Sameiningin - 01.09.1899, Page 8
104
Agrip af sögu „General Councils“.
(Pramli.).
})aö var tilgangur leiðtoganna, sem unnu að stofnun
General Councils áriS 1867, að láta ráSstefnuna innibinda
öll lútersk félög í Bandaríkjunum og Canáda, sem væru á-
kveöin í því, að halda fast við játningarrit lútersku kirkjunnar.
AS koma öllum slíkum félögum til aS ganga í bræðralag og
bindast eins frjálslegum félagsböndum eins og unt var, virSist
hafa verið hiS eina, sem vakti fyrir þeim leiStogum. það var
falleg hugmynd, og gjörSu þeir sér mjög glæsilegar vonir um þá
blessun, sem mundi leiða af þeim félagsskap. I fyrstu leit
líka út fyrir, aS þetta mundi ætla að hepnast; því á undirbún-
ingsfundinum, sem haldinn var í Reading í Pennsylvania, áriS
1866, áSur en General Council var formlega stofnaS,
mættu fulltrúar frá því sem næst öllum lúterskum kirkjufé-
lögum utan General Synódunnar. Jafnvel þau, sem fylgdu
hinni allra ákveSnustu íhaldsstefnu, eins og Ohio-, Wisconsin-
og Missouri-sýnódurnar, höfSu sent fulltrúa þangaS.
En þaS gat þó ekki orðiS, að General Council inni-
bindi öll þessi félög. ÁstæSan fyrir því var sú, að Ohio-sýn-
ódan sendi fyrirspurnir til stofnþingsins 1867, sem þingið svar-
aSi þannig, aS sýnódan gat ekki verið ánægS meS þau og af-
réS aS ganga ekki inn í sambandiS. Missouri-sýnódan gekk
ekki heldur inn, og nokkur af þeim kirkjufélögum, sem gengu
í sambandið í fyrstu, sögðu sig innan skams úr aftur, af sömu
ástæðu.
Spurningarnar, sem lagSar voru fyrir fyrsta General
Council-þingiS, voru þessar:
1. Hver verSur afstaSa þessa félags-sambands gagnvart
kenningunni um þúsund ára ríkið?
2. Mun þaS leyfa öSrum en meSlimum sfnum aS neyta
heilagrar kvölmáltíSar viS ölturu sín?
3. Mun þaS, undir nokkrum kringumstæSum, leyfa ólút-
erskum prestum aS prédika í lúterskum kirkjum?
4. Hver verður afstaða þess gagnvart leynifélögum?
Ohio-sýnódan og hin önnur félög, sem eins litu á málin,