Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1891, Síða 15

Sameiningin - 01.04.1891, Síða 15
I —31— þín jólaljós, þó jarönesk hverfi sólin, í Jesú nafni skíni til vor nú' Hvar birtist þú, ó. blföa jólastjarna ? þú birtist helzt í lífsins dýpstu sorg; þú rennr helzt í brjósti góðra barna á bak við dagsins glaum og fulla torg; þú þarft ei heimsins vopna, skjóls né varna. þú valdir fyrst þá minnstu landsins borg. þú velr hjartað. — Herra skapa í mér þaS hús, sem megi betr sóma þér, að ljósið þitt hið eilífa, hið eina, þar eignast mætti svo sem jötu hreina, hvar náðin þín, svo ný og fersk og hlý, í nafni Jesú mætti fœðast í. * * * Ó, lít í náð vor köldu hjartans hús, vor herra, guð, sem ert svo líknarfús; ó, þú, sem sendir sólarinnar ljós að signa stráiö, að það verði rós, hví skyldir þ'w ei sigra kulda’ og kíf og kveikja’ í mínu hjarta eilíft líf? þvo þú mig hreinan, svo að sómi þér, og sólin megi renna í brjósti mér, og sannr maðr megi skapast þar í mynd og- líking Jesú fyllingar. Ó, hjálpa mér að bjóða blessuð jól í brjósti mínu þinni kærleiks sói! þú, faðir alls, ó, vertu hjálp og vörn í voru stríði — Sjá hin smáu börn, sjá þau hin litlu ljósin vor og blóin, sem líða fyrir huldan skapadóm; ó, sýn oss, guð, þar grói bak við rós, og geymt sé hverju barni jólaljós! Öll veröldin er veikt og lítið skar í veldishendi þinnar dásemdar, lát nýja stjömu skreyta skýjatjald, svo skynji blindir þinnar náðar vald; þitt, þitt er allt, og allt er, guð, af þér, og í þér lifum, hrœrumst, erum vér. i

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.