Fréttablaðið - 23.12.2010, Side 10
23. desember 2010 FIMMTUDAGUR
BANDARÍKIN, AP Barack Obama
Bandaríkjaforseti efndi eitt af
kosningaloforðum sínum í gær
þegar hann undirritaði lög sem
afnema bann við því að samkyn-
hneigðir hermenn í Bandaríkjaher
tjái sig opinskátt um kynhneigð
sína.
„Þessi dagur er kominn,“
hrópaði Mike Almy og fór ekki
dult með ánægju sína. Hann
var majór í flughernum þar til
fyrir fjórum árum, þegar hann
var rekinn eftir að upp komst
um kynhneigð hans. „Nú þarf
ekki lengur að lifa í lyginni.“
Yfirmenn varnarmálaráðuneytis
Bandaríkjanna vara þó við því að
menn fagni of snemma. Enn á yfir-
stjórn hersins eftir að setja reglur
um framkvæmd nýju laganna, auk
þess sem hún þarf að staðfesta að
breyttu reglurnar hafi engin áhrif
á getu hersins þegar á reynir.
Meðal annars segir varnarmála-
ráðuneytið nauðsynlegt að huga að
kostnaði við fræðslu um samkyn-
hneigð, sem veita þurfi hermönn-
um, auk þess sem skipuleggja
þurfi hvernig taka eigi á samkyn-
hneigð þegar svefnplássi í herskál-
um er úthlutað.
Þótt það ferli geti allt saman
tekið fleiri mánuði, enda hefur
yfirstjórn hersins ekkert verið að
flýta sér í þessu máli, þá marka
nýju lögin engu að síður tímamót
í sögu samkynhneigðra í Banda-
ríkjunum.
Frá því að Bill Clinton var for-
seti hefur samkynhneigðum verið
leyft að gegna herþjónustu, en þó
því aðeins að þeir segi engum frá
kynhneigð sinni. Á móti fengu þeir
tryggingu fyrir því að yfirmenn í
hernum myndu ekki spyrja þá um
kynhneigðina.
Þetta átti að vera málamiðl-
un milli Clintons og yfirstjórnar
hersins, sem var treg í taumi til
að leyfa breytingar. Þessi mála-
miðlun var frá fyrsta degi þyrn-
ir í augum samkynhneigðra enda
viðhélt hún í reynd banni við sam-
kynhneigð í hernum.
Barack Obama getur líka fagnað
því að hafa náð þessu máli fram á
síðustu dögum þingsins þetta árið.
Strax eftir áramót kemur saman
nýtt þing, sem kosið var í nóv-
ember síðastliðnum, og þá missa
demókratar meirihluta sinn í full-
trúadeild.
Allt bendir til þess að honum
muni á allra næstu dögum einnig
takast að fá þingið til að sam-
þykkja nýjan samning við Rúss-
land um fækkun kjarnorkuvopna.
- gb
Nú þarf ekki lengur
að lifa í lyginni.
MIKE ALMY
FYRRVERANDI MAJÓR
Í FLUGHER BANDARÍKJANNA
vodafone.is
Meiri jól,
meiri jól,
meiri jól
Við afborgunarverð á farsímum bætist 250 kr. greiðslugjald á mánuði.
Glæsilegur Google sími með Android
2,2 stýrikerfi, íslensku valmyndarkerfi
og snertiskjá. Farsíminn er með 3,15
megapixla myndavél og býður upp á
flýtileiðir á vefsamfélög eins og
Facebook. Með símanum fylgja
mánaðaráskrift að Tónlist.is og
platan Best of Bang Gang.
LG Optimus One
0 kr. útborgun
og 4.166 kr. á mán. í 12 mán.
Netið í símann, 100 MB,
fylgir með í 1 mánuð.
Staðgreitt: 49.990 kr.
Partý Alias er nú uppselt hjá okkur. Við
þökkum frábærar viðtökur og hvetjum
þá sem eiga spil hjá okkur að sækja
þau sem fyrst í næstu verslun
Vodafone. Við bjóðum áfram frábær
kjör á flottum símum.
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Humar
STÓR • smár • Skelflettur
ALVÖRU HUMARSOÐ
Opið í dag til
kl. 22
• FRÁ HORNAFIRÐI
• ENGIN AUKAEFNI
• ALGER HIMNASENDING
LAXAFLÖK
BEINHREINSUÐ OG FLOTT
INNBAKAÐUR HUMAR
Gleðileg jól
Aðfangadag
frá kl. 8–14
Þurfa ekki lengur
að ljúga í hernum
Samkynhneigðir Bandaríkjamenn þurfa ekki lengur að ljúga til um kynhneigð
sína til að mega gegna herþjónustu. Yfirstjórn Bandaríkjahers ætlar þó að gefa sér
góðan tíma til að undirbúa framkvæmd laganna, sem Obama hefur undirritað.
UNDIRRITUN LAGANNA Barack Obama undirritar lögin að viðstöddum leiðtogum
demókrata á þingi, þeim Nancy Pelosi og Harry Reed. FRÉTTABLAÐIÐ/AP