Fréttablaðið - 23.12.2010, Blaðsíða 42
23. desember 2010 FIMMTUDAGUR26
timamot@frettabladid.is
Búist er við að þátttökumet verði sleg-
ið í 1.500 metra sundi hjá Sunddeild
Breiðabliks í dag. Sundið er orðið tut-
tugu ára hefð og hafa þátttakendur
aldrei verið fleiri en í ár. Fimmtíu og
tveir keppendur eru skráðir til leiks
og munu allir keppa í einu, um fimm
keppendur á hverri braut.
Þórdís Hrönn Pálsdóttir er ein af
þeim sem þreyta sundið og segir hún
oft vera handagang í öskjunni þegar
svo margir séu í lauginni í einu. „Við
syndum skriðsund, kannski einstaka
byrjendur grípi aðeins í bringusund.
Flestir eru að synda til að fylgjast
með eigin framför eða halda sér í
það góðu formi að þeir komist 1.500
metrana léttilega. Þetta er þó alvöru
keppni og við syndum öll 52 í einu,
18 konur og 34 karlar, fimm til sex
á hverri braut, það getur verið bæði
erfitt og hættulegt ef margir reyna
að komast fram úr í einu.“
Þórdís fór að æfa sund fyrir rúmum
sex árum, þá 38 ára gömul. „Ég komst
varla 50 metrana á skriðsundi fyrir
rúmum sex árum, en fór þá á skrið-
sundsnámskeið og í framhaldi af því
að æfa með Görpunum í Breiðabliki.
Í dag fer ég létt með 1.500 metrana og
er ein þriggja kvenna sem hafa klárað
Drangeyjarsund,“ segir hún hróðug.
Garpar eru sundmenn eldri en 25
ára sem hafa ekki tekið þátt í almenn-
um keppnum í að minnsta kosti tvö ár.
Einnig mætir til leiks hópur þríþraut-
armanna, en 1.500 metrar eru einmitt
vegalengdin sem synt er í ólympískri
þríþraut. Meðal keppenda er sjálf-
ur Íslandsmeistarinn í 1.500 metra
skriðsundi á fimmtíu metra braut,
Ragnar Guðmundsson, en hann setti
metið 15.57.54 í Seúl fyrir rúmum 22
árum.
Sundið hefst í Kópavogslauginni í
dag klukkan 8.20 og eru áhorfendur
að sjálfsögðu velkomnir.
fridrikab@frettabladid.is
ÞORLÁKSMESSUSUND GARPA 20 ÁRA: FIMMTÍU OG TVEIR Í LAUGINNI Í EINU
Komst fyrst varla 50 metrana
VICTOR BORGE (1909-2000) dó á þessum degi
„Jólasveinninn kann tökin á þessu, heimsækir
fólk bara einu sinni á ári.“
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STÆLT Flestir synda til að
halda sér í góðu formi,
að sögn Þórdísar Hrannar
Pálsdóttur.
Ástkær sambýlismaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Ari Jóhannesson
fv. póstrekstrarstjóri, Gullsmára 9,
lést á Landspítalanum í Fossvogi þann 21. desember.
Útförin fer fram fimmtudaginn 30. desember frá
Fossvogskirkju kl. 15.00.
Svanfríður Stefánsdóttir
Kristín Aradóttir Kjartan Kjartansson
Anna Þóra Aradóttir Karl Viggó Karlsson
Jóhannes Ari Arason Sigrún Hallgrímsdóttir
Árni Alvar Arason Elsa Ævarsdóttir
Sigrún Arna Aradóttir
barnabörn og barnabarnabarn
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför bróður okkar og mágs,
Ólafs Ágústssonar
Skaftahlíð 13, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Vífilsstaða, síðar í
Mörkinni, hjúkrunarheimili.
Erla Eyjólfsdóttir
Loftur Andri Ágústsson Kristjana Petrína Jensdóttir
Ingibjörg Ágústsdóttir Árni Sigurjónsson
Svanhildur Ágústsdóttir
Innilegar þakkir sendum við öllum
þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður okkar, stjúpföður, tengda-
föður, afa, langafa og langalangafa
Steindórs Valbergs
Kristfinnssonar
rafvélavirkja, Tjarnarlundi 5b,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins í Asparhlíð fyrir
yndislega umönnun og vináttu. Guð blessi ykkur öll.
Laufey Vilhelmsdóttir
Vilhelm Valberg Steindórsson
Dýrleif Kristín Steindórsdóttir Bjarki Viðar Hjaltason
Gísli Viðar Steindórsson Hólmfríður Einarsdóttir
Steindór Valberg Steindórsson Þóra Gígja Jóhannsdóttir
Auður Hafdís Steindórsdóttir
Ómar Valur Steindórsson Eyrún Níelsdóttir
Eygló Sif Steindórsdóttir Óli Jóhann Daníelsson
Helena Sjöfn Steindórsdóttir
Kolbrún Hilmisdóttir Jón Zophoníasson
afa-, langafa- og langalangafabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma
Herdís Antoníusardóttir
frá Núpshjáleigu á Berufjarðarströnd,
Skúlagötu 20,
sem lést föstudaginn 17. desember á Öldrunardeild
Landspítalans, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju
þriðjudaginn 28. desember kl. 13.
Fyrir hönd fjölskyldunnar:
Jóhanna Antonía Sigsteinsdóttir
Sigurbergur Sigsteinsson Guðrún Hauksdóttir
Oddný Sigsteinsdóttir Líney Rut Halldórsdóttir
Sjöfn Sigsteinsdóttir Finnur Pálsson
Þröstur Sigsteinsson Soffía Sturludóttir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi
Einar A. Færseth
Sautjándajúnítorgi 7, áður Smáraflöt
40, Garðabæ,
andaðist á líknardeild Landakots, sunnudaginn
28. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hins látna. Sérstakar þakkir til Heimahlynningar
krabbameinssjúkra og líknardeildar Landakots.
Þökkum auðsýnda samúð.
Börn og aðstandendur hins látna.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma
Bjarney I.
Guðmundsdóttir
áður Háteigsvegi 50,
lést á Hrafnistu í Reykjavík þriðjudaginn 21. desember.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn
28. desember kl. 15.00. Blóm afþökkuð en þeim
sem vildu minnast hennar er bent á Hjartavernd.
Páll Birgir Jónsson Guðrún Baldursdóttir
Guðmundur Rúnar Jónsson Ingibjörg Jónsdóttir
Sigurður Valur Jónsson Margrét Gunnarsdóttir
Ómar Jón Jónsson Valborg Röstad
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær móðursystir okkar
Gyða Jónsdóttir
Kleppsvegi 2,
andaðist á líknardeild LSH Landakoti 20. desember.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 29. desember klukkan 13.00.
Skúli Már Sigurðsson
Gísli Jón Sigurðsson
Örn Sigurðsson
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi
Jón Erlendsson
kennari og fv framkvæmdastjóri HSÍ,
Hraunbæ 103, áður Rauðalæk 67,
Reykjavík,
lést á Landakotsspítala sunnudaginn 19. desember
2010. Útför hans fer fram frá Laugarneskirkju
fimmtudaginn 30. desember kl. 11.00.
Ingileif Jónsdóttir Birgir Björn Sigurjónsson
Anna Jóna Hauksdóttir
Kristín Jónsdóttir Þórarinn Eyfjörð
Jón Erlendsson Eva Úlla Hilmarsdóttir
Magnús Birgisson Hrafnhildur Hjaltadóttir
Árni Birgisson Salvör Gyða Lúðvíksdóttir
Sigrún Eyfjörð
Þorsteinn Eyfjörð
og barnabarnabörn
Innilegar þakkir færum við öllum þeim,
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginkonu minnar,
móður, tengdamóður og ömmu,
Cornelíu Ingólfsdóttur.
Þór Helgason
Karl Jóhann Ásgeirsson Ragnheiður Helga Gústafsdóttir
Þórólfur Ingi Þórsson Eva Margrét Einarsdóttir
Jóhannes, Gabríel og Lilja.