Sameiningin - 01.09.1899, Síða 10
io6
árum var lagöur fastur trúarlegur grundvöllur undir framtíöar-
starfsemina.
Ein stofnan hefir ef til vill átt meiri þátt í því, en nokkrar
aörar, aö skapa þann sérstaka anda, sem einkennir General
Council. það er prestaskólinn í Philadelphia. Hann var
reyndar stofnaöur rétt áður en General Council var mynd-
að, og var þá undir stjórn Pennsylvania-sýnódunnar, en
komst undir stjórn General Councils þegar það félag var
myndað, og hefir sá skóli undirbúið flesta þá presta þess, sem
hafa prédikað á ensku og þýzku.
Af öllum þeim prófessórum, sem kendu við þann skóla á
fyrri árum, eru tveir menn, sem eru sérstaklega merkilegir,
dr. C. P. Krauth og dr. B. M. Schmucker. Feður þeirra
beggja voru prófessórar við prestaskóla General Sýnódunnar
í Gettysburg, og var faðir hins síðara, dr. S. S. Schmucker,
á sínum tíma leiðtogi þeirra manna í félagi sínu, sem minsta
áherzlu vildu leggja á alt það sem er sérkennilegt við lút-
ersku kirkjuna. Guðfræðis-mentun þessara tveggja ungu
manna miðaði þess vegna alls ekki í þá átt,að gjöra þá strang-
lúterska.
Á fyrstu árum prestskapar síns höfðu þeir söfnuði í ná-
grenni hvor við annan, í afskektum dal einum í Virginia-ríki.
þeir sömdu það með sér, að dvelja saman að minsta kosti
eina viku í hverjum þremur mánuðum. þar að auki skrif-
uðust þeir oft á. Öll þessi samvinna þeirra miðaði í þá átt,
að kynna sér betur hinn sanna grundvöll lútersku kirkjunnar.
þeir lásu rit þýzku guðfræðinganna af kappi, og komust að
raun um, að eitthvað mundi bogið við þáverandi guðfræðis-
kenslu í General Sýnódunni. því meir sem þeir lásu af hinni
þýzku guðfræði, því meiri aðdáun fyltust hugir þeirra og
hjörtu fyrir öllu sem er sann-lúterskt. þeir voru iðnir við
verk sitt, þessir menn. Hér söfnuðu þeir kröftum, sem komu
að góðu haldi seinna. Hér fæddist framtíðar-sefna ,, General
Councils.
Dr. Krauth var lengi forstöðumaður prestaskólans í
Philadelphia. Hann var ákafur starfsmaður; því fyrir utan
starf sitt við prestaskólann, var hann ritstjóri að hinu enska