Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1893, Blaðsíða 3

Sameiningin - 01.11.1893, Blaðsíða 3
mikils virö’i er þér fjársjóðrinn? HvaS gjörir þú til þess aS tryggja þér eign hans í framtíðinni? Eða heldr þú, ef til viJl, að ekkert þurfi að gjöra í þessu skyni? — hættan sé engin fyrir því, að fjársjóðrinn missist eða veröi fráþér tekinn? — Jú, hætt- an er þar. það svnir sig í gegnum alla sögu mannkynsins, að hverjum einasta íjársjóði má glata, og dýrustu fjársjóðirnir sýnast vera í allra mestri hættu. Og þeir fara allir, undan- tekningarlaust allir, ef þeir eru ekki vel og vandlega geymdir; og þeir fara meira að segja, flestallir, fyr eða síðar, hversu vel sem þeir eru geymdir. En sá, sem kann að meta sinn fjársjóð, sá, sem virkilega elskar fjársjóðinn sinn, sá, sem skoðar nokkuð í eign sinni sannkallaðan fjársjóð, — hann heldr í hann dauða- haldi, þó að hann viti, að hann hlýtr að missa hann, og aldrei eins og þá. Heldr þú þá dauðahaldi { fjársjóðinn þinn? — Hald- ið þér hér allir dauðahaldi í bezta fjái’sjóðinn yðar? Hvað leggr hver einstakr yðar í sölurnar fyrir sinn dýrmætasta fjársjóð? Iívað leggr þessi söfnuðr í sölurnar fyrir þann dýrmætasta fjár- sjóð, sem honum hefir veríð trúað fyrir af guði almáttugum? Mig langar nú til að vitna það íyrir þessurn söfnuði, yðr öllum, sem eru hér staddir í guðshúsi þessu í kvöld, að lítíð er einskisvirði, nema því að eins að maðr hafi fundið einhvern virkilegan íjársjóð, — að lífið er einskisvirði, svo framarlega sem maðr hefir ekki augu fyrir neinu því, sem í sannleika er mikils virði, — sér ekki neitt það, sem hefir virkilega guðlegt gildi, neitt það, sem vert er að elska og lifa fyrir, og í gleði og sorg, í meðlæti og mótlæti, í lífi og dauða að halda í dauðahaldi. Og mig langar líka td að segja það, og segja það ekki í mínu nafni, heldr í nafni hins almáttuga, er talar í samvizku hvers einasta manns, í nafni hans, sein gefið hefir oss Jesúm Krist og það heilaga orð, sem við hann er kennt, — að þeir, senr hafna hinunr œðsta fjársjóði, sem til er, fjársjóði guðs ríkis, þeir, sem fótum troða þá dýrustu perlu, sem til er í andans ríki, kærleiks- opinberan kristindómsins, — þeir eiga ekki skilið að eignast neinn fjársjóð, þeir verðskulda ekki, að þeim sé gefin ein einasta góð gjöf af hinum almáttuga guði í hinrninum. Allir þeir, sem einhverja slíka góða guðs blessan eiga í eigu sinni, eiga ekkert betra skilið en að þeir væri sviftir slíkri blessan, slíkum.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.