Sameiningin - 01.04.1898, Page 8
24 -
ancllega lífssameining meðal kristinna manna, Og sú sameining
verðr að koma í ijós. Trúaðr maðr leitar því eftir vinum. Ofr-
lítill vinaíiokkr, brœðrahópr, getr þannig myndazt. Og slik
smáfélög geta haft fullkomna lieimild. Ofr-lítill þvílíkr brœðra-
hópr getr oröið til mikillar blessunar, mikils fagnaðar og trúar-
styrkingar.
En nú spyrjum vér: Getr þessi smáhópr veittallt, sem trú-
arlífið þráir? Er þessi smáhópr fœr um að leysa af hendi öll
þau ætlunarverk, sem drottinn hefir fengið kristnum mönnum í
heiminum? Hefir ekki guð líka stœrri fyrirætlanir handa trú-
uðum mönnum hér á jörðu?
Vissulega. Og hér birtist oss þá kirkjan, kirkjufélagið,
sem verlcfœrið í guðs hendi til að framkvæma hin miklu ætlun-
arverk, sem guð hefir fyrirhugað trúuðum börnum sínum, gagn-
vart heiminum, sem enn þá eigi þekkir guð, og gagnvart trúuð-
um einstaklingum.
En nú kemr cfinn. þegar misfellurnar og ágallarnir í fari
kirkjufélagsins gæg.jast fram, þegar allir brestir þess og ófull-
komleikar koma í ijós, þá fer maðr að efast um þýðing félags-
lífsins, af því maðr fer að efast um, að svo ófullkomið félag sé
fœrt um að leysa af hendi svo mikil ætlunarverk, og óttast fyrir,
að ætlunarverkin sé hœfileikum þess og kröftum ofvaxin.
Að sönnu vitum vér allir. að þessi sýnilega kirkja eða þessi
ýmsu jarðnesku kirkjufélög geta aldrei verið né orðið annað en
ófullkomin að öllu leyti. Vér vitum, að söfnuðr guðs á jörðinni
er ekki skrýddr brúðkaupsklæðum, hvorki að einu né neinu
leyti; heldr gengr hann þvert á móti í sorgarbúningi meðan hann
dvelr á jörðu. En þegar vér sjáum, hve mikinn tálma hin ytri
skilyrði og ldutföll kirkjufélagsins geta lagt á leið þess, þar sem
Jaið er að reka erindi sitt í þjónustu drottins, þá er hœgt að
skilja það, að til eru þeir, sem vakna láta hjá sér vantraust til
þessa kirkjufélags. Og þá getr þessi spurning virzt hafa mikið
til síns máls. Er svo ófullkomin kirkja fœr um a.ð vera það,
sem hún samkvæmt tilgangi drottins á að vera? Og getr það
haft nokkra þýöing fyrir hvern trúaðan einstakling að vera
henni tengdr?
Vér segjum, að þvílík spurning gæti virzt hafa nokkurn
rétt á sér. En þá hlyti líka herra kirkjunnar, að hafa gefið oss