Sameiningin - 01.04.1898, Side 3
í>að, sem mest er og bezt í bókmenntum
heimsins.
(Niðrlag.)
þegar Dean Stanley beimsótti Heinrieh v. Ewald, lá nýj a
testamentið gríska í smáútgáfu einni á borðinu. það féll ú
gólfið og Ewald tók þaö upp. En um leið og hann lagði það aftr
á borðið,komst hann við og sagði í reglulegum guðmóði: „I þessari
litlu bók er fólginn bezti vísdómr heimsins." Hafði hann ekki
rótt að mæla? Tökum hin fimm helgirit Confucíusar, „Veda“-
bœkrnar, „Tripitaka“, allt safn „hinna helgu bóka austrlanda“,
„samtöl“ Platons, „siðfrœði“ Aristotelesar, siðfrœðisritgjörðir
Síserós, „handbók“ Epiktetusar, bréf Seneku, „hugleiðingar"
Markúsar Árelíusar, kóran Múhameðs—öll ágætustu blóm siða-
lærdómsins heiðna; og snúum oss svo að bókmenntum kristn-
innar, og tínuin saman allar göfugar hugsanir, sem vér finnum
hjá kirkjufeðrunum, skólaspekingunum á miðöldunum, dul-
spekingunum, í ritinu eftir Kempis „Krists eftirbreytni“, hjá
Tauler og Bunyan og fleirum og tleirum. Og þar sem vér í
öllum heiðnum ritum og sumum hinna kristnu munum finna
sitthvað ófullkomið og sumt jafnvel skaðlegt, þá er óhætt að
fullyrða, að hvorki í ritunum frá tíðinni fyrir Krist nó þeim
frá tiðinni eftir Krist sé nein sú siðgœðishvöt eða sannleiks-
meginregla fyrir 1 fið tekin fram—að eg nú ekki nefni dýrstu
sannindi trúarinnar—, að ekki megi fœra fyrir þeim kenning-
um dýpri ástœður og kröftugri rökstuðning með því, sem ritað
stendr í nýja testamentinu einu, ekki stœrri bók en það þó er.
Hugsum um þetta, og bœtum svo við það þeim eiginlegleika
nýja testamentisins, að það á jafnt við allt fólk, ungt og gamalt,
á hvaða menntunarstigi sem það stendr, og í hvaða kjörum sem
það er, á öllum öldum, í hvaða landi eða loftslagi sem vera skal
og hverjum þjóðflokki sem það til heyrir. Og myndi svo ekki
þetta, auk alls annars, sem enn mætti taka fram, ómótmælilega
sýna og sanna, að þetta helga ritsafn á sæti efst í bókmenntum
heimsins og hefir þann hugsunarstyrk í sór, sem enginn annar
rithöfundr getr keppt við? — —
------Og svo að ending örstutt yfirlit yfir rit hins nýja
sáttmála í hinni eðlilegu röð þeirra.
Matteusar guðspjall er guðspjall hins g.yðing-kristna rnanus