Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1896, Síða 5

Sameiningin - 01.11.1896, Síða 5
—133— betr hinu andlega alvæpni, sem hann liefir fengið kristni sinni. 0g svo skyldi þá enn fremr út af sömu endrminningunni sálir kristinna manna fyllast sigrihrósanda fögnuði út af því, að eiga það fyrir höndum innan skamtns, þá er trúarbaráttunni jarð- nesku væri lokið, að verða með í hópi allra lieilagra á himnum, verða hrifnir burt úr mótlætismyrki i þessa lífsupp í himin guðs og skína þar um eilífa tíð eins og bjartar og blikandi stjörnur. Eg sleppi því nú í augnabliki, að þá er tímar liðu fram, fœrðist villumyrkr hjátrúarinnar yfir helgi allra heilagra messunnar, að hún var brátt syndsamlega misbrúkuð, varð með tbnanum að heiðinglegri dýrlingadýrkan, sem að miklu eða öllu leyti byrgði fyrir hið alskæra sannleiksljós kristnu trúarinnar. .Eg hugsa að eins um daginn samkvæmt trúarhugsan þeirri, er upp- haflega var sett í samband við hann. Og þá segi eg hiklaust: Sú hugsan var í mesta máta göfug, og samkvæmt henni hlýtr dagrinn ávallt að standa fyrir trúarmeðvitund kristinnar kirkju eins og dagr angrblíðra endrminninga.—Allra heilagra messan er æfinlega 1. dagr Nóvembermánaðar. þegar ’nin lúterska trúarbót náði sér niðri í hinum kristna heimi, var hinum kaþ- ólsku messudögum störurn fækkað, og þegar enn lengra leið fram, voru þeir í hinum lútersku löndum flestallir algjörlega afteknir sem helgidagar. Af helgidögum þcim frá kaþólskri tíð, sem ekki beinlínis voru knýttir við æflsögu frelsaran.s sjálfs, er nú fyrir æfalöngu í þeim hluta kiústninnar, sem vér teljum oss til og sögulega tilheyrum, að eins einn eftir,—allra heilagra messan. Og þó að eins í þeim árum í fullu gildi hjá oss, þegar 1. Nóvember ber upp á sunnudag, eins og nú í ár. Hún er þá sami kirkjulegi helgidagrinn eins og forðum. í öllum öðrum árum er dagrinn í vorri kirkju eins og hver annar rúmhelgr dagr, en jafnframt er ætlazt til, að hinum sérstöku guðrœknis- hugsunum, sem upphaflega gjörðu daginn að helgidegi, sé við hinai opinbcru gutsþjónustur safnaðanna haldið á lofti næsta sunnudag á ettir, með því að hinir gömlu biblíutextar, er endr fyrir löngu voru ákveðnir fyrir allra heilagra messuna.pistillinn og guðspjallið, eru fluttir inn á þann drottinsdag, hver sem hann er í röðinni meðal sunnudaganna eftir trínitatis. í ár jrarf ekki til neins þvílíks flutnings að korna, fyrir þá sök, að 1. Nóvember ber upp á sunnudag, svo allra heilagra messan heldr

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.