Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1899, Blaðsíða 3

Sameiningin - 01.09.1899, Blaðsíða 3
99 ingi, heimkoma, — koma til bræðra og vina. Hinn fyrsti hvatamaður til farar minnar þangaö vestur var Jón Filippus- son, skagfirzkur maður. I þeirri ferð myndaðist þar söfnuð- ur, Melanktons-söfnuður, er nú heyrir kirkjufélagi voru til. Langflestir bygðarmanna tilheyra þeim söfnuði, ég held nálega allir. Átt hafa safnaðarmenn við lestrarsamkomur, á sunnudögum og hátíðum, og sunnudagsskólahald, en hvoru- tveggja er ábótavant, sem eðlilegt er, þar sem slíkt starf er í byrjun. Söfnuðurinn á ekkert húsnæði, sem ekki er heldur von, en guðþjónustur hafa nú í tvö skifti verið fluttar í ,,fé- lagshúsi ‘ ‘, eða skólahúsi, sem stendur við ána, er bygðin dreg- ur nafn af, á aðal bújörð Einars M. Vestfjörðs og sona hans. þangað hafa lestrar verið sóttir og sunnudagsskólinn haldinn þar.—Alþýðuskóla-kennari þar er nú þorsteinn Pálmason frá Hallson. Ekki flutti ég í þetta sinn nema eina guðsþjónustu. Við hana gengu nokkrir til altaris. Ennfremur talaði ég yfir 3 leiðum, og skírði 10 börn. Alls hefi ég skírt í þessari bygð 31 barn, talað yfir 10 leiðum, fermt 6 ungmenni, tekið 50 manns til altaris, flutt 5 prédikanir og vígt grafgreit bygðarmanna. Hvað sunnudagsskólahald snerti, snéri ég mér til Stefáns S. Einarssonar og Mrs. Davíðsson. Treysti ég þeim vel í því máli og vona eftir góðum árangri af iðju þeirra, þó sunnudags- skóla-hald út í sveit sé mjög erfitt verk. Nokkrir safnaðarmenn hafa gerst kaupendur, ,,Kennar- ans“ og lesendur ,,Sam. “, en langt of fáir. ,,Aldamót“ hygg ég að ekki hafi verið þangað send. Á það atriði er vert að minnast, því það hefir ekki litla þýðingu, hvort rit kirkjufé- lagsins eru lesin eða ekki. Auk þess að þar, sem þau eru les- in af mjög fáum, verður starf kirkjunnar ókunnugt og van- skilið, er það bein þörf fyrir fólkið að lesa eitthvert það rit, er talar máli trúarinnar og frelsarans, þar sem svo margt hef- ir gengið í þjónustu hins illa, og aldrei er þreyzt á að halda á lofti hinum óhollustu skoðunum, í ýmsum ritum, sem þjóð vorri berast nú. })aö er hvorttveggja, að fólk út um bygðirn- ar styður ekki sem skyldi sín eigin kristindómsrit, sem fiytja því hinar þörfustu hugvekjur, enda er of lítið unnið að út-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.