Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1903, Page 6

Sameiningin - 01.03.1903, Page 6
píslarsögu sína fyrirfram. Það er skýrt tekið fram af guð- spjallamönnunum, að hann hafi svo og svo löngu áðr vitað það allt fyrir, sem fram við hann átti að koma. Hið sama vitnaði hann og sjálfr með eigin orðum margsinnis. Og að því er snertir kvala-örlög þau, er yfir honum vofðu eftir að hann hafði gefið sig á vald óvina sinna og ofsóknarmanna, þá ber sálarangistin hans í Getsemane alskýran vott þess í verk- inu, að allar þær yfirvofandi skelfingar voru honum fyrirfram kunnar út í yztu æsar. Fyrir þessa sök tvöfaldast og jafnvel margfaldast píslarsaga Jesú, að því er snertir tíinalengdina og þá auðvitað einnig stœrð kvalanna. Því að sjálfsögðu er djúpr, óumrœðilega djúpr, sársauki samfara því, að hann veit allt þetta fyrir, sem yfir honum vofði í kvala-áttina. Þegar undir eins og hann með skírninni í Jórdan lét vígj- ast til Messíasar-embættisins kenndi hann áreiðanlega sársauka hinna væntanlegu friðþægingarpísla, þótt sá sársauki væri þá á huldu. Og meðan stóð á hinni löngu föstu hans í eyði- mörkinni og þar með fylgjandi freistingarraunum hans brauzt sársaukinn út. Píslarsagan hans er augsýnilega byrjuð þegar undir eins þá. Og vissulega gleymir hann aldrei þaðan í frá fórnargjörðinni, sem fyrir honum lá, né kvölinni, sem henni hlýtr að vera samfara. En því lengr sem líðr á tímann, því nær sem fœrist dauða hans, því ríkari verðr sú hugsan í sálu hans og því meiri sársaukinn út af henni. Alkunn eru þessi hryggðarorð hans: ,,Nú er sál mín óróleg, og hvað skal eg segja?“ (Jóh. 12,27). Auðheyrt var hann, þá er hann mælti þeim orðum, mjög verulega genginn inn í ókomna píslarsögu sína í huganum. En enn þá dýpri og sárari er þó sú hugsan nú orðin hjá honum, er hann í texta vorum birtist oss á skír- dagskvöld í Getsemane; því þá veit hann, að það er komið fast að hinni miklu fylling tímans, þá er stórveldi myrkranna legðist á hann með öllu sínu kvala-afli og hann, hið fyrirhug- aða fórnarlamb guðs, hlyti að þola hina hryllilegu dauðahegn- ing. Það, sem Jesús tekr út í Getsemane, hefir í sér kvala- fyllinguna alla, sem fyrir hann var væntanleg á næsta degi. Hún stendr þarna afmáluð fyrir sálarsjón hans fyrirfram í allri hennar ógurlegu stœrð. Og í mesta máta merkilegt er

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.