Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1899, Blaðsíða 4

Sameiningin - 01.09.1899, Blaðsíða 4
IOO breiöslu þeirra. íslendingar eru fremur hagmæltir en hag- sýnir, eiga fleiri skáld en ,,business“-menn. Ur þessu þarf bráö-nauösynlega að bæta. Pappír og prentsverta á ekki minsta þáttinn í menningar- og kristindóms-ástandi vorrar tíðar. Bygð þessi er ung. Hinn fyrsti íslenzki landnemi flutti þangað 1887. J)ó þangað hafi fluzt blásnauðir menn, er hag- ur þeirra nú sagður mjög góður. Alment eru menn þar mjög ánægðir, þó þaðan flyttu síðastliðið vor nokkrir búendur (um 50 sálir) til Canada. Til þessa hafa búendur stundað þar ein- göngu íslenzkan landbúnað— kvikfjárrækt. Aftur eru nú nokkrir að byrja á jarðyrkju. Húsabyggingum er þar hvað helzt ábótavant, enda um engan skóg að gera, eða efnivið til húsagerðar, í grend við bygðina, sem í Nýja-íslandi, Rosseau og víðar. Járnbrautir liggja 17 og 25 mílur frá landnámi Is- lendinga,—að austan og sunnan. Mikill innflutningur er í sveitina, þó ekki af Islendingum. Bygð þessi þykir máske ekki fögur, en hún er, þar sem Isl. búa, mjög björguleg. Hvergi hefl ég séð annan eins grasvöxt, né svipaðan dugnað við heyannir, sem þar. Á ferðum mínum þangað hefir mér verið tekið sérstak- lega vel, og ekkert látið ógert til að styðja verk mitt, auk persónulegra vináttu-atlota, sem ég hefi mætt og þakka hér með. Söfnuðurinn hefir sjálfur samið við mig um þessar ferð- ir mínar þangað, og látið í ljósi ósk sína um frekari þjónustu frá minni hálfu í framtíðinni. Guðmundur Frímann, ungur bóndi, hygginn og vel met- inn, er formaður Melanktons-safnaðar. Hann er vafalaust með stærstu, eða stærsti íslenzki bóndinn vestan hafs. Guð blessi allan hag fólksins þar, en einkum trú þess og kristindóm, og gefi kirkju vorri þar góð börn og guðelsk- andi menn. Austur til hinnar nýju bygðar Islendinga í Rosseau Co., Minnesota, fór ég svo í ágústmánuði. Vegir voru torfærir, og talsverðir meinbugir á því ferðalagi. þó gat ég komist til landa minna fyrir sunnudaginn 13. ág. (11. s. e. tr.). TiJ

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.