Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.11.1888, Qupperneq 16

Sameiningin - 01.11.1888, Qupperneq 16
—152— það táknaði einhverja illa yfirnáttúrlega veru, og þótti sein- asta atkvæði orðsins, el, sem í semítisku tungunum er al- gengr orðstofn og þýðir velcli eða guð, staðfesta þá út- legging. Yar þá hugsað sér, að öðrum hafrinum á frið- þægingarhátíðinni hefði verið fórnað hinum sanna guði, Je- hóva, en hinum, þessum, er út í eyðimörkina var sendr, einhverri illri veru, sem þar var hugsuð eiga heima, eða jafnvel sjálfum djöflinura. þessi hertílega vitlausa biblíu- þýðing ruddi sér til rúms í Rabbínaguðfrœði Gyðinga eft- ir að þeir komu heim til lands síns úr bahylonsku her- leiðingunni, sumpart fyrir þá sök, að Gyðingar voru þá, rétt eins og margir Islendingar hér í Ameríku nú, búnir að hálf-missa sína eigin feðratungu, eða það mál, sem svo vel skildist af ísraelsmönnum meðan þeir voru börn eyði- merkrinnar og langt um lengr fram eftir öldum, en líka sumpart fyrir þá sök, að það festist eðlilega ýmisleg heið- ingleg hjátrú við fólkið meðan útlegð þess í Babylon stóð yfir. Og þessa rabbínsku vitleysu tóku svo löngu seinna kristnir guðfrœðingar inn í sína biblíuþýðing. Lexíur fyrir sunnudagsskólann; íjórði ársfjórðungr 1888. 0. lexía, sd. 2. Des.: Israel undir dómurum (Dóm. 2, 11—23). 10. lexia, sd. 9. Des.: Her Gídeons (Dóm. 7, 1—8). 11. lexía, sd. 16. Des.: Dauði Samsonar (Dóm. 16, 21—31). 12. lexía, sd. 23. Des.: pa'ð, sem Rut kaus sér (Rut. 1, 16—22). 13. lexía, sd. 30. Des.: Yfirlit við árslok. ©Innniíi tkki ab borga „Sam“. ÆáT Um leið og einhver kaupandi blaös ]>essa skiftir um bústaö, þá gjöri hann svo vel, að senda útgáfunefndinni linu um hina breyttu utanáskrift til hans, svo blað hans verði sent þangað sem það á að fara. ,,SAMEININGIN“ kemr út mánaðarlega, 12 nr. á ári. Verð í Vestrheimi $1.00 árg.; greiðist fyrir fram.—Skrifstofa blaðsins: 190 Jemima Str., Winnipeg, Manitoba, Canada. —Útgáfunefnd: Jón Bjarnason (ritstj.), Páll S. Bardal (féhirðir), Magnús Pálsson, Friðrik J. Bergmann, Sigurðr J. Jóhannesson. I’rentsmidja Lögbergs, Winnipeg.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.