Sameiningin - 01.04.1898, Blaðsíða 14
—30—
Íandnámsmaðrinn í hinni víðlendu og bldmlegu íslendinga-
byggð út frá Pembinafjöllum í Norðr-Dakota. Meðal annars
hafði hann rétt á undan fundarhöldum þeim, sem að framan er
getið, gefið hinni nýju kirkju sinui ágæta klukku, sem kostaði
100 dollara eða vel það. En að því, er snertir hina kirkjuna,
þá í Pétrssöfnuði, þá á hún fremr öllum öðrum tilveru sína að
þakka hr. Guðmundi Eiríkssyni, fyrrum bönda að Helluvaði
við Ytri Rangá í Rangárvaliasýslu á íslandi. j)að varð meðal
safnaðarmanna ágreiningr nokkur í fyrra um það, hvar kirkjan
þeirra skyldi standa. En þá bauðst þessi rnaðr ótilkvaddr til
að leggja til kirkjustœði á landi sínu og koma svo ltirkjunni
upp sjálfr að öllu leyti með hjálp þeirri, sem hann fengi frá
söfnuðinum, hvort sem hún yrði meiri eða minni. Og við þetta
tilboð sitt hefir hann mjög drengilega staðið. Kirkjan, sein
hann með hjálp velviljaðra manna í söfnuðinum hefir lát'ð
reisa, er fagrt minnismerki um göfuglyndi Guðmundar og konu
hans. Agreiningrinn út af kirkjubygging þessari, sem þegar
var á drepið, varð að vísu orsök til þess, að nokkrir menn gengu
úr söfnuðinum, en eftir að kirkjan nú er komin svo myndarlega
upp, er vonanda, að aftr verði bráðlega fullkomin sameining í
kirkjumálum þar í byggðinni.
Væntanlega birtist seinna í blaði þessu nákvæm lýsing á
hvorritveggja þessara nýju kirkna. Og komið hefir til orða, að
„Sameiningin'1 áðr en langt líðr kœmi ineð myndir af þeim
báðum.
--.-------------------
Frá Minnesota.
Eftir sóra Björn B. Jðnsson.
Eins og til stóð var í sambandi við reformazíónardaginn,
31. Okt. síðastl., missíónar-starfsemin rœdd í söfnuðum þessa
prestakalls. Aðalsamkoman fór fram í kirkjunni í Minneota
og flutti við það tœkifœri dr. Wahlström, rektor lærða skólans
í St. Peter, stór-inerkilegan fyrirlestr um siðabótina. Samskota
var leitað til styrktar trúboði kirkjufélagsins, og námu þau að
upphæð tíu doll.
Um miðjan Nóvember fór fram trúarsamtalsfundr í St.
Pálssöfnuði. Yoru þar, auk annarra, fulltrúar allra safnaða