Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1903, Qupperneq 12

Sameiningin - 01.03.1903, Qupperneq 12
8 í þetta sinni hafa kviðiö fyrir voðanum, sem yfir vofði, hefði að eins hann sjálfr verið í hættu. Eigingjarn var hann, hafði frá barnoesku nálega eingöngu hugsað um sína eigin persónu- legu hagsmuni. Og vitanlega var það aðal-synd hans. Þó var hann ekki fyrst og fremst nú að hugsa um sjálfan sig, heldr um ástmennahópinn, sem með honum var, — það, að öll voru líkindi til, að hörð og hræðileg hegning fyrir hans eigin syndir yrði vægðarlaust látin dynja yfir þessi önnur mannslíf, sem hann elskaði svo heitt — vissulega nú miklu heitar og sárar en sitt eigið líf—; þau höfðu ekkert til saka unnið, en nú myndi syndagjöldin hans koma yfir þau. Ó, hve sárt hann fann til á þessari stund ! En líka— hve ná- lægt hann fœrðist heilögum og réttlátum guði út af þessari angist iðrunarinnar og elskunnar ! — Hvað verðr nú úrræði hans ? Hið sama, sem beint liggr við oss öllum á hættunnar og sorgarinnar tíð. Hann sneri sér biðjandi til guðs. Bað heitt, hjartanlega, eins og sá, er veit, að lífið liggr við. Bað meðal annars með þessurn orðum : ,,Frelsa þú mig af hendi bróður míns, af hendi Esaú; því eg er hræddr við hann, og óttast, að hann yfirfalli mig og drepi líka mœðrnar með börn- unum. “—Þar birtist sárasti blettrinn f sorgarhugsan hans, — kvíðinn fyrir skelfingunni, sem vofði yfir þeim hans vegna. Þetta er dauða-angist elskunnar, sem skýrt bendir til Jesú í Getsemane. Jakob er þarna svo að kalla í Getsemane. Bœnin ber þann ávöxt, að honurn hugsast ráð til þess að blíðka bróður sinn. Hann sendir einn erindsreka eftir annan á stað — eftir að hann hefir komið skuldaliði sínu öllu yfir ána — með stórar gjafir honum til handa. En hann einn nemr staðar á hinum bakka árinnar seint að kvöldi, og þar heldr hin andlega barátta hans við guð — eða öllu heldr við hinn náttúrlega rnann hans sjálfs frammi fyrir augsýn guðs —• áfram. Það er hin ógleymanlega glíma Jakobs—glíman við hinn ókennda mann, engil drottins, sama sem við drottin sjálfan. Þar fullkomnast Getsemane-stríðið hans. Hann vann sigr í þeirri baráttu; en augsýnilega sigrar hann að eins fyrir þá sök, að hann þá lærði fullkomlega að beygja sinn náttúrlega vilja undir hinn heilaga vilja guðs, Vissulega á

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.