Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.11.1896, Qupperneq 10

Sameiningin - 01.11.1896, Qupperneq 10
—138— nálega óendanleg trú á hindrvitni 02 ókristilesar mannasetn- ingar, ímyndað verkaréttlæti og dýrlinga-tilbeiðsla, en nálega engin liugmynd um guðs orð, nálega engin trú á endurlausnar- verkið og friðþæginguna frelsarans. í þannig löguðu andrúms- lofti var allt það fólk upp alið. Hví skyldi ekki allr þorri fanganna, þegar þeir voru svo óvænt sloppnir út úr myrkva- stofum borgarinnar, koma nálcvæmlega eins fram og þeir gjörðu? Nú var tœkifœri fengið til þess að ná sér niðri á mann- félaginu, þegar borgin lá í rústum, hefna sín á lögunum og stjórnarvaldinu fyrir það, að frelsið hafði verið frá þeim tekið. Ekkert var nú til að halda ranglætismanninum í þeim aftr. Hefði þeir, áðr en fangelsi þeirra opnuðust, verið búnir að læra að þekkja frelsara sinn, þá myndi framkoma þeirra eftir að þeir komu út hafa orðið allt önnur en reynd varð á. Ef þeir hefði heyrt einhvern þar inni í fangelsinu hjá sér biðja og lof- syngja guði eins og þeir Páll og Sílas gjörðu í fangelsinu í Filippí í áheyrn sinna sambandingja, þá iná telja alveg víst, að lijörtu þeirra flestra hefði orðið svo guðlega snortin, að þeir hefði á lausnarstundinni gengið út til að líkna og bjarga í stað- inn fyrir að ræna og fremja önnur hræðiieg glœpaverk. — Svo mikið getr það þýtt ávallt og alls staðar, að ijósi kristnu trúar- innar sé haldið að mannssálinni. Svona mikinn mismun gjörir jiað fyrir velfarnan hins borgaralega mannfélags — í við- bót við þá velfarnan, sem liggr í hinni persónulegu sáluhjálp—, hvort kristindóminum, sönnum og ómenguðum biblíulegum kristindómi, er haldið að almenningi, ellegar þessi sami almenn- ingr er útilokaðr frá ljósi kristindómsins. Og þessi mikli munr ætti þá meir en að duga til þess að sannfœra alla menn, einnig þá, sein fvrir sjálfa sig þykjast upp úr því vaxnir að trúa eins og kristnir menn. um það, að það er algjört lífsspursmál fyrir lönd og lýði, að sönnum kristindómi sé haldið á lofti í öllum áttum mannfélagsins, og þess vegna þá ]ika, að sú stofnan, sem boðskapr kristindómsins út gengr frá, kristinn söfrmðr, kristi- leg kirkja með hreinni og óafbakaðri trúarjátning, sé hvervetna til í mannfélaginu, að jafnt og stöðugt sé kristilegu trúb >ði haldið áfram í sama anda eins og þeim, er var lífið og sálin í kristniboði þeirra Páls postula og Sílasar frammi fyrir sam- bandingjum þeirra í fangelsinu í Filippí og hvar annars staðar,

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.