam-
hljóða og sem menn vonuðu að leiða myndi til sameiningar
og samvinnu með hinni ensku kirkju og lútersku söfnuðun-
um á Saxlandi. þótt nú þetta fœri öðru vísi en ætlað var,
varð það samt til þess, að trúarjátningar ensku kirkjunnar,
hver á eftir annarri, sóttu mikið af efni sínu til Ágsb.játn.,
og er hin ágæta þýðing Taverners þá oft þrædd orði til orðs.
Hann hafði þó engan veginn ætlað hana guðfrœðingun-
um einum, heldr miklu fremr alþýðunni. Með örlátri
hendi stráði hann henni út um landið, því hrein-lúterskr
eins og hann var, þráði hann að enskr almúgi fengi aug-
un opin fyrir þeiin sannleikum, sem guðfrœðingum þýzka-
lands hafði tekizt með svo mikiili snilld og djörfung að
játa frammi fyrir forviða heimi. En tímarnir breyttust á
Englandi. Meðan María drottning sat aö völdum (1553 til
1558), var hafin hin grimmasta ofsókn gegn Prótestöntum
á Englandi. það var ekki nóg, að sumir af merkustu
mönnum Englands voru brenndir á báli eins og t. d. Cran-
mer erkibiskup, heldr var hafin rannsókn um land allt eftir
öllum þeim bókum, er töluðu máli siðbótarinnar; og það,
sem fannst, var brennt. þýðing Taverners af Ágsb. játn-
ingunni var auðvitað ein hin helzta meðal þessara bóka, og
munu flest þau eintök, er til voru af henni, þannig hafa verið
eyðilögð. Samt hefir skrifara nefndarinnar, hinum óþreyt-
anda dr. tí. M. Smuclcer1), tekizt að ná í eitt eintalc fyrir
afar-verð, og er það hið eina, er til er í landi þessu. Mál-
1) Dr. Smucker andaðist snögglega i Október, eftir aS ritgjörfi pessi
Ritst.
var samin.