Sameiningin - 01.03.1903, Blaðsíða 10
6
syndina út í dauðann. Og, vinir mínir, svo framarlega sem
þér fyrir trúna eigið andlegt ítak í þessu heilaga undri frið-
þægingarinnar, skal yðr verða borgið í öllum ókomnum eld-
raunum æfisögu yðar. Hversu sárt sem þér finnið til út af
myrkra-afli syndarinnar í sjálfum yðr eða fyrir utan yðr, eða
öðrum mótlætissorgum, þá skal það ekki gjöra út af
við yðr; þvert á móti skal það í Jesú nafni allt leiðast
vel út, verða yðr til eilífrar blessunar. I kjölfari sorgarinnar
og kvalarinnar skal sæla, himnesk guðs barna sæla, koma
streymandi frá drottni inn í sálir yðar. Þyrnirunnrinn ekki
eyðast eða skemmast, hvernig sem í honum logar. — Sorgin
guðs börnum hér ómissandi. Lífsnauðsyn fyrir pílagríma
drottins að koma við í Getsemane á leiðinni.
Annað atvikið, sem eg í sambandi við hryggðarmál
texta míns vil minna á í fornsögu gamla testamentis tíöarinn-
ar er það, þegar Abraham að boði drottins leggr á stað til
Móría með hinn ástfólgna son sinn Isak, til þess búinn að
slíta hann frá hjarta sínu og fórna honum, með eigin hendi
að hrinda honum út í dauðann. Það hefir vanalega í krist-
inni kirkju verið litið svo á, að Abraham í þeim sporum jar-
teikni guð föður í því hann fórnar hinum heilaga elskulega
syni sínum Jesú til þess að friðþægja fyrir syndir vor allra, en
Isak jarteikni frelsarann. Og sá skilningr getr vissulega verið
í alla staði réttr. *) En enn þá eðlilegra finnst mér það vera
að bera Abraham, við það alvarlega stórhátíðartœkifœri á
æfi hans, saman við Jesúm á krossferli hans, einkum og sér í
lagi þegar hann í hinni óumrœðilegu sálarkvöl birtist oss í
Getsemane. Af föðurlegri nærgætni og mildi dvlr Abraham
það fyrir Isak syni sínum í lengstu lög, allt fram að síðasta
mikla reynslu-augnablikinu, hvað hann að boði guðs ætlar við
hann að gjöra. Að sínu leyti alveg eins og hinn himneski
faðir lang-oftast heldr því algjörlega á huldu fyrir oss, sem
sárast og óttalegast bíðr vor að vilja hans f ókomnu tíðinni.
*J Þannig segir Hallgrímr Pétrsson í 30. passíusálminum:
,,Þessi krossins þunga byrSi
þér var, drottinn, lögð á bak,
svo fyrirmyndan fylld sú yrði,
þá fórnarviðinn bar Isaak. ‘ ‘