Sameiningin - 01.11.1893, Side 2
130
5. þú, ísraelsvörðr eg vona þig á;
í vestrina’ er hnigin þín reiði;
í austrinu rennr ur eilífðar sjá
þín elskunnar sólin í heiði.
6. þótt djúp eins og höfin, þótt há eins og fjöll
sé hörmungin, neyðin og syndin,
]úg rúmar ei geimr né eilíföin öll,
þú, eilíf'a miskunnarlindin.
------^-oOo<-------
FJÁRSJÓÐ 111 N N MI K L I.
Prédikan út af Matt. 13, 4-1-50. — Flutt í Winnipeg sunnudagskvöld 14. Okt.
siðastl. af ritstjóra ,,Sam.“.
Heíir ];ú fundið nokkurn fjársjóð? Attu n<,kkurn fjársjóð?
Hefir þú trú á því, að nokkur fjársjóðr sé til? Leitar þú að
nokkrum fjársjóði?—Mér finnst eg heyri allar þessar spurning-
ar, þegar eg hugsa um fyrsta versið í þessum texta. Mér fin’nst
þetta upphafsvers texans koma með aliar þessar spurningar til
einstaklinganna hér í þessum söfnuði. Mér finnst hinn ósýni-
legi konungr kristninnar í gegnum textann vera að spyrja hina
einstöku þegna í ríki hans að öllu þe.'-su. Og það er meira en
íinyndan eða tilíinning hjá mér, þetta; því svo framarlega sem
textinn og sú bók, sem hann er tekinn úr, er í sannleika guðs
orð, eins og gjörvöll kristnin játar, þá hljóta þessar spurningar,
sem heyrast í gegnum textánn, að vera spurningar frá guði
sjúlfum. — En ef vér liugsum með nokkurri alvöru um þetta
guðs orð, þessa samlíking Jesú Krists um guðs ríki sem fésjóð
fólginn á akri, þá getum vér lieyrt enn þá íieiri spurningar
snertandi sarna eínið. Ef þú átt einhvern fjársjóð í eigu þinni,
eitthvaö það, er í sannleika er mikilsvirði, hvernig fer þú þá með
þann fjársjóð? Er ekki hætt við, að þú glatir honum? Ertu, ef
til vill, að missa hann? Og ef hann er að fara eða þér sýnist
liann vera að fara, ertu þá hryggr eða áhyggjufuilr, eða eins og
ekkert sé urn að vera? Sé fjársjóðrinn á förum, eða ef svo sýn-
ist, gjörir þú ];á nokkuð til þess að varna þvf, að svo fari? Hve