Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1903, Qupperneq 7

Sameiningin - 01.03.1903, Qupperneq 7
3 þaö; aö vér sjáum það enn þá skýrar hér fyrirfram — í Get- semane, hve óendanlega mikið hann tók út eftir aö hann lík- amlega var kominn inn í aðal-helgidóm friðþægingarpíslanna heldr en síðar, meðan þau undr voru í raun og veru að gjör- ast. Frá því aö tekið er að misþyrma honum þessa sömu nótt í húsi œðsta prestsins og þar til hann að morgni næsta dags er negldr á krossinn á Golgata heyrist aldrei minnsta æðruorð til hans, engin umkvörtun, ekkert kvein, hversu hryllilega og grimmilega sem hann er útleikinn. Og meðan stendr á áframhaldi kvala hans á krossinum, meðan þær óg- urlegu sex klukkustundir eru að líða, þá er það ekki heldr nema allra snöggvast í bili undir hið allra síðasta, að merki þess kemr fram frá honum sjálfum, hve óumrœðilega mikið það hafi verið, sem hann þá varð að taka út. Það er þegar hann í hinu yfirnáttúrlega náttmyrki, er grúfði yfir krossfest- ingarstöðvunum, heyrist taka sér í rnunn orðin sáru, ógleym- anlega í upphafi 22. Davíðs sálms og hrópaði: ,,Guð minn, guð minn! hvers vegna hefir þú yfirgefið mig?“ En það er að eins eitt augnablik. Ein einasta fjallhá alda, sem rís þar upp á kvalahafinu allra snöggvast; en hún er óðar liðin hjá, hnigin í djúpið, dáin og horfin. Yfirborð þess hafs bæði á undan og eftir fyrir manna sjónum svo kyrrt og rólegt eins og rennsléttr spegilflötr. Þar sem aftr á móti áðr, meðan hann fyrirfram í Getsemane er að hugsa um þetta allt, er yfir hann átti að koma, kvölin í sál hans er svo nístandi sár, að hún virðist ætla að slíta hann sundr og gjöra með öllu út af við hann. Kvölin er seinna nálega öll í undirdjúpi sálar hans. En hér, í Getsemane, brýzt sársaukinn miklu meir út. Ein kvala-aldan eftir aðra ríðr hér yfir hann. í sambandi við það, er.síðar birtist á yfirborðinu, stendr miklu lengr á angistar- umbrotunum í sál hans nú. Enginn nema guð einn getr kannað dýpt friðþægingarkvala Jesú. Þar er vitanlega um órannsakanlegt guðlegt undr að rœða. En það að Jesús tók svo mikið út fyrirfram eins og sagan um angist hans í Get- semane ber vott urn, það er sálarfrœðislega eðlilegt, þegar því er haldið föstu, að hann jafnframt því að vera guð var al- sannr maðr, og því um leið, að hann var kominn í heim þenn-

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.