Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1895, Síða 8

Sameiningin - 01.04.1895, Síða 8
—24— uSura vinum sínum hjarta sitt og líf sitt. Og þegar hin lítil- fjörlega gjöf frá hinum horfna, burtfarna, fjarlæga vini var tekin frara, þá stóð það Ijóst fyrir eigandanum, að hjarta þess, er gaf, fylgcli í sannleika með þessum litla hlut; gjöíin eða tryggðapantrinn knýtti saman tvö mannslíf, sem fyrir líkam- legum jarðneskurn augum sýndust aðslcilin. Ef þessi leyndar- dómsfulla kærleikssameining getr, eins og hún vissulega getr, kotnizt á milli tveggja ófullkominna, syndugra rnanna, hví skyldi frelsarinn, heilagr og alfullkominn, með líkamslífi því, er upphafið er yíir allar jarðneskar takmarkanir, ekki að sjálf- sögðu geta gefið endrleystum vinurn sínum hér á jörðinni, synd- urunum, sem liann elskar eins og guð einn getr elskað, sjálfan sig allan með „líkama“ sínum og „hlóði“ í og mcð og undir einhverri slíkri sýnilegri gjöf, einhverjum slíkurn jarðneskum tryggðapanti? Ekkert nrá virðast sjálfsagðara. Enda er það einmitt þetta, sem hann hefir gjört, með því að innsetja kvöld- máltíðar-sakramentið og ánafna lærisveinum sínum það sem hei- laga kærleiksgjöf þeim til trúarstyrkingar og andlegrar nautn- ar allt til daganna enda. Skoði þá allir kristnir menn kvöld- máltíðina drottins vors Jesú Krists æfinlega eins og þvílíkan heilagan tryggðapant frá honum, senr hefir elskað þá svo, að hann hefir gengið í dauðann fyrir þá og friðkeypt þá guði til handa nreð sínu blóði. Menn spyrja eðlilega um það, með hverju móti menn geti gjört sig hœfa eða „maklega" fyrir nautn kvöldnráltíðarinnar, því menn hafa það allir á tilfinningunni, að allir sé ekki í því andlegu ástandi, að rétt sé fyrir þá að ganga til guðs borðs. Og nrenn hafa það jafnframt almennt vor á meðal á tilfinningunni, að það sé ákafiega mikill ábyrgðarhluti, að taka þátt í máltíð þessari án þess að vera fyrir hana hœfilegr. Oss skilst ekki hetr en þeir nruni all-nrargir meðal vors fólks, þess hlutans af fólki voru einuritt, sem í f'ullri alvöru vill kristinn vera, senr hræðist að taka þátt í kvöldmáltíðinni rétt eins og þar væri sjálfum dauðanum að rnceta. Menn muna réttilega eftir þessum orðum: „Sá, sem óverðuglega etr og drekkr, hann etr og drekkr sér til dómsáfellis11 (1. Kor. 11, 29). Og svo halda nrargir kristnir menn í söfnuðum vorum sér frá hinu heilaga borðhaldi, til þess að hleypa sér ekki í þessa andlegu hættu.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.