Fréttablaðið - 23.12.2010, Qupperneq 48
23. desember 2010 FIMMTUDAGUR
Bækur ★★★
Geislaþræðir
Sigríður Pétursdóttir
Bréfaskáldsögur eru því sem næst
jafngamlar skáldsagnaforminu
sjálfu. Á gullöld sendibréfanna
voru skrifaðar ótal skáldsögur sem
samanstóðu eingöngu af sendi-
bréfum milli persónanna þar sem
atburðum, tilfinningum og hugs-
unum var miðlað í persónulegum
skrifum frá einni sögupersónu til
annarrar. Á allra síðustu árum
hefur bréfaskáldsagan gengið í
endurnýjun lífdaga með tölvupóst-
inum og jafnvel hafa orðið til heilu
skáldsögurnar sem eingöngu felast
í sms-skilaboðum milli persóna.
Nýjar leiðir til samskipta bjóða
upp á nýja tjáningarmöguleika.
Tölvupósturinn gerir fólki kleift
að skrifast á hratt, bregð-
ast við skeytum sam-
stundis, jafnvel á milli
heimsálfa. Þótt það sé
lítt rannsakað má full-
yrða að stíll tölvupósta
er ólíkur stíl sendibréfa,
hann er óhátíðlegri, bæði
hjá ungum og gömlum.
Fyrsta bók Sigríð-
ar Pétursdóttur er safn
smásagna sem allar
felast í tölvupóstsam-
skiptum ólíkra persóna.
Flestar sagnanna eiga
það sameiginlegt að per-
sónurnar þekkjast ekki
þegar skeytasendingar hefj-
ast. Hér skrifast á íslensk ungl-
ingsstúlka og áströlsk amma, mið-
aldra íslensk kona sem vinnur við
tölvur og ungur sænsk-indversk-
ur kollegi hennar og í lengstu sög-
unni, sem bókin þiggur nafn sitt
af, skrifast á ensk kona og íslensk
sem báðar hafa átt í sambandi við
sama karlmann. Sú saga spann-
ar heilan áratug í lífi persónanna
og við fylgjumst með þeim
þróast í stuttum
skeytum, stundum
með löngu milli-
bili. Þrátt fyrir að
sagan sé stutt er
sögð í henni löng
saga og þráðurinn
milli persónanna
tveggja slitnar aldrei
þótt maður óttist
stundum að hann sé
að verða bláþráðótt-
ur rétt eins og þráð-
urinn milli lesanda
og sögunnar.
Sögurnar í Geisla-
þráðum eru sögur af
„venjulegu“ fólki sem
þarf að kljást við vanda-
mál í einkalífinu. Í sumum
sagnanna þurfa persónurnar að
glíma við óvæntar aðstæður í sam-
tímanum, aðrar snúast fremur um
óvæntar uppljóstranir úr fortíð-
inni. Sögurnar í Geislaþráðum eru
misgrípandi, í þeim bestu, eins og
titilsögunni, tekst að skapa persón-
um sannfærandi rödd og láta hinn
tiltölulega knappa texta tölvupóst-
anna gefa í skyn undirtexta sem
er flóknari og margræðari. Aðrar
sagnanna, til dæmis sú síðasta,
Blúndur og búsáhöld, eru ekki jafn
vel heppnaðar, þar lifna persónurn-
ar aldrei almennilega til lífsins.
Í Geislaþráðum tala margar per-
sónur eða skrifa öllu heldur. Það er
mikill vandi að láta hverja þeirra
hljóma sannfærandi og sérstaka
auk þess sem það er erfiðara en
halda mætti að líkja eftir málsniði
tölvupósta. Langoftast tekst Sigríði
þetta vel. Á stöku stað verður stíll-
inn svolítið bóklegur og stífur en
oftast flæðir textinn ágætlega og
líkir eftir því óhátíðlega máli sem
flestir skrifa í tölvupóstum.
Jón Yngvi Jóhannsson
Niðurstaða: Bestu sögurnar í þessu
smásagnasafni draga upp hnyttnar og
áhugaverðar myndir af persónum og
aðstæðum í nútímanum.
Nútíma pennavinir
Útgáfufélagið Ókei-bækur hefur
gefið út þrjár nýklassískar barna-
bækur sem hafa verið ófáanlegar
um hríð: Selur kemur í heimsókn,
Svona verða börnin til og Askur
og prinsessan.
Selur kemur í heimsókn eftir
Gene Deitch kemur nú út eftir 36
ára dvala. Þar segir frá því þegar
selur heimsækir hvolp, dúfu og
mús í fiskibolluverksmiðju.
Svona verða börnin til eftir Per
Holm Knudsen kom fyrst út árið
1971 en þar segir frá getnaði og
fæðingu á hreinskilinn, einfaldan
og heiðarlegan hátt.
Í Aski og prinsessunni segir frá
því þegar Askur klæðskerasonur
leggur í hættuför í Svartaskóg
til að bjarga Lilju prinsessu frá
Dofra galdramanni.
Þrjú klassísk
barnarit
fáanleg á ný
Bækur ★★★
Árni Matt. Frá bankahruni til
byltingar
Árni Mathiesen og Þórhallur
Jósepsson
Árni Mathiesen, fyrrverandi fjár-
málaráðherra, sem nú er orðinn
aðstoðarframkvæmdastjóri hjá
Matvælastofnun Sameinuðu þjóð-
anna í Róm, kveður íslenska pól-
itík með bók sem Þórhallur Jós-
epsson hefur skráð eftir honum
um atburði í aðdraganda hrunsins
haustið 2008.
Eftir hrunið er minn tími í pól-
itík einfaldlega liðinn, - í bili að
minnsta kosti, segir Árni. Þeir
Þórhallur eiga báðir hrós skilið
fyrir þessa bók sem geymir hrein-
skilnasta framlag íslensks stjórn-
málamanns til uppgjörsins eftir
hrun.
Markverðustu pólitísku tíð-
indin í bókinni held ég að felist í
þeim lærdómi sem Árni dregur
af reynslu sinni af því að ræða
við erlenda ráðamenn vikurnar í
kringum hrunið haustið 2008.
Niðurstaða hans er sú að ætli
Íslendingar sér að leita banda-
manna erlendis standi aðeins
einar dyr opnar, það eru dyr Evr-
ópusambandsins. Árni segir að það
blasi við að eftir brottför Banda-
ríkjahers haustið 2006 telji Banda-
ríkjamenn Íslendinga ekki lengur
á sínu áhrifasvæði. Það sé sameig-
inlegur skilningur þeirra og ann-
arra helstu stórvelda í heiminum
að Íslendingar tilheyri einfaldlega
áhrifasvæði Evrópusambands-
ins og Breta. Árni tekur fram að
hann sé sjálfur enginn sérstakur
áhugamaður um aðild að Evrópu-
sambandinu. Hann vildi gjarn-
an standa utan þess, ef þess væri
kostur. En niðurstaða hans af mati
á þeim hagmunum sem eru í húfi
er sú að ekki sé vit í öðru en að láta
reyna á það til fulls hvaða samn-
ingar bjóðist í aðildarviðræðunum
sem nú fara fram við Evrópusam-
bandið. Hugmyndir sem stundum
heyrast um að Íslendingar geti
orðið fríríki og eigi að stefna að
nánum tengslum við Bandarík-
in, Rússa, Kínverja eða einhver
önnur stórveldi eru einfaldlega
óraunhæfar. Áhugi annarra þjóða
á slíku sambandi er einfaldlega
ekki til staðar. Ég man ekki eftir
að hafa áður séð mann úr innsta
hring Sjálfstæðisflokksins fallast
með jafnskýrum hætti á málflutn-
ing þeirra sem aðhyllast aðild að
ESB um þetta grundvallaratriði.
Þarna má líka lesa forvitnileg-
ar lýsingar á fundum ráðherra
með bankamönnum í aðdraganda
hrunsins og því þegar ráðherrarn-
ir gera sér fyrst grein fyrir því á
síðustu metrunum að eigendur
bankanna hafa verið að beita þá
blekkingum. Stjórnvöld töldu fram
á síðustu stund að vandi bankanna
væri lausafjárvandi og uppgötvuðu
ekki fyrr en um seinan að vandinn
var vegna uppblásins eigin fjár og
ónýtra skulda sem bankarnir töldu
til eigna. Árni lýsir vonbrigðunum
sem fylgdu því að uppgötva það að
baráttan hafði líklega alltaf verið
vonlaus og byggð á þessari blekk-
ingu um leið og hann ræðir þann
lærdóm sem stjórnkerfið geti
dregið af þessari reynslu.
Pétur Gunnarsson
Niðurstaða: Hreinskilnasta uppgjör
íslensks stjórnmálamanns við hrunið.
Hreinskilið uppgjör
Jóladagatal Norræna hússins 1.-23. des. kl: 12.34
Lumex
Skipholti 37
Sími 568 8388
www.lumex.is
17.900kr.
Ég vil hjálpa með 100 krónum á mánuði.
Ég skrái mig með SMS- skilaboðunum FHI í síma 1900 og eftir það
styrki ég Fjölskylduhjálp Íslands með 100 krónum á mánuði.
Viðkomandi fær svo sent eitt SMS á mánuði sem kostar 100 krónur
sem færist á símareikning um hver mánaðarmót.
Öll símafyrirtækin gefa sína þjónustu.
FÆ S T Í
Jólaúthlutun Fjölskylduhjálpar Íslands
Er sem hér segir:
Reykjanesbær
Hafnargötu 29
S. 697 3521
22. des
Akureyri
Freyjusnesi 4
S. 869 0820
22. des
Reykjavík
Eskihlíð 2-4
S. 892 9603
14-15-21-22 des.
Frá kl 14:00